Með gott fjárfestinganef 31. janúar 2007 07:00 Bala Murughan Kamallakharan Bala er meðlimur í viðskiptaþróunarteymi Glitnis sem leitar og vinnur að fjárfestingartækifærum fyrir bankann.
Bala Murughan Kamallakharan er meðlimur í viðskiptaþróunarteymi Glitnis sem gegnir því mikilvæga starfi að leita og vinna að fjárfestingartækifærum fyrir bankann. Þegar teymið hefur fundið réttu færin og bankinn hefur keypt nýtt fyrirtæki stýrir það samþættingarvinnunni sem fylgir í kjölfarið. Ólympíuleikarnir í Aþenu sumarið 2004 voru miklir áhrifavaldar í lífi Bala. Þar var hann staddur ásamt Esther Ágústu Berg, eiginkonu sinni, til að styðja við bakið á bróður hennar, Sigfúsi Sigurðssyni handboltakappa. Glitnir var styrktaraðili íslenska handboltalandsliðsins á leikunum og því var Bjarni Ármannsson, forstjóri Glitnis, einnig á svæðinu. Þeir Bjarni hittust því á leikunum og fóru að spjalla saman. Líklegast hefur Bjarna þótt bakgrunnur Bala eiga vel við í alþjóðastarfsemi bankans. Hann hefur mastersgráðu bæði í tölvunarfræði og hagfræði og hafði um alllangt skeið unnið hjá ráðgjafarfyrirtækinu Ernst & Young í Houston í Bandaríkjunum, bæði við ráðgjöf og kerfisinnleiðingu. Í lok árs árið 2005 hittust þeir Bjarni aftur í Washington og bauðst Bala í framhaldi af því vinna í viðskiptaþróun Glitnis. Í upphafi árs 2006 fluttu hjónin því frá Bandaríkjunum, þar sem þau kynntust fyrst og höfðu búið um árabil, til Íslands. Fjórða stærsta hagkerfi heimsBala er Indverji og bjó þar uns hann hélt vestur um höf til að leita sér menntunar. Flestir eru sammála um að vert sé að fylgjast vel með Indlandi. Þær miklu efnahagsumbætur sem eiga sér þar nú stað, í bland við mikinn mannfjölda og sterkt menntakerfi, hafa haft í för með sér gríðarlegar breytingar í landinu sem ekki sér fyrir endann á. Erlendar fjárfestingar hafa aukist hratt að undanförnu og er indverska hagkerfið nú þegar það fjórða stærsta í heimi. Ísland er enginn eftirbátur annarra þjóða þegar að þessu kemur. Hinn 26. febrúar í fyrra var íslenskt sendiráð opnað í Nýju-Delí í því miði að efla viðskiptasamband milli Íslands og Indlands. Íslensk fyrirtæki sýndu því mikinn áhuga og fóru fulltrúar 23 þeirra með í opinbera heimsókn til að vera viðstaddir opnunina og leita tækifæra. Nokkur íslensk fyrirtæki hafa þegar umfangsmikla starfsemi á Indlandi. Má þar nefna Actavis, Eskimo Models og Promens, dóttur-félag Atorku. Enn fleiri eru í því ferli að kanna markaðinn og leita að tækifærum, bæði til fjárfestinga og beinna viðskipta. Viðskipti milli Íslands og Indlands jukust nokkuð milli áranna 2005 og 2006. Árið 2005 námu þau samtals um milljarði króna en fyrstu ellefu mánuði ársins 2006 námu viðskiptin yfir 1,4 milljörðum króna. Helstu útflutningsafurðir eru fiskafurðir, lyf og hugbúnaður en mest er flutt inn af vefnaðarvörum, matvælum, gjafavöru og lyfjum. Tækifæri í smásölu og bankaþjónustuBala og fjölskylda hans kunna vel við sig á Íslandi. Hann hefur jafnvel aðlagast nógu vel til þess að fara út að hlaupa reglulega og segir hann kuldann ekki bíta á sér, jafnvel þótt nú sé hávetur og loftslagið talsvert ólíkt því sem er á æskuslóðum hans í Suður-Indlandi, þar sem hann bjó allt þar til hann flutti til Bandaríkjanna. Það eina sem hann hefur yfir að kvarta er tungumálafærni hans sjálfs því eitthvað þykir honum hægt ganga að ná tökum á íslenskunni. Indland er að mati Bala nánast óþrjótandi lind tækifæra. Hann segir kostina við að fjárfesta þar marga og mun fleiri en gallana. Þeir séu vissulega til staðar en megi þó auðveldlega forðast með því að finna gott fólk til að vinna með sem hafi góða staðþekkingu. „Þarna eru heilu markaðirnir fullir af tækifærum fyrir þá sem kunna að nýta sér þá. Á Indlandi býr stærsta millistétt heims og kaupmáttur hennar eykst hratt ár frá ári.“ Hann telur að þjónusta við þennan hóp fólks sé grundvöllur fyrir velgengni á Indlandi. Sérstaklega séu smásala og bankaþjónusta óplægðir akrar. „Til þess að millistéttin geti vaxið þarf hún bankanna við. Það eru fjölmargir bankar á Indlandi en mjög fáir þeirra einbeita sér sérstaklega að þjónustuhlutanum. Þetta kemur til af því að þá hefur aldrei skort viðskiptavini, ef einn gengur út eru alltaf tíu sem bíða við dyrnar. Í smásölunni eru jafnframt gríðarlegir möguleikar. Þar eru markaðskimar sem eru að mestu ónýttir.“
Mest lesið Arion banki og Kvika blása af samrunann Viðskipti innlent Eru karlmenn í jakkafötum á undanhaldi? Atvinnulíf Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Viðskipti innlent „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Sjá meira