Miðasala á Ólympíuleika tekur kipp 8. ágúst 2004 00:01
Miðasala á Ólympíuleikana hefur tekið kipp eftir rólega byrjun og standa nú þúsundir Grikkja í nokkurra klukkutíma biðröðum í Aþenu. Búist hafði verið við að miðasala myndi ganga betur í Grikklandi en í Sidney í Ástralíu árið 2000, meðal annars vegna sögulegra tengsla Grikklands við Ólympíuleikana, en fyrstu nútíma leikarnir voru haldnir í Aþenu árið 1896. Vaxandi áhyggjur af öryggisgæslu og hvort Grikkjum tækist að klára allt í tæka tíð drógu úr sölu á alþjóða vísu. Nú er miðasala hins vegar að aukast dag frá degi og eru skipuleggjendur hæstánægðir, sérstaklega með söluna í Grikklandi. Í upphafi síðustu viku hafði selst minna en helmingur þeirra rúmlega fimm milljóna miða sem í boði eru. Síðustu þrjá daga hafa 150 þúsund miðar rokið út og eru skipuleggjendur bjartsýnir á að þeim takist að selja um þrjár og hálfa milljón miða áður en leikarnir hefjast á föstudaginn. Líkt og Íslendingar eru Grikkir þekktir fyrir að gera hlutina á síðustu stundu og verða miðar fáanlegir á fjórum stöðum til viðbótar við þá sem fyrir eru frá morgundeginum. Miðasala hefur einnig aukist í fjórum öðrum borgum en Aþenu, þar sem hluti leikanna fer fram. Uppselt er á opnunar- og lokaathöfnina, enn eru hins vegar fáanlegir miðar á flestar riðlakeppnir. Ólympíuleikarnir hefjast á föstudaginn og standa yfir til sunnudagsins 29. ágúst. Föstudagurinn þrettándi hræðir ekki skipuleggjendur opnunarhátíðarinnar sem segja að hún verði glæsilegri en nokkru sinni fyrr, en um 9000 manns munu koma að henni. Ríkissjónvarpið sýnir beint frá athöfninni klukkan korter í sex á föstudaginn en áætlað er að um 300 sjónvarpsstöðvar sýni um 35 þúsund klukkustundir af efni frá Ólympíuleikunum. Nærri fjórir milljarðar manna munu gjóa augum að sjónvarpsskjáum vegna leikanna.
Erlent Fréttir Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira