Innlent
Ólíkt mat á verkfallsvilja hótelstarfsfólks Samtök atvinnulífsins útiloka ekki að láta reyna á lögmæti boðaðra verkfallsaðgerða Eflingar fyrir Félagsdómi. Deiluaðilar funduðu sameiginlega í aðeins eina mínútu í dag og segist ríkissáttasemjari aldrei hafa kynnst deilu í öðrum eins hnút. Innlent 24.1.2023 19:19
Grunsamlegar mannaferðir í Grafarvogi og erfiður strætófarþegi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti fjölbreyttum verkefnum í dag. Tilkynningar um innbrot voru áberandi en önnur útköll tengdust meðal annars umferðaróhöppum, erfiðum strætófarþega og sofandi, heimilislausum manni í nýbyggingu. Innlent 24.1.2023 18:31
Starfsfólk hafi verið illa upplýst og það valið af Eflingu Framkvæmdarstjóri Íslandshótela segir Eflingu hafa dregið upp mjög einsleita mynd af stöðunni fyrir starfsfólk sem því miður hafi verið illa upplýst. Hart sé að ráðast á eitt fyrirtæki en þau hafi verið valin til að ná þeirri niðurstöðu sem Efling óskar. Hann býst ekki við því að starfsfólk samþykki verkfall en ef af því verður þurfi að koma í ljós hvort loka þurfi hótelum. Innlent 24.1.2023 18:15
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Samtök atvinnulífsins útiloka ekki að láta reyna á lögmæti boðaðra verkfallsaðgerða Eflingar fyrir Félagsdómi. Deiluaðilar funduðu sameiginlega í aðeins eina mínútu í dag og segist ríkissáttasemjari aldrei hafa kynnst deilu í öðrum eins hnút.Heimir Már Pétursson fylgdist með kjaramálum í dag og fer yfir þau í kvöldfréttum auk þess sem hann ræðir við forstjóra Íslandshótela – sem telur starfsfólk sitt ekki hafa áhuga á verkfalli. Innlent 24.1.2023 18:01
„Þá er hægur leikur að leyfa annan vopnaburð“ Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir skýringum frá Jóni Gunnarssyni dómsmálaráðherra, á því hvers vegna reglugerðarbreytingar sem snúa að því að veita lögreglumönnum rafbyssur hafi ekki verið teknar til umræðu innan ríkisstjórnar. Þingmaður Samfylkingar segir að ef hægt sé að leyfa rafbyssur án samráðs við ríkisstjórn sé hægur leikur að leyfa annan vopnaburð. Innlent 24.1.2023 17:40
Réðst á og kýldi starfsmann 66°Norður Ráðist var á starfsmann verslunar 66°Norður í Miðhrauni fyrir viku síðan. Árásarmaðurinn hafði reynt að ræna úr versluninni. Forstjórinn segir starfsmenn hafa gert allt rétt miðað við aðstæður og þakkar lögreglunni fyrir fagleg vinnubrögð. Innlent 24.1.2023 16:11
„Ég hef aldrei talað við þessa konu eða sent önnur eins skilaboð“ Lína Móey Bjarnadóttir, ekkja Johns Snorra Sigurjónssonar, er vægast sagt ósátt við fullyrðingu norsku fjallgöngukonunnar Kristinu Harila um að hafa fengið beiðni frá íslenskri konu um að klippa á taug á fjallinu K2 sem lík íslenska fjallgöngugarpsins hangir á. Innlent 24.1.2023 16:05
Íslandsbankasalan: Meirihlutinn felldi tillögu um lögfræðilegt álit Tryggvi Gunnarsson, fyrrverandi umboðsmaður Alþingis, telur að kanna hefði þurft betur ýmislegt varðandi það hvernig staðið var að sölunni á Íslandsbanka. Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar felldi tillögu minnihlutans um að fengið yrði lögfræðilegt álit. Innlent 24.1.2023 15:25
Gríðarleg fjölgun meðal útskrifaðra kennara hér á landi Á fimmta hundrað kennarar hafa útskrifast úr háskólum hér á landi undanfarin tvö ár. Það eru tæplega jafnmargir og árin fimm á undan. Menntamálaráðuneytið segir átaki stjórnvalda um fjölgun kennara að þakka. Innlent 24.1.2023 15:20
