Lífið

McCregor dæmir

Skoski leikarinn Ewan McGregor, Alexander Payne, leikstjóri The Descendants, og þýska leikkonan Diane Kruger eru hluti af níu manna dómnefnd kvikmyndahátíðarinnar í Cannes sem hefst 16. maí.

Lífið

Freyja í 2. sæti á European Cup

Freyja Sigurðardóttir fitnessdrottning með meiru og þriggja barna móðir landaði 2. sæti í Fitnessmótinu European Cup sem fram fór í Madríd á Spáni í dag. Freyja keppti í opnun flokki burtséð frá hæð keppenda. Freyja sigraði á Íslandsmótinu í Fitness 2012 á föstudaginn langa í Háskólabíói í fitnessflokki + 163 cm. Ég er búin að vera að keppa síðan árið 1999 en ég tek það samt fram að ég er bara 30 ára gömul. Veistu, þetta er svo mikið adrenalín-kikk að mæta á sviðið og alltaf að reyna að komast í betra og betra form. Að keppa er bara eitthvað sem ég fæ ekki nóg af, lét Freyja hafa eftir sér þegar Lífið ræddi við hana rétt fyrir páska.

Lífið

Kviknaktir á umslagi fyrstu plötunnar

„Við erum allir mjög spenntir fyrir útgáfunni, næstum eins og krakkar að bíða eftir jólunum,“ segir Víðir Björnsson, gítarleikari Kiriyama Family, um fyrstu plötu hljómsveitarinnar sem kemur út þann 7. maí. Platan hefur hlotið nafnið Kiriyama Family og mynd af kviknöktum meðlimum sveitarinnar prýðir plötuumslagið.

Lífið

Dylan fær Frelsisorðu

Bob Dylan verður heiðraður af forseta Bandaríkjanna í Hvíta húsinu í á næstunni. Hann fær afhenta æðstu orðu sem almennum borgara getur hlotnast í landinu, Frelsisorðuna.

Lífið

Clooney alveg sama

Stacy Keibler segir kærastanum, leikaranum George Clooney, vera alveg sama þótt hún klæðist íþróttafötum þegar þau fara út úr húsi.

Lífið

Bomban í myndinni hans Balta

Leikkonan Paula Patton leikur undir stjórn kvikmyndaleikstjórans Baltasars Kormáks í myndinni 2 Guns ásamt Mark Wahlberg og Denzel Washington. Patton er rísandi stjarna í Hollywood og þykir með fegurstu konum í heimi.

Lífið

Áttunda Bræðslan

Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystri fer fram í áttunda skiptið í sumar, helgina 26.-29. júlí. Fram koma Mugison, Valgeir Guðjónsson, Fjallabræður og Contalgen Funeral.

Lífið

Clooney og Crawford góðir vinir

George Clooney, 50 ára, og kærastan hans Stacy Keibler, 32 ára, voru mynduð þegar þau yfirgáfu veitingahús í Hollywood ásamt fyrirsætunni Cindy Crawford og eiginmanni hennar, Rande Gerber...

Lífið

Dótturfélagið opnar á Laugavegi

Vinkonurnar Kristín Ásta Matthíasdóttir og Oddný Jóna Bárðardóttir létu drauminn rætast og opnuðu tískuvöruverslunina Dótturfélagið á Laugaveginum með pompi og prakt í gær...

Lífið

Pallíettukjóll Lopez

Jennifer Lopez, 42 ára, var klædd í svartan pallíettukjól á tökustað American Idol í gær. Það leikur enginn vafi á því að útlit Jennifer vekur verðskuldaða athygli í hverjum einasta þætti. Í gær var hún stórglæsileg með uppsett hárið eins og sjá má í myndasafni. American Idol er á dagskrá Stöðvar 2 í kvöld klukkan 20:10. Sjá nánar Stöd2.is.

Lífið

Aflýsir öllum tónleikum

Sinead O‘Connor hefur aflýst öllum tónleikum sínum á þessu ári. Samband hennar og eiginmanns hennar hefur verið stormasamt og sjálf hefur hún átt við þunglyndi að stríða.

Tónlist

Beyoncé fallegasta konan

Lesendur tímaritsins People hafa kosið tónlistarkonuna Beyonce fallegustu konu í heimi. Í öðru sæti var gamanleikkonan Sofia Vergara en Charlize Theron lenti í því þriðja.

Lífið

Glæsilegar í galakjólum

Fyrirsætan Heidi Klum og leikkonan Dakota Fanning stilltu sér upp saman klæddar í glæsilega galakjóla skreytta steinum á góðgerðarsamkomu í gærkvöldi. Heidi var í ljósbláum kjól og Dakota í kampavínslituðum. Þá má einnig sjá Heidi með fallegan eldrauðan varalit í Empire State byggingunni í New York.

Lífið

Agent Fresco frumsýnir nýtt myndband

Nýtt tónlistarmyndband við lagið Tempo með hljómsveitinni Agent Fresco var frumsýnt núna klukkan tíu á þýsku síðunni motor.de. Myndbandið er kynning fyrir tónleikaferð hljómsveitarinnar um Evrópu í maí og júní. Myndbandið er unnið í samstarfi við Zetafilm.

Tónlist

Sambandið við Svein Andra fullreynt

Fyrirsætan Kristrún Ösp Barkardóttir sem eignaðist frumburðinn Baltasar Börk í byrjun mars vissi ekki hver faðir drengsins var fyrr en í vikunni sem leið. Hún ræðir meðgönguna, samband sitt við Svein Andra Sveinsson, föður drengsins, og bjarta framtíðina.

Lífið

Framhald á ævisögu

Tom Bower, sem skrifaði ævisögu Simons Cowell, segir að þeir Cowell séu enn þá vinir þrátt fyrir að ýmislegt vandræðalegt úr einkalífi Cowells hafi verið afhjúpað í sögunni, þar á meðal botox-notkun hans.

Lífið

Myndir frá Eskimo/Next-fyrirsætukeppni

Meðfylgjandi myndir voru teknar á Eskimo/Next-fyrirsætukeppninni sem fór fram í Hörpu á dögunum þar sem ellefu stúlkur tóku þátt. Það var átján ára menntaskólamær Gyða Katrín Guðnadóttir fór með sigur af hólmi. Í öðru sæti var Ólöf Ragna Árnadóttir og þriðja sætið hreppti Bríet Ólína Kristinsdóttir. Fyrirsætan Steinunn María Agnarsdóttir var valin Maybelline stúlkan. Stúlkurnar sýndu meðal annars föt frá Helicopter, Ýri, Zisku, Sævari, Kron by Kronkron, Rey og Spaksmannsspjörum og þóttu allar standa sig með prýði.

Lífið

Spilar sem plötusnúður

Elijah Wood ætlar að spila í fyrsta sinn sem plötusnúður utan Bandaríkjanna á tónlistarhátíð í Norður-Írlandi í júní.

Lífið