Lífið

Gaf kærastanum dýra gítara

Kristen Stewart gerði vel við kærasta sinn, Robert Pattinson, um jólin og gaf honum tvo gamla og verðmæta gítara í jólagjöf, Fender Jazzmaster frá 1959 og K&F Lap Steel frá 1947. Fyrir sögufræga gripina borgaði hún tæpa eina og hálfa milljón og þóttist nokkuð viss um að kærastinn yrði kampakátur með gjöfina. Ástæðan er sú að Pattinson hefur í hyggju að nýta sér ofurfrægð sína í kjölfar velgengni Twilight-myndanna og stefnir í stúdíó til að taka upp sína fyrstu breiðskífu.

Lífið

Seldu drykki

Systurnar Violet og Seraphina Affleck komu upp límónaði-sölubás fyrir framan hús sitt á þriðjudaginn var og seldu vegfarendum glas af ísköldu límonaði. Nokkrir papparassar keyptu einnig drykk af systrunum.

Lífið

Cruise á toppnum

Eftir fremur magra tíð með kvikmyndum á borð við Lions for Lambs, Knight and Day og Valkyrie er Tom Cruise kominn aftur á toppinn.

Lífið

Drive stendur upp úr

Kvikmyndaspekúlantar eru farnir að gera upp árið 2011 og velja bestu myndir ársins. Drive eftir danska leikstjórann Nicholas Winding Refn virðist vera fremst meðal jafningja.

Lífið

Dyggir aðdáendur gætu fengið sjokk

Hjaltalín mun flytja mikið af nýju efni á tónleikum á Faktorý í kvöld. Upptökur fyrir þriðju breiðskífu sveitarinnar hefjast í janúar. Nýja efnið er töluvert ólíkt því sem sveitin hefur gert áður, og lýsa hljómsveitarmeðlimir því sem dekkri útgáfu af Hjaltalín.

Lífið

Valdimar fjölgar sér

Hljómsveitin Valdimar, sem er leidd af hinum magnaða söngvara Valdimari Guðmundssyni, notaði jólahátíðina til að vinna óeigingjarnt starf í þágu fjölgunar mannkyns. Guðlaugur Guðmundsson bassaleikari eignaðist dreng hinn 21. desember og trompetleikarinn Margeir Hafsteinsson eignaðist dreng á jóladag. Mikil hamingja er í herbúðum hljómsveitarinnar og er von á að hún skili sér á næstu plötu hennar, sem gæti komið út á næsta ári.

Lífið

Herja á neftóbaksmarkað

Íslenska tóbaksfélagið hefur hafið framleiðslu og innflutning á neftóbaki. Framleiðslan fer fram hjá V2 Tobacco í Silkiborg í Danmörku og hefur tóbakið hlotið nafnið Skuggi. Sverrir Gunnarsson, sem stofnaði félagið í samstarfi við föður sinn, segir takmarkið vera að flytja inn fleiri tegundir tóbaks, meðal annars vafningstóbak, sígarettur og vindla. "Við erum enn að bíða eftir formlegu leyfi frá ÁTVR en ég hef enga trú á öðru en að það komi innan skamms. Ríkið má ekki mismuna fyrirtækjum sem það er sjálft í samkeppni við.“

Lífið

Hraðskreiðir bílar í sjöunda sinn

Hver hefði trúað því, þegar kvikmyndin The Fast and the Furious var frumsýnd fyrir tíu árum, að framhaldsmyndirnar yrðu hugsanlega sjö. En það virðist ætla að verða að veruleika enda sló fimmta myndin algjörlega í gegn, bæði hjá gagnrýnendum og hjá áhorfendum. Vin Diesel hefur staðfest að sagan fyrir sjöttu myndina hafi verið það umfangsmikil að nauðsynlegt var að klippa hana í tvennt og gera úr henni tvær myndir.

Lífið

Ísland dregið inn í grannadeilur í Eurovision

Ísland hefur óvænt verið dregið inn í deilur Armena og Asera vegna Eurovision-keppninnar sem fer fram í höfuðborg Aserbaídsjans, Bakú, í maí á næsta ári. Ísland er á sumum armenskum fréttamiðlum sagt hafa dregið sig úr keppni.

Lífið

Anna Mjöll sögð hafa sótt um skilnað frá Cal

Söngdívan Anna Mjöll Ólafsdóttir hefur sótt um skilnað frá eiginmanni sínum, Cal Worthington bílasala. Þetta er fullyrt á vefnum TMZ sem sérhæfir sig í fréttum af fræga og ríka fólkinu. Anna Mjöll og Cal giftu sig í apríl síðastliðnum. Anna Mjöll mun hafa sótt um meðlagsgreiðslur frá Cal, jafnvel þótt þau hafi ekki átt nein börn saman. Um fimmtíu ára aldursmunur er á hjónunum. Cal Worthington hefur auðgast verulega á bilasölum sínum en hann er þekktastur fyrir auglýsingar sem hann framleiddi sjálfur.

Lífið

Pabbi á ný

Stórleikarinn Robert De Niro og eiginkona hans Grace Hightower De Niro eignuðust sitt annað barn á dögunum og var það lítil stúlka sem hlaut nafnið Helen Grace. Stúlkan fæddist með aðstoð staðgöngumóður en fyrir eiga hjónin þrettán ára gamlan son, Elliot. De Niro er 68 ára gamall og Hightower er 56 ára gömul en þau hafa verið saman frá árinu 1987. De Niro á nú alls sex börn og er það elsta fertugt að aldri og því töluverður aldursmunur á því elsta og yngsta.

Lífið

Sherlock og barnapían

Tvær nýjar kvikmyndir verða frumsýndar um helgina, annars vegar önnur myndin um Sherlock Holmes með Robert Downey Jr. í hlutverki spæjarans og hins vegar gamanmynd með Jonah Hill í aðalhlutverki.

Lífið

Útgáfutónleikar á Kex

Hljómsveitin Low Roar, með tónlistarmanninn Ryan Karazija í broddi fylkingar, fagnar útkomu fyrstu breiðskífu sinnar með útgáfutónleikum á Kex hostel í kvöld. Low Roar mun flytja lög af samnefndri plötunni og leynigestir munu einnig taka lagið fyrir tónleikagesti.

Lífið

Áramótaheitin í Hollywood

Heimsbyggðin stundar það öll að lofa bót og betrun og strengja áramótaheit þegar að því kemur að kveðja liðið ár. Margt hefur verið skrifað um erfiðleika mannskepnunnar við að standa við háleitar fyriráætlanirnar, sem iðulega falla í gleymsku á fyrstu dögum nýja ársins.

Lífið

Dáir kettina sína

Leikarinn Robert Downey Jr. viðurkenndi nýverið að hann væri orðinn mikill kattamaður eftir að hafa ættleitt kettlingana Montgomery og Dartanian. Hann segir sambúðina með kettlingunum hafa breytt lífi sínu til hins betra og að hann gæti ekki hugsað sér lífið án þeirra.

Lífið

Engin væmin atriði í Seinfeld

Spurningakeppni verður haldin á Bakkusi við Tryggvagötu á fimmtudagskvöld þar sem viðfangsefnið er bandarísku gamanþættirnir Seinfeld sem nutu mikilla vinsælda á tíunda áratugnum.

Lífið

Fer fram á helming eigna eiginmannsins

Eiginkona körfuknattleikmannsins Kobe Bryant hefur sótt um skilnað frá íþróttastjörnunni eftir að upp komst að hann hefur haldið stöðugt framhjá henni undanfarinn áratug. Hjónin höfðu ekki skrifað undir kaupmála fyrir brúðkaupið og því getur Vanessa Bryant farið fram á helming eigna eiginmannsins.

Lífið

Hrotið yfir Heimsljósi

Hátíðarandinn sveif yfir vötnum í Þjóðleikhúsinu á annan dag jóla þegar frumsýning var á Heimsljósi Halldórs Laxness. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var meðal gesta eins og jafnan þegar stærstu verk leikársins eru frumsýnd.

Lífið

Kórinn var vinsælastur

Kór eiginkvenna breskra hermanna, Military Wives, bar sigur úr býtum í kapphlaupinu um vinsælasta lagið um jólin í Bretlandi.

Lífið

Trúlofuðust á jóladag

Matthew McConaughey hefur trúlofast kærustu sinni til síðustu fimm ára, brasilísku fyrirsætunni Camilu Alves. Leikarinn bar bónorðið upp á jóladag og fagnaði jákvæðu svari hennar með því að setja mynd af þeim að kyssast á Twitter. "Var að biðja Camilu um að giftast mér. Gleðileg jól," skrifaði hann.

Lífið

Sveinn Rúnar semur í Úkraínu

„Ég kom hingað fyrst 2005, rétt eftir appelsínugulu byltinguna," segir tónskáldið Sveinn Rúnar Sigurðsson. Hann er staddur í Úkraínu, nánar tiltekið í Kænugarði, að taka upp og semja tónlist. Sveinn Rúnar hefur aðsetur í hljóðverinu Coffein sem staðsett er í hjarta borgarinnar, en eiginkona tónskáldsins, María, er frá Úkraínu.

Lífið

Þúsund tölvunirðir hertaka Hörpu

EVE Fanfest hefur verið fastur liður í lífi leikmanna tölvuleiksins vinsæla, hátíðin á næsta ári á að vera sú glæsilegasta í sögunni og af þeim sökum hefur verið ákveðið að halda hana í tónlistar-og ráðstefnuhúsinu Hörpu dagana 22.-24. mars.

Lífið

O´Connor skilin eftir 18 daga hjónaband

Stórsöngkonan Sinead O´Connor hefur ákveðið að skilja eftir einungis átján daga hjóanband. Þau giftu sig í snarhasti í Las Vegas, en Adam var ekki lengi í Paradís. Af ástæðum sem þið munið öll skilja, ætlaði ég að halda þessu leyndu en mér hefur verið tilkynnt það í dag að þetta myndi leka út á næstu dögum," skrifaði O´Connor á vefsíðu sína. Hún hafi því viljað greina frá þessu sjálf. 0

Lífið