Ég bið ykkur um að sýna miskunn 23. september 2004 00:01
Ættingjar Kenneth Bigley, breska gíslsins sem haldið er föngnum í Írak, róa nú lífróður í von um að sjá hann aftur heilan á húfi. Kona hans grátbændi mannræningjana um að hlífa honum og senda hann aftur til sín og bróðir hans skammaði Bandaríkjamenn fyrir að grafa undan möguleikum á að bjarga lífi hans. "Við höfum verið gift í sjö ár og ég elska hann mjög heitt. Ég vil ekkert frekar en að hitta hann á ný. Ég bið ykkur um að sýna miskunn. Ég sárbæni ykkur að sleppa Ken svo ég fái að sjá hann aftur," sagði Sombat Bigley, eiginkona síðasta eftirlifandi gíslsins af þremur sem rænt var á dögunum. "Ken, eiginmaður minn, er venjulegur, harðduglegur fjölskyldumaður sem vildi hjálpa írösku þjóðinni. Sem ástrík eiginkona hans sárbæni ég ykkur enn og aftur um að sýna honum miskunn," sagði Sombat. Hryðjuverkamenn í hreyfingu Abu Musab al-Zarqawi rændu Bigley og tveimur Bandaríkjamönnum sem hafa þegar verið myrtir. Þeir kröfðust þess að öllum kvenföngum í haldi Bandaríkjamanna yrði sleppt úr haldi en þeirri kröfu hafa Bandaríkjamenn hafnað. Þeir segja aðeins tvær konur í haldi, en báðar tengdust áætlunum Íraka um að koma sér upp gjöreyðingarvopnum og fengu þær viðurnefnin doktor Sýkill og frú Miltisbrandur. "Við höfum ekki verið í samningaviðræðum og við munum ekki semja við hryðjuverkamenn um lausn gíslanna," sagði Iyad Allawi, forsætisráðherra Íraks, í gær. Daginn áður höfðu íraskir embættismenn sagt að annarri konunni yrði sleppt úr haldi en Bandaríkjamenn höfnuðu því og æðri ráðamenn í Írak einnig. Bróðir gíslsins, Paul Bigley, sakar bandarísk yfirvöld um að skemma fyrir möguleikanum á að endurheimta Bigley heilan á húfi með því að neita að sleppa konunum tveimur úr haldi. "Það var smá vonarglæta við endann á stórum, löngum, myrkum, skítugum og köldum göngunum. Nú hefur sú von verið eyðilögð," sagði hann eftir að bandarísk yfirvöld neituðu að verða við kröfum hryðjuverkamannanna. Sjálfur bað Kenneth Bigley um aðstoð Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í myndbandi sem var dreift á netinu í fyrrakvöld. "Þetta er hugsanlega síðasta tækifæri mitt. Ég vil ekki deyja," sagði hann. Bandarísku gíslarnir voru báðir skornir á háls. Lík þeirra hafa fundist og var aftaka annars mynduð og sýnd á netinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Erlent Gerðar út fyrir tuttugu þúsund krónur á hálftímann Innlent Á hæsta forgangi vegna steypubíls sem lenti í Þjórsá Innlent „Þessi kona er ekkert skyni skroppin“ Innlent „Enginn búið til fleiri þjóðaratkvæðagreiðslur en ég“ Innlent Matthías kominn á áfangaheimili Innlent Gul viðvörun á Suðurlandi á morgun Innlent Kæra sautján ára Íslendings varð að einu umtalaðasta kynferðisbrotamáli Ítalíu Innlent Efast um að fólk í undirheimunum pæli í tuftvélinni Innlent Leitar enn hunds sem týndist fyrir 38 árum Innlent Fleiri fréttir Yfir 300 börn farist eða særst og varað við stórslysi Úkraínumenn uppiskroppa með loftvarnarflugskeyti Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Hvetur leiðtoga Nató til að taka afgerandi ákvarðanir Telja gestinn úr öðru sólkerfi mun eldri en sólin okkar Vilja nýja rannsókn á Farage vegna gjafa frá sakamanni Tyrkir neita skipi fullu af hommum um að leggja að bryggju Kínverjar gera tilraunir með langdræga eldflaug á Kyrrahafi Nord Stream skemmdarverkin: Yfirvofandi réttarhöld gætu orðið bandamönnum erfið Tíu látnir í árásum Rússa á Kænugarð Enn besta lausnin að kaupa Grænland Mætti ekki í útför föður síns Tugþúsundir mótmæltu í Tirana Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Hitabylgja skekur Bandaríkin á 250 ára afmælisdaginn Gerðu umfangsmiklar árásir á olíuinnviði Rússa Vikulöng jarðarför Khameini hafin Dauðsföllum fjölgaði um tugi prósenta í hitabylgjunni Ný þungunarrofslög taka gildi í Færeyjum Afhjúpa alþjóðlegt net manna sem byrla og brjóta gegn konum Trump sparkar í bandamenn í aðdraganda Nató-fundar í Ankara Fyrrum Ólympíufari ákærður fyrir að skemma laugina við Lincoln-minnismerkið Gary Glitter ákærður fyrir kynferðisbrot eina ferðina enn Að minnsta kosti átján látnir eftir umfangsmiklar árásir „Antonio hefur með eigin augum séð byggingar hrynja“ Páfagarður bannfærir alla presta og fylgjendur bræðralagsins Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Verða líklega bannfærðir eftir vígslu gegn vilja páfa Þrettán látnir hið minnsta eftir stóra drónaárás Rússa Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Sjá meira