Erlent

Minnst 15 látnir

Minnst 15 hafa látist og nokurra er saknað eftir mikinn fellibyl sem gekk yfir suðvesturströnd Japan í morgun. Þá hafa 30 manns slasast í bylnum, sem farið hefur vel yfir 40 metra á sekúndu. Óttast er að bylurinn gangi yfir Tokyo síðar í dag. Á ákveðnum stöðum í suðurhluta Japans liggur öll starfsemi niðri vegna fellibylsins. Samgöngur liggja niðri á stóru svæði og 50 þúsund hús eru án rafmagns. Þá hefur 110 þúsund mönnum verið gert að yfirgefa heimili sín á meðan bylurinn gengur yfir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×