Óskar eftir fundi um innrásina 21. september 2004 00:01
Steingrímur J. Sigfússon, fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í utanríkismálanefnd, hefur sent Sólveigu Pétursdóttur, formanni nefndarinnar, bréf þar sem óskað er eftir fundi í nefndinni við fyrsta hentugleika til að ræða stuðning Íslands við innrásina í Írak og aðdraganda hennar. Í bréfinu, sem sent var fjölmiðlum í dag, segir formaður Vinstri - grænna meðal annars: „Óska ég eftir því að meðal fundargagna verði helstu rannsóknaskýrslur sem komið hafa út austan hafs og vestan þar sem rakinn er aðdragandi ákvarðana um innrásina í Írak. Æskilegt væri að gerðir væru úrdrættir eða stuttar samantektir úr þessum helstu skýrslum til að auðvelda nefndarmönnum að setja sig inn í þau mál. Sérstaklega er hér átt við Hutton-skýrsluna svonefndu frá Bretlandi og skýrslu bandarískra stjórnvalda og bandaríska þingsins. Einnig væri æskilegt að helstu gögn frá Ástralíu, Danmörku og víðar að, þar sem aðstæður eru sambærilegar að einhverju leyti og á Íslandi (ríki í „hópi hinna staðföstu"), væru reidd fram, svo og annað sem tengist umræðum um lögmæti ákvarðana um innrásina, sbr. nýleg ummæli Kofi Annans, aðalritara Sþ.“ Steingrímur óskar jafnframt eftir að á dagskrá fundarins verði umræður um hvernig utanríkismálanefnd og/eða Alþingi geti í framhaldinu unnið að því að upplýsa þessi mál og allan aðdraganda þess að Íslendingar lýstu stuðningi við innrásina í Írak.
Fréttir Innlent Írak Stj.mál Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Erlent Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Innlent Fleiri fréttir „Við þurfum ekki á Kanada að halda“ Heimshöfin aldrei heitari Hollendingar ætla ekki að taka þátt í Eurovision á næsta ári Sprengjur heimsstyrjaldanna springa á ný í gróðureldum Vilja frið en ætla ekki að gefast upp Ríkisstjóri Texas í herferð gegn þvottastöðvum múslima á flugvöllum Færir Selenskí eldflaugateikningar Hinn grunaði í sverðaárásinni í Fagersta í Svíþjóð nafngreindur Heilsu Haralds konungs hrakar Kanada vilji fríðindi þess að vera hluti af Bandaríkjunum Rúmlega hundrað flugferðum aflýst og langar biðraðir „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Tveir hinna látnu lögreglumenn Nokkrir látnir eftir árekstur lögreglubíls Þingkosningar í Bandaríkjunum: Meira en helmingslíkur á að Demókratar nái öldungadeildinni TikTok gert að greiða Bandaríkjunum sögulega upphæð Einn látinn og tveir drengir alvarlega særðir í Fagersta Gerðu tvöfalda árás á verslunarmiðstöð fjarri víglínunni Fundu rússneskt vopnabúr í skógi fyrir utan Berlín Auka fjárútlát til varnarmála um tæpan fimmtung Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Réðst á grunnskólanemendur með sverði Skipstjóri sem sigldi næstum á hús fær fangelsisdóm Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Búast við fordæmalausum El niño næsta árið Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Stillir sér upp með gálga og skreytti afmæliskökuna snöru Handtekinn fyrir annan glæp en ekki vegna hvarfs Anne-Elisabeth Sjá meira