Viðskipti innlent
Capacent kaupir Epinion Capacent í Danmörku hefur gengið frá kaupum á danska fyrirtækinu Epinion, einu stærsta fyrirtæki Danmerkur á sviði markaðsrannsókna. Epinion mun fyrst um sinn starfa áfram undir eigin nafni, en gert er ráð fyrir að starfsemin verði flutt í húsnæði Capacent í Hellerup á vormánuðum. Viðskipti innlent 1.2.2007 12:28
Met slegið í erlendum verðbréfakaupum Árið 2006 var metár í kaupum á erlendum verðbréfum. Þetta kemur fram í gögnum frá Seðlabankanum og segir frá í Morgunkorni Glitnis. Á árinu voru erlend verðbréf keypt fyrir um 146 milljarða króna. Fyrra met féll árið 2005 þegar kaupin námu 123,5 milljörðum króna. Viðskipti innlent 1.2.2007 10:48
Peningaskápurinn ... Danske Bank skilaði besta uppgjöri í sögu sinni í gær. Þar á bæ treystu menn sér ekki til að færa upp væntingar til þess að færa upp væntingar til þessa árs. Það varð til þess að bréfin féllu í verði þrátt fyrir metuppgjör. Viðskipti innlent 1.2.2007 00:01
Hagnaður Bakkavarar jókst um 111 prósent Bakkavör Group skilaði 9,5 milljarða króna hagnaði í fyrra. Þetta er 111 prósenta aukning á milli ára. Þá nam hagnaðurinn á fjórða og síðasta ársfjórðungi 2006 4,6 milljörðum króna. Þetta er 191 prósenta aukning frá árinu á undan. Afkoman er lítillega yfir spám greiningardeilda viðskiptabankanna. Viðskipti innlent 31.1.2007 09:57
Ókostir evrunnar óljósari en áður Upptaka evru í stað krónu kynni að reynast sem ankeri fyrir efnahagslífið. Óli Kristján Ármannsson hlýddi á fyrirlestur dr. Jóns Þórs Sturlusonar á fundi Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga. Þar kom fram að algeng rök gegn aðild að evrunni kunna að vera veigaminni en talið hefur verið. Viðskipti innlent 31.1.2007 08:30
Með gott fjárfestinganef Bala Murughan Kamallakharan er meðlimur í viðskiptaþróunarteymi Glitnis sem gegnir því mikilvæga starfi að leita og vinna að fjárfestingartækifærum fyrir bankann. Þegar teymið hefur fundið réttu færin og bankinn hefur keypt nýtt fyrirtæki stýrir það samþættingarvinnunni sem fylgir í kjölfarið. Viðskipti innlent 31.1.2007 07:00
Kýr slá líka Íslandsmet Það voru ekki aðeins íslensku viðskiptabankarnir sem slógu hvert afkomumetið á fætur öðru á síðasta ári. Íslensku kýrnar virðast síst eftirbátar bankanna enda mjólkuðu þær sem aldrei fyrr á liðnu ári. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Veðjum á raunveruleg verðmæti Það fór eins og Aurasálina grunaði. Þjónustugjöldin hafa skilað bönkunum ævintýralegum hagnaði enn eitt árið. Allir bankarnir nema Seðlabankinn tilkynna nú um frámunalega mikinn hagnað af starfsemi sinni. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Heill ykkur meistarar Hverjir eru þeir sem með blóði, svita og tárum gera manni eins og mér kleift að vakna seint á morgnana og liggja þess á milli með fartölvuna á maganum uppi í sófa? Það eru blessaðir bankastjórarnir. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Samstarf um græna vottun fyrirtækja Data Íslandia er í samstarfi við eitt stærsta ráðgjafa- og vottunar-fyrirtæki á Bretlandseyjum í loftslagsmálum, The CarbonNeutral Company. „Umfjöllun um verndun loftslagsins í heiminum er eitt aðalumræðuefnið í heimsfréttunum og eftir fund þeirra í London, hafa fyrirtækin sameinað krafta sína til að beina athygli annarra fyrirtækja að mikilvægi þessa málefnis,“ segir í tilkynningu Data Íslandia. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Væntingarnar meiri en í fyrra Væntingar íslenskra neytenda voru meiri í janúar í ár en í fyrra, sem var áður en erlendar bölsýnisspár um íslenska hagkerfið og bankana tröllriðu fjölmiðlum. Væntingavísitala Gallup mælist 128,6 stig og hefur reyndar lækkað örlítið frá því í desember, eða um tíu stig. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Kortaútgáfa aðgreind í nýju dótturfélagi Kreditkort hafa tilkynnt um þá ákvörðun sína að færa korta-útgáfu félagsins yfir í dóttur-félag, líkt og greint var frá að stæði til í Fréttablaðinu á fimmtudag. Í tilkynningu félagsins segir að starfsemi Kreditkorts verði í framtíðinni miðuð að færsluhirðingu og þjónustu við útgefendur korta. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Actavis stefnir beint á ystu sjónarrönd Það er sjaldan lognmolla yfir Actavis. Undirbúningur að skráningu hlutafjár í evrum er hafinn, metnaðarfull rekstrarmarkmið næstu ára voru nýlega kynnt innlendum sem erlendum fjárfestum og greiningaraðilum og áhugi á að taka yfir samheitalyfjahluta lyfjafyrirtækisins Merck hefur verið staðfestur. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Afþreyingarkerfi og sæti fyrir 1,8 milljarða Icelandair hefur samið um kaup á nýju afþreyingarkerfi fyrir farþegaflugvélar við bandaríska framleiðslufyrirtækið Thales og um kaup á nýjum sætum við franska framleiðandann Aviointerios. Heildarvirði samninganna tveggja er sagt um 1,8 milljarðar króna. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Eimskip eignast Norðurfrakt Eimskip hefur keypt alla hluti í Norðufrakt ehf. á Siglufirði. Fyrir átti félagið 52 prósenta hlut. Í tilkynningu félagsins kemur fram að seljendur hafi verið Árni Helgason á Ólafsfirði og Ásmundur H. Einarsson á Siglufirði. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Þúsund farsímar seldir Farsimalagerinn.is í Miðhrauni, sem hóf starfsemi sína í desember síðastliðnum, seldi þúsundasta farsímann 24. janúar síðastliðinn. Jón Valgeir Björnsson, sem festi kaup á síma af gerðinni Nokia 5140i, var við það tilefni leystur út með blómvendi og konfektkassa. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Samkeppnis-eftirlitið flytur Samkeppniseftirlitið hefur tekið á leigu nýtt skrifstofuhúsnæði í Borgartúni 26 í Reykjavík. Fyrirhugað er að flytja starfsemi eftirlitsins í hið nýja húsnæði á miðju þessu ári, að því er fram kemur á vef Samkeppniseftirlitsins. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Lars varar við bjartsýni Lars Christiensen varaði við því að Danir væru of bjartsýnir og vanmætu Íslendinga. Þessi Lars Christiensen talaði úr herbúðum danska handboltalandsliðsins og mælti þar af skynsemi. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Actavis bætir við rannsóknar- og þróunarbyggingu í Hafnarfirði Actavis hefur tekið í notkun nýja rannsóknar- og þróunarbyggingu í Hafnarfirði. Í nýbyggingunni er öll þróunarvinna fyrirtækisins á Íslandi saman komin undir einu þaki. Jafnframt er í byggingunni hluti af starfsemi gæðasviðs Actavis. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Flugfrumkvöðull deyr Í gær voru liðin 59 ár frá andláti Orvilles Wright, yngri bróður Wilburs Wright, en saman eiga þeir heiðurinn að því að hafa komið fyrstu vélknúnu flugvélinni á loft í jólamánuði ársins 1903. Viðskipti innlent 31.1.2007 00:01
Straumur-Burðarás hagnaðist um 45 milljarða króna Fjárfestingarbankinn Straumur-Burðarás hagnaðist um 45,2 milljarða krónur á síðasta ári. Hagnaður bankans jókst um 69% frá fyrra ári en hann var tæpir 27 milljarðar á árinu 2005. Viðskipti innlent 30.1.2007 17:41
FL Group fær að eiga virkan eignarhlut í Glitni FL Group hefur frá og með deginum í dag fengið formlega heimild Fjármálaeftirlitsins til að eiga og fara með virkan eignarhlut í Glitni. Þetta kemur fram í tilkynningu FL Group til Kauphallarinnar í dag. FL Group á nú 30,4 prósenta hlut í Glitni og er stærsti hluthafi bankans. Viðskipti innlent 30.1.2007 12:59
Glitnir tvöfaldar hagnað sinn Hagnaður Glitnis árið 2006 var 38,2 milljarðar íslenskra króna eftir skatta. Það er rétt rúmlega tvöföldun frá árinu 2005, þegar hagnaður nam 18,9 milljörðum. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 9,3 milljörðum króna og arðsemi eigin fjár var 39,4%. Viðskipti innlent 30.1.2007 08:36
Samanlagður hagnaður bankanna yfir 163 milljarðar Hagnaður af rekstri Kaupþings banka í fyrra nam röskum 85 milljörðum eftir skatta, sem er 36 milljörðum meira en árið áður. Aldrei hefur íslenskt fyrirtæki hagnast jafnmikið á einu rekstrarári. Samanlagður hagnaður Kaupþings, Glitnis og Landsbankans árið 2006 nemur rúmum 163 milljörðum króna. Allir bankarnir skiluðu metafkomu á síðasta ári. Viðskipti innlent 30.1.2007 07:06
Úrvalsvísitalan endaði uppi á 7.000 stiga múrnum Hækkunarferli Úrvalsvísitölunnar síðan á föstudag hélt áfram í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan rauf 7.000 stiga múrinn nánast um leið og markaðir opnuðu í morgun og stóð í sléttum 7.000 stigum í lok dagsins. Úrvalsvísitalan hefur hækkað um rúm 9% frá áramótum, sem telst harla gott, að mati greiningardeildar Kaupþings. Í Hálffimm fréttum segir, að ólíklegt sé að sami hækkunarhraði haldi áfram út árið, en það myndi þýða um 200% hækkun á ársgrundvelli. Greiningardeildin gerir ráð fyrir að Úrvalsvísitalan hækki um u.þ.b. 25% á árinu, en standist sú spá er ljóst að stór hluti hækkunarinnar er þegar kominn fram. Viðskipti innlent 29.1.2007 17:11
365 hf. hækkar hlutafé Stjórn 365 hf. ákvað á föstudag í síðustu viku að nýta hluta heimildar til hækkunar hlutafjár um rúma 82,1 milljón krónur. Hlutirnir verða afhentir Diskinum ehf. vegna leiðréttingarákvæðis í samningi Dagsbrúnar hf. (nú 365 hf.) við kaup á Senu ehf. í febrúar 2006. Viðskipti innlent 29.1.2007 12:21
Úrvalsvísitalan rýfur 7.000 stiga múrinn Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands rauf 7.000 stiga múrinn í dag og stóð hún í 7.031 stigi skömmu fyrir hádegi. Vísistalan fór í methæðir í síðustu viku þegar hún endaði í 6.930 stigum á mánudag fyrir viku, sem er hæsta lokagildi hennar frá upphafi. Eldra met, 6.925 stig, var sett þann 15. febrúar í fyrra. Viðskipti innlent 29.1.2007 11:48
Stýrivaxtahækkanir á enda? Seðlabanki Íslands mun á fimmtudag í næstu viku ákveða hvort breytingar verði gerðar á stýrivaxtastigi bankans. Stýrivextir standa nú í 14,25 prósentum. Greiningardeild Glitnis segir yfirgnæfandi líkur á því að bankinn ákveði að halda vöxtunum óbreyttum. Deildin spáir því að Seðlabankinn haldi stýrivöxtum óbreyttum fram í maí en muni eftir það lækka vextina nokkuð hratt. Viðskipti innlent 29.1.2007 11:35
Copeinca skráð á markað í kauphöllina í Ósló Gengi hlutabréfa í perúska lýsis- og mjölframleiðandanum Copeinca hækkaði um tæp 14 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins í kauphöllinni í Osló í Noregi í dag. Glitnir Securities, dótturfélag Glitnis í Noregi, stóð að baki skráningunni sem er fyrsta skráning Glitnis í erlenda kauphöll. Viðskipti innlent 29.1.2007 09:31
Actavis undirbýr næsta yfirtökuslag Merck hefur lýst því yfir að samheitalyfjahluti þess sé til sölu. Söluverð hefur ekki verið gefið upp en í erlendum fjölmiðlum hefur upphæðin fjórir til fimm milljarðar evra verið nefnd. Það samsvarar 360 til 450 milljörðum króna. Til samanburðar greiddi bandaríski lyfjarisinn Barr um 2,5 milljarða dala fyrir króatíska samheitalyfjafyrirtækið Pliva, sem Actavis missti af í yfirtökubaráttu í fyrrahaust. Það nemur um 175 milljörðum króna. Viðskipti innlent 27.1.2007 14:31
Plötuðu erlent fyrirtæki til að greiða sér tugi milljóna: Annar sagður hrokafullur en hinn sýndi iðrun Viðskipti innlent