ESB í úlfakreppu 27. október 2004 00:01
Evrópusambandið er í úlfakreppu eftir að Jose Manuel Barroso, tilvonandi forseti framkvæmdastjórnar sambandsins, hætti á síðustu stundu við að skipa nýja framkvæmdastjórn í dag. Fordómar í garð samkynhneigðra og einstæðra mæðra valda þessari kreppu. Til stóð að greiða atkvæði um skipan nýrrar tuttugu og fjögurra manna framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins á fundi Evrópuþingsins en Jose Manuel Barroso, væntanlegur forseti framkvæmdastjórnar ESB, hætti við að leggja fram tillögu um skipan stjórnarinnar þar sem hann taldi ljóst að þingið myndi hafna tillögunni. Áform Barrosos um að skipa Ítalann Rocco Buttiglione, dómsmálastjóra ESB, ollu gríðarlegum titringi innan Evrópuþingsins en um það bil helmingur þingsins hafði lýst andstöðu sinni við skipan hans vegna fordóma hans í garð samkynhneigðra og einstæðra mæðra. Barosso óttaðist um afleiðingarnar en Buttiglione hefur meðal annars sagt samkynhneigð vera synd. Evrópuþinginu, sem kemur næst saman til fundar 15. nóvember næstkomandi, hefði þó ekki dugað að fella Buttiglione einan því vegna reglna verður það annað hvort að samþykkja eða hafna framkvæmdastjórninni í heild. Barroso tekur því ekki við embætti forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins 1. nóvember næstkomandi, eins og áformað var, þegar kjörtímabil Romano Prodis, núverandi forseta, rennur út. Vegna þeirrar úlfakreppu sem sambandið er nú í hefur Prodi fallist á að gegna embættinu enn um sinn, eða þar til samkomulag næst um nýja framkvæmdastjórn.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Fleiri fréttir Minnst tíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Sjá meira