Útboð vegna snjómoksturs endaði með málaferlum Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur sýknað Akureyrarbæ af kröfum verktaka sem krafðist viðurkenningar á bótaskyldu vegna meintra brota á útboðsskilmálum og verksamningi aðila. Samningurinn var í framhaldi af útboði vegna snjómoksturs og hálkuvarna á Akureyri fyrir árin 2019 til 2022. Innlent 24.1.2023 15:11
Oddný Mjöll verður dómari við MDE eftir langa fæðingu Þing Evrópuráðsins kaus í dag Oddnýju Mjöll Arnardóttur dómara við Mannréttindadómstól Evrópu. Oddný Mjöll var ein af þremur sem tilnefnd voru sem dómaraefni af hálfu íslenskra stjórnvalda. Oddný tekur við af Róberti Spanó sem hefur verið fulltrúi Íslands hjá dómstólnum frá 2013. Innlent 24.1.2023 15:07
Sanna nýtur mestra vinsælda borgarfulltrúa Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins, er sá borgarfulltrúi sem Reykvíkingum finnst hafa staðið sig best á yfirstandandi kjörtímabili. Helstu breytingar á fylgi flokka frá því í kosningunum í fyrravor eru hjá Framsókn og Pírötum. Framsókn fer úr 18,7 prósentum niður í 8,2 prósent. Pírata fara úr 11,6 prósentum upp í 20,4 prósent. Innlent 24.1.2023 14:50
Fullyrðingar um hæfi biskups tilraun til að afvegaleiða umræðuna Lögmaður séra Gunnars Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknarprests í Digranesprestakalli, hefur dregið umboð og hæfi biskups í efa og kallað eftir úrskurði forseta kirkjuþings. Biskupsritari gefur lítið fyrir fullyrðingar lögmannsins og segir þær tilraun til að afvegaleiða umræðuna. Innlent 24.1.2023 13:01
„Þetta voru ungir strákar í blóma lífsins“ Ein erfiðasta og umfangsmesta leit sem lögregla og björgunarsveitir hafa farið í hér á landi var þegar lítil flugvél hvarf í byrjun febrúar 2022. Fjórir voru um borð í vélinni, vanur íslenskur flugmaður og þrír erlendir ferðamenn og áhrifavaldar. Dagana fyrir slysið höfðu þeir ferðast um landið með íslenskum vini sínum, Jóni Ragnari Jónssyni. Innlent 24.1.2023 12:10
Ríkissaksóknari og verjendur sammála að annmarkar hafi verið á dómi Landsréttar Hæstiréttur hefur fallist á beiðni verjenda í Rauðagerðismálinu svokallaða að málið fái meðferð fyrir æðsta dómstigi landsins. Lögmaður eins sakborninganna fagnar ákvörðun Hæstaréttar og mikilvægt að Hæstiréttur skoði þá annmarka sem voru á dómi Landsréttar. Innlent 24.1.2023 12:01
„Aldrei setið svona stuttan fund á ævinni“ Samningafundi samninganefnda Eflingar og Samtaka atvinnulífsins er lokið. Nefndirnar funduðu fyrst hvor í sínu lagi áður en sest var niður til fundar. Sá stóð aðeins yfir í skamman tíma. Rétt um eina mínútu. Innlent 24.1.2023 11:52
Hádegisfréttir Bylgjunnar Kjarasamningsviðræður og yfirvofandi verkfallsaðgerðir, útlendingafrumvarp og biskup Íslands verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. Innlent 24.1.2023 11:43
Samningafundur hafinn: „Viðbrögð atvinnurekenda gætu verið margslungin, til dæmis að semja við Eflingu“ Samningafundur Eflingar og Samtaka atvinnulífsins hófst í húsnæði ríkissáttasemjara í Borgartúni upp úr klukkan 11 í dag. Fyrir fund sagði Sólveig Anna í samtali við fréttastofu að samningaviðræður strandi fyrst og fremst á „þvermóðsku Samtaka atvinnulífsins“ og að „síendurteknar hótanir“ væru merki um örvæntingu. Innlent 24.1.2023 11:20
Réðst á samfanga á Hólmsheiði með eggvopni Fangi í fangelsinu á Hólmsheiði réðst í gærkvöldi á samfanga sinn með eggvopni. Hann reyndi að stinga hann í höfuðið en fórnarlambið slapp með skurð á höfðinu. Aðilar málsins tengjast deilum milli tveggja hópa sem fjölmiðlar hafa fjallað um undanfarna mánuði. Innlent 24.1.2023 09:07
