Innlent
Segir skipstjórnarmenn ekki vera að rjúfa samstöðu sjómanna Skipstjórnarmenn eru ekki að rjúfa samstöðu sjómanna með því að samþykkja nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi. Þetta segir formaður Félags skipstjórnarmanna, en niðurstaða atkvæðagreiðslu félagsmanna lá fyrir í gær. Innlent 11.3.2023 18:30
Mótmælendum bannað að mótmæla inni í Hörpu Þeim mótmælendum, sem hyggjast mótmæla förðun á sýningu Íslensku óperunnar, hefur verið meinað að mótmæla inni í Hörpunni sjálfri. Mótmælin hefjast því fyrir utan Hörpuna klukkan 19. Innlent 11.3.2023 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Skipstjórnarmenn eru ekki að rjúfa samstöðu sjómanna með því að samþykkja nýjan kjarasamning við Samtök fyrirtækja í Sjávarútvegi, segir formaður Félags skipstjórnarmanna, en niðurstaða atkvæðagreiðslu félagsmanna lá fyrir í gær. Við förum yfir málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. Innlent 11.3.2023 18:01
Jarðskjálfti í Mýrdalsjökli Í morgun kl. 7:02 varð jarðskjálfti af stærðinni 3,1 í vestanverðum Mýrdalsjökli. Innlent 11.3.2023 16:08
800 ný störf í Þorlákshöfn í kringum fiskeldi Fiskeldi á landi verður langstærsta atvinnugreinin í Þorlákshöfn en þar er gert ráð fyrir sex til átta hundruð nýjum störfum í kringum fiskeldi á næstu árum. Á sama tíma er gert ráð fyrir að verja 180 milljörðum króna til þessara framkvæmda Innlent 11.3.2023 13:04
Mesta frost frá árinu 1998 Mesta frost í Reykjavík í marsmánuði frá árinu 1998 mældist í morgun þegar frost fór niður í - 14,8°C. Innlent 11.3.2023 12:06
Segir tímalengd samningsins hafa setið í sjómönnum Formaður sjómannafélags Íslands segir það alls ekki hafa komið á óvart að kjarasamningur sjómanna við Samband félaga í sjávarútvegi hafi verið felldir með afgerandi hætti. Tveir af hverjum þremur sjómönnum greiddu atkvæði gegn samningnum Innlent 11.3.2023 11:53
Hádegisfréttir Bylgjunnar Formaður Sjómannafélags Íslands segir það alls ekki hafa komið á óvart að kjarasamningur sjómanna við Samband félaga í sjávarútvegi hafi verið felldir með afgerandi hætti. Tveir af hverjum þremur sjómönnum greiddu atkvæði gegn samningnum. Innlent 11.3.2023 11:46
Gaf sig á tal við lögreglu og sagðist hafa skallað annan mann og rotað hann Enginn er alvarlega slasaður eftir líkamsárásir næturinnar sem lýst var í dagbók lögreglu sem stórfelldum. Að sögn aðstoðaryfirlögregluþjóns áttu tvær árásanna sér stað á næturklúbbum í miðborginni en ekkert bendir til þess að þær tengist. Þriðja tilfellið var mögulega slys. Innlent 11.3.2023 11:42
Það fæst nánast allt í Bjarnabúð í Bolungarvík Bjarnabúð í Bolungarvík, ein elsta verslun landsins stendur alltaf fyrir sínu, enda mikið verslað í versluninni, en hún líkist einna helst gömlu kaupfélögum þar sem allt milli himins og jarðar fékkst. Innlent 11.3.2023 10:30
Fluttur á slysadeild eftir sprengingu í potti Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti fjölmörgum útköllum síðasta sólarhringinn. Farið var í 130 sjúkraflutninga og þar af 56 forgangsútköll. Þá var einn fluttur á slysadeild eftir sprengingu í potti í heimahúsi. Innlent 11.3.2023 10:03
Segir útskýringar óperustjóra hlægilegar Maður af asískum uppruna segir notkun á svo kallaðri „yellow face“ förðun hjá Íslensku óperunni kynda undir fordóma og segir útskýringar óperustjóra frá því í gær hlægilegar. Þá hefur leikari lýst því yfir að hann muni ekki fara í gervið í næstu sýningu. Innlent 11.3.2023 09:52
Minnst níu hafa látist í sundlaugum hérlendis Frá árinu 2000 hafa að minnsta kosti níu manns látist í sundlaugum hér á landi. Þrír hafa látist í sundlaugum á höfuðborgarsvæðinu á síðustu þremur mánuðum. Hafþór B. Guðmundsson sérfræðingur á sviði sund og björgunarmála hefur kallað eftir að komið verði á laggirnar sérstakri rannsóknarnefnd sundlaugarslysa. Innlent 11.3.2023 07:39
Þrjár stórfelldar líkamsárásir í nótt Þrjár stórfelldar líkamsárásir voru á meðal verkefna lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Talsvert var um hópasöfnun og slagsmál í miðborginni. Innlent 11.3.2023 07:20
Fólksbíll og flutningabíll í árekstri við Hólmsá Bílslys varð á brúnni yfir Hólmsá í Reykjavík í kvöld. Fólksbíll og flutningabíll sem var að koma úr gagnstæðri átt skullu þá saman. Innlent 10.3.2023 22:44
Jóhannes og Kristmundur nýir í stjórn Samtakanna '78 Á aðalfundi Samtakanna '78 sem fram fór í dag var kosið í þrjú sæti. Jóhannes Þór Skúlason og Kristmundur Pétursson koma nýir inn í stjórnina en Þórhildur Elínardóttir Magnúsdóttir var endurkjörin. Þá var Álfur Birkir Bjarnason endurkjörinn formaður. Innlent 10.3.2023 21:02
Allt frá kúkableyjum til sjónvarpa hent á opin svæði í náttúrunni Sjónvörpum, kúkableyjum og öllu þar á milli er iðulega hent á opið svæði í hraunið við Straumsvík í Hafnarfirði. Formaður bæjarráðs segir ástandið óþolandi. Kenningar séu um að umhverfissóðar reyni að komast hjá því að greiða gjöld til Sorpu. Innlent 10.3.2023 21:01
Vill ekki deila „kven-bálkesti“ sínum með blásaklausum Ragnari Formaður Eflingar segir formann VR ekki eiga neinn heiður af ákvarðanatökum hennar eða fyrirætlunum sem formaður félagsins. Sem kvenréttindakona krefