Erlent

Kóreuríkin sem eitt

Ólympíulið Norður- og Suður-Kóreu munu ganga saman inn á Ólympíuleikvanginn við setningarathöfn leikanna á föstudaginn. Þetta er til marks um batnandi sambúð ríkjanna á Kóreuskaganum. Liðin mæta til leiks undir merkjum sameiginlegs fána og hvorugur þjóðsöngur ríkjanna verður leikinn, heldur kóreskt þjóðlag. Hins vegar nær samstaðan ekki framyfir setningarathöfn því liðin munu keppa hvort í sínu lagi í þeim greinum sem þau taka þátt í á Ólympíuleikunum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×