Bein útsending: Opinn fundur um heimild lögreglu til að bera rafbyssur Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis kemur saman til opins fundar til að ræða heimild lögreglunnar til að bera rafbyssur. Innlent 24.1.2023 08:21
Ráðin verkefnastjóri þingflokks Framsóknar Sonja Lind E. Eyglóardóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri þingflokks Framsóknar. Hún hefur starfað sem starfsmaður þingflokksins frá árinu 2020. Innlent 24.1.2023 07:17
Falla frá því að fylgjast með og hvetja til öflugrar meðferðar „Þetta er stefnubreyting sem er að verða í heiminum, í Evrópu og Ameríku, og orsakast í grunninn af því að það eru að koma lyf sem eru raunverulegur valkostur vegna offitu, bæði hjá fullorðnum og börnum.“ Innlent 24.1.2023 07:03
Lögmaður Gunnars dregur í efa að biskup sé biskup Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður Gunnars Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknarprests í Digraneskirkju, hefur sent erindi á Drífu Hjartardóttur, forseta kirkjuþings, þar sem hún óskar eftir því að Drífa úrskurði um hæfi biskups til að taka ákvarðanir um Gunnar. Innlent 24.1.2023 06:49
Réðst á leigubílstjóra Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að leigubílstjóri óskaði aðstoðar vegna farþega sem hafði veist að honum með ofbeldi. Innlent 24.1.2023 06:15
Gekk matarlaus og svefnlaus að Machu Picchu vegna mótmæla Machu Picchu, einum vinsælasta ferðamannastað Perú, var lokað um helgina vegna yfirstandandi mótmæla gegn nýjum forseta landsins. Íslendingur í Perú segir mótmælin hafa víðtæk áhrif og ljóst að mikill ójöfnuður ríki í landinu. Innlent 23.1.2023 23:19
Fimmtíu ár frá upphafi Heimaeyjargossins: Forsetinn á óljósar minningar um áhyggjur og angist Vestmanneyingar minnast í dag fimmtíu ára afmælis Heimaeyjargossins. Forseti Íslands á óljósar minningar um áhyggjur og angist landsmanna þegar gosið hófst. Innlent 23.1.2023 22:20
Á hægum batavegi eftir að hafa greinst með dularfullt heilkenni Lembi Seia Sangla, aðstoðarleikskólastjóri á Egilsstöðum, var greind með gífurlega sjaldgæft og nánast óþekkt heilkenni fyrir tveimur árum. Síðan þá hefur hún unnið hörðum höndum að því að ná heilsu á ný. Heilkennið er kallað trismus og lýsir sér þannig að viðkomandi festist í kjálkanum og getur ekki opnað munninn nema takmarkað. Eins ótrúlega og það hljómar má rekja veikindin til tiltölulega hversdagslegrar aðgerðar: tanntöku. Innlent 23.1.2023 21:51
Íslenskt símanúmer spilaði lykilþátt í hvarfi 14 ára spænskrar stúlku Óskað var eftir aðstoð íslenskra lögregluyfirvalda í tengslum við hvarf 14 ára unglingsstúlku í Almería á Spáni í síðustu viku. Stúlkan fannst eftir að hafa verið týnd í fjóra daga og var í fylgd með 19 ára konu sem grunuð er um að hafa ætlað að fara með stúlkuna úr landi. Innlent 23.1.2023 21:10
Hluti nemenda haldi sig heima og aðrir komi með nesti vegna myglu Niðurstöður úr sýnatökum í Flataskóla í Garðabæ benda til þess að loka þurfi nokkrum rýmum í skólanum til viðbótar vegna myglu. Nemendur í þriðja og sjöunda bekk þurfa að halda sig heima næstu tvo daga og aðrir nemendur þurfa að taka með nesti vegna lokunar mötuneytis skólans. Innlent 23.1.2023 20:15
Hálkuvarnirnar fuku af í óveðrinu, landgangur mögulega ónýtur Mikið tjón varð þegar flugvél Icelandair rakst á landgang á Keflavíkurflugvelli í gær, landgangurinn er mögulega ónýtur og vængur vélarinnar skemmdur. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að atvikið verði rannsakað. Veðurofsinn hafi verið slíkur að hálkuvarnir hafi fokið af vellinum í gær. Innlent 23.1.2023 20:01