Hörð átök í Najaf 8. ágúst 2004 00:01
Bandarískar herþyrlur skutu á sjíta múslima í íröksku borginni Najaf í dag, nokkrum klukkustundum eftir að írakski forsætisráðherrann hafði hvatt uppreisnarmenn til að leggja niður vopn. Hann fór óvænt í stutta heimsókn til borgarinnar í dag, en þar hafa geisað hörð átök í fjóra daga. Allawi, Forsætisráðherra íröksku bráðabirgðastjórnarinnar ræddi ástandið við borgarstjórann í Najaf, þegar hann fór þangað í morgun ásamt tveimur meðráðherrum sínum. Forsætisráðherrann segist ekki ætla að handtaka leiðtoga uppreisnarmanna Moqtada al-Sadr en vill engar samningaviðræður fyrr en vopn verða lögð niður. Fljótlega eftir að Allawi yfirgaf borgina brutust út átök á ný. Átökin í Najaf hafa meðal annars leitt til þess að friðsælli sjíta leiðtogi en al-Sadr, Ali al-Sistani, sem hefur meðal annars liðsinnt Sameinuðu þjóðunum, flúði til Bretlands þar sem hann er nú í rannsókn á hjartadeild sjúkrahúss í London. Írakska bráðabirgðastjórnin tilkynnti í dag að dauðarefsingar yrðu teknar upp á ný, en þær voru aflagaðar eftir fall Saddams Husseins, þeim mun eingöngu verða beitt í málum er varða morð, mannrán og eiturlyfjabrot. Mannrán halda áfram og í dag var írönskum embættismanni rænt í Írak. Arabísk sjónvarpsstöð birti mynd af manninum og vegabréfi hans í dag. Mannræningjarnir saka hann um að valda deilum milli trúarhópa í Írak. Tvær sprengjur sprungu nærri hóteli í Bagdad síðdegis og bandarísk herþyrla þurfti að nauðlenda í höfuðborginni. Skæruliðar segjst hafa skotið hana niður en Bandaríkjamenn viðurkenna það ekki.
Erlent Fréttir Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira