Framkvæmdastjórnin í uppnámi 27. október 2004 00:01
Skipan næstu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins er í uppnámi eftir að Jose Manuel Barroso dró til baka tillögu sína um skipun stjórnarinnar Þá var ljóst að þingmenn myndu ekki veita framkvæmdastjórninni brautargengi vegna andstöðu þeirra við ítalska frambjóðandann sem fara á með dómsmál í framkvæmdastjórninni. Þing Evrópusambandsins verður að samþykkja tilnefningar í framkvæmdastjórnina til að þær taki gildi. Ljóst þótti að þingið myndi ekki samþykkja tilnefningu Rocco Buttiglione í dómsmálin og þar sem aðeins er hægt að greiða atkvæði um framkvæmdastjórnina í heild sinni en ekki einstaka meðlimi hennar var ljóst að tillaga Barroso yrði felld ef hún yrði borin undir atkvæði í gær. Ef Barroso hefði látið kjósa um tillögu sína og henni verið hafnað hefði það verið í fyrsta sinn sem þingið hafnaði uppstillingu í stjórn Evrópusambandsins. Það sem veldur andstöðu þingmanna við Buttiglione eru niðrandi ummæli hans um samkynhneigða einstaklinga og einstæðar mæður. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum reyndi Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að fá Buttiglione til að draga sig í hlé til að binda enda á deiluna um skipun framkvæmdastjórnarinnar. Því mun Buttiglione hafa hafnað. Berlusconi er líka sagður hafa rætt við samherja sína í ríkisstjórn um að tilnefna annan einstakling í stað Buttiglione. Franco Frattini utanríkisráðherra sagði hins vegar að Buttiglione væri frambjóðandi Ítalíu og að Berlusconi myndi ræða við aðra þjóðarleiðtoga um lausn málsins. Barroso sagðist í gær vonast til að leysa deiluna á næstu vikum og leggja fram nýja tillögu að skipan framkvæmdastjórnarinnar. Þangað til það gerist verður fráfarandi framkvæmdastjórn áfram við völd en kjörtímabil hennar rennur út um mánaðamót.
Erlent Fréttir Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Erlent Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Erlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Tvær lægðir á leiðinni Veður Fleiri fréttir Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst þrjátíu sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Sjá meira