Lífið

Kaupir annað glæsihýsi á árinu

Poppsöngkonan Rihanna keypti glænýtt, fimm herbergja hús á Barbados fyrr á árinu og gaf móður sinni, Monicu Braithwaite. Nú er hún búin að kaupa annað glæsihýs – í þetta sinn fyrir sjálfa sig.

Lífið

Léttklædd í sólbaði korter í jól

Þýska ofurfyrirsætan Heidi Klum, 39 ára, setti mynd af sér á Instagram myndaforritið í vikunni. Eins og sjá má flatmagar fyrirsætan á ónefndri strönd og nýtur lífsins alla leið og það korter í jól. Þá má einnig sjá Heidi fullklædda í sjónvarpsviðtali.

Lífið

Borko og Tilbury blása til veislu í kvöld

Hljómsveitirnar Borko og Tilbury halda saman tónleika á Bar 11 í kvöld. Er um að ræða síðustu stóru tónleika beggja þessara sveita á árinu en báðar hljómsveitirnar sendu frá sér stórgóðar plötur sem hafa vakið talsverða eftirtekt bæði hér heima og erlendis.

Tónlist

Ástandið verra en mig grunaði

"Ég er í nettu sjokki eftir að hafa lesið þessa tölvupósta en ég fer yfir þá alla sjálfur persónulega og í gegnum þá sé ég sársaukann og raunirnar sem fólk hefur eða er að ganga í gegnum. Ástandið verra en mig grunaði," segir Heiðar Austmann útvarpsmaður og dagskrárstjóri FM957 en líkt og síðustu ár hefur útvarpsstöðin FM957 ákveðið að aðstoða fólk sem þarf á aðstoð að halda fyrir jólin.

Lífið

Ástfangin Janet Jackson

Söngkonan Janet Jackson, 46 ára, og unnusti hennar, milljónamæringurinn Wissam Al Mana, sáust versla saman á sunnudaginn var. Eins og sjá má fór vel á með parinu og það er ekki laust frá því að það klæði sig í stíl. Þá má einnig sjá Janet á rauða dreglinum glæsilega eins og ávallt.

Lífið

Logi uppseldur

"Ég átti að árita um helgina en bókin er uppseld," svarar Logi Bergmann höfundur bókarinnar Handbók hrekkjalómsins spurður hvernig honum gengur með bókina. "Þetta er bók um hrekki. Bæði mínar persónulegu sögur og svo er þetta líka fræðibók. Í henni er útlistun á hrekkjum, hvað gerir hrekk hrekk eins og aprílgöbb, íþróttahrekkir og hrekkir sem listgrein," svarar Logi spurður um hvað bókin fjallar. "Nýtt upplag kemur í verslanir í fyrramálið," bætir höfundurinn við áður en hann rýkur af stað. Logi áritar í Hagkaupum næstu helgi. Sjá meira um bókina hans Loga hér - Sena.is.

Lífið

Ragnari líkt við Agöthu Christie

Umsjónarmaður bókmenntaþáttarins books@transglobal á þýsku útvarpsstöðinni TIDE fer fögrum orðum um siglfirsku glæpasöguna Snjóblindu eftir Ragnar Jónasson og segir að rithöfundurinn Ragnar Jónasson græði á því að hafa þýtt fjórtán glæpasögur eftir Agöthu

Menning

Fólk ekki hrifið af litnum

Kelly Osbourne viðurkennir að fólki þyki háralitur hennar ekki fallegur. Sjónvarpsstjarnan hefur litað hárið á sér í sérstökum fjólugráum lit í nokkurn tíma.

Lífið

Kynþokkafyllsti maður heims fjölgar sér á næsta ári

„Það er opinbert! Tvær ótrúlega fallegar sálir eru í þann mund að færa aðra fallega sál inn í þennan heim,“ var skrifað á Facebook-síðu kyntröllsins Channings Tatum á mánudagskvöldið og mynd af honum og eignkonu hans Jennu Dewan-Tatum látin fylgja með.

Lífið

Romeo Beckham heillar í Burberry-auglýsingu

Í nýjustu auglýsingaherferð breska tískuhússins Burberry stelur ungur herramaður senunni en hann á ekki langt að sækja hæfileikana. Um er að ræða miðson Victoriu og Davids Beckham, Romeo Beckham. Hann er nýjasta andlit Burberry og þykir fara á kostum í herferðinni sem var frumsýnd í vikunni.

Lífið

Þjáðist af morgunógleði

Leikkonan Megan Fox eignaðist sitt fyrsta barn þann 27. september síðastliðinn. Hún segist hafa þjáðst af mikilli morgunógleði fyrstu mánuði meðgöngunnar.

Lífið

Sendi þýðinguna heim frá Jay Leno

„Þetta er eins og að vera með sæti í bestu röð að fylgjast með merkisviðburði,“ segir hljómborðsleikarinn Steingrímur Karl Teague úr hljómsveitinni Moses Hightower.

Tónlist

Fjölskyldumaður

Söngvarinn síungi Mick Jagger fagnaði því að hafa lokið tónleikaröð í tilefni af 50 ára afmæli sveitarinnar Rolling Stones með því að taka allsherjar fjölskyldudag í New York.

Lífið

Síðustu tónleikar Einars

Tónleikarnir Hátt í Höllinni sem verða haldnir í Laugardalshöll í kvöld með mörgum af vinsælustu flytjendum Íslands verða þeir síðustu sem Einar Bárðarson skipuleggur áður en hann tekur við starfi forstöðumanns Höfuðborgarstofu.

Lífið

Deadline hefur trú á Djúpinu

Djúpið er ein af fimmtán kvikmyndum sem bandaríska vefsíðan Deadline.com segir að sé líkleg til að komast í fimmtán mynda úrtak fyrir tilnefningarnar til Óskarsverðlaunanna. Tilkynnt verður um fimmtán mynda úrtakið á föstudaginn.

Menning

Alvöru Harlem-stemning í Tryggvagötunni

Mikill asi hefur verið við að umbreyta Þýska barnum í nýjan bar, Harlem, sem opnar á morgun. "Við fengum til liðs við okkur á annan tug ungra myndlistarmanna til að skreyta innviði staðarins með fjölbreyttri myndlist. Það gefur honum lifandi blæ og það er virkilega flott að sjá alla þessa ólíku stíla blandast saman,“ segir Steindór Grétar Jónsson.

Lífið

Leikin heimildarmynd um æskuár Páls Óskars

Ég er með forvarnastarf í grunnskólum sem er kallað Marita-fræðslan og við framleiddum svona mynd um Jónsa 2007, vegna afstöðu hans til vímugjafanotkunar þegar hann var unglingur og barn, og nú erum við að gera svipaða mynd um Pál Óskar," segir Magnús Stefánsson um tildrög þess að myndin um Pál Óskar varð til.

Menning

Stígandi í sölunni

Jólasýning með verkum margra þjóðþekktra listamanna stendur nú yfir í Smiðjunni Listhúsi að Ármúla 36. „Margir kaupa íslenska myndlist á þessum árstíma og því er talsvert að gera. Fólk vill gera fínt hjá sér og jafnvel breyta aðeins til. Málverk eru falleg og áberandi á heimilum og það er nokkuð algengt að hjón kaupi sér málverk saman og gefi sér í jólagjöf,“ segir Bjarni Sigurðsson, eigandi Smiðjunnar.

Menning

jólalög í vestri

Okkur þótti tímabært að bjóða til jólatónleika og vitum ekki til þess að vísitölufjölskylda að vestan hafi áður haldið tónleika saman,“ segir Theodóra Þorsteinsdóttir, skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Theodóra ætlar að syngja jólalög með eiginmanni sínum Olgeiri Helga Ragnarssyni og dætrunum Sigríði Ástu og Hönnu Ágústu í Borgarneskirkju í kvöld.

Lífið

Hollywood bregst við harmleiknum

Hin hörmulega skotárás á Sandy Hook-grunnskólann í Newport, Connecticut í síðustu viku hefur valdið ómældri reiði og sorg um allan heim. Alls liggja 27 manns í valnum eftir hinn tvítuga árásarmann, þar af tuttugu börn, ýmist sex eða sjö ára gömul.

Lífið

Rennblautur Tom Cruise

Tom Cruise, 50 ára, mætti í sjónvarpsþáttinn Late Night með Jimmy Fallon í gær. Eins og sjá má átti leikarinn ekki erfitt með að láta eins og kjáni þegar vatnsslagurinn byrjaði fyrir alvöru.

Lífið

Skildi glamúrinn eftir heima

Leikkonan Gwyneth Paltrow mætti á Heathrow-flugvöll í London á sunnudaginn með börnin sín tvö, Moses og Apple. Gwyneth sleppti því alveg að mála sig og var afskaplega venjulega klædd.

Lífið

Hryllilega horuð

Árið hefur ekki leikið leikkonuna Selmu Blair vel en stutt er síðan hún skildi við barnsföður sinn Jason Bleick. Selma lítur ekkert sérstaklega vel út þessa dagana eins og sést á meðfylgjandi myndum.

Lífið

Verst klæddar árið 2012

Ekki er langt þangað til þetta ár kveður okkur og hið nýja tekur við. Nú eru stjörnuspekúlantar byrjaðir að horfa um öxl og gera upp árið. Búið er að birta lista yfir verst klæddu konurnar árið 2012.

Tíska og hönnun