Aðkilnaður frá Serbíu líklegur 23. október 2004 00:01
Lýðræðislegar kosningar fóru í dag fram í Kósóvó. Allar líkur eru á að þær leiði að lokum til aðskilnaðar frá Serbíu. Þetta er í annað sinn frá því að stríðinu í Kósóvó lauk sem frjálsar og lýðræðislegar kosningar fara fram í landinu. Hundruð þúsunda streymdu á kjörstaði víðsvegar í héraðinu en stór hluti serbneska minnihlutans hélt sig fjarri, af ótta við þjóðernissinna úr eigin röðum sem hótuðu þeim sem tækju þátt í kosningunum, og svo til að mótmæla kosningunum. Níutíu prósent íbúa Kósóvó eru Albanar, þó að héraðið tilheyri Serbíu, og ljóst er að Albanar verða sigurvegarar kosninganna sem að líkindum munu leiða til aðskilnaðar frá Serbíu. Árni Snævarr blaðamaður starfaði fyrir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu í Kósóvó þar til nýlega. Spurður hvort lýðræðið sé að festa sig í sessi með kosningunum eða hvort verið sé að kveikja í sprengiþræðinum að púðurtunnunni segir hann að lýðræðið sé vissulega við það að festa sig þarna í sessi. Ekkert sé að framkvæmd kosninga í Kósóvó, meirihluti kjósi þing og svo framvegis. „Hins vegar er Kósóvó nánast nýlenda vestrænna ríkja. Ef lýðræðið hefði fest sig í sessi í Kósóvó væru Kósóvó-Albanir nú að kjósa um hvort þeir væru sjálfstæðir eða ekki. Þetta er hins vegar spurning sem vestræn ríki hafa ekki viljað svara í fimm ár og það hlýtur að fara að koma að því að þeir geri það,“ segir Árni og bætir við að eitt af því sem vanti upp á lýðræðið í Kósóvó sé að borin sé virðing fyrir minnihlutanum, Sebum, sem eru aðeins tíu prósent íbúanna. Árni segir Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu sinna því að kenna Kósóvó-Albönum lýðræði, en hún vilji samt ekki leyfa þeim að segja lýðræðislega hvort þeir vilji aðskilnað frá Serbíu eða ekki.
Erlent Fréttir Mest lesið „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ Innlent Fleiri fréttir Sækja mannréttindasamtök til saka vegna njósna um öfgamenn Vilja senda afganska bandamenn og fjölskyldur til Kongó Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Framlengir vopnahléið og herkvína Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Viðræður enn á ís vegna „óásættanlegrar“ hegðunar Ein hinsta ósk Frans páfa enn óuppfyllt „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Starmer vissi ekkert en þrýstingurinn mikill að gefa Mandelson grænt ljós Skaut ferðamann til bana við mexíkóskan pýramída Friðurinn úti á morgun en ekkert ákveðið um viðræður Óttast enn stærri skjálfta í Japan á næstu dögum Vilja festa símabannið í lög Vill þrjátíu milljarða vegna fyllerísfréttar D4vid ákærður fyrir að myrða táningsstúlku Utankjörfundur fer vel af stað og fylgið að setjast Stór skálfti í Japan og flóðbylgjuviðvörun gefin út Bandamaður Rússa vann stórsigur í Búlgaríu Faðirinn skaut sjö börn sín til bana og eitt til viðbótar Starmer á leið á átakafund í þinginu Stjórnvöld í Tehran sögð orðin afhuga samningaviðræðum Barist á hafi úti Átta börn látin eftir skotárás „Það er kominn tími til að binda endi á drápsvél Íran“ Klukkan tifar og enn langt í land Að minnsta kosti sex látnir eftir gíslatöku í matvöruverslun Gámaskip Samskipa bilaði við Færeyjar Trump segir Írani krúttlega og þeir geti ekki kúgað Bandaríkin Sjá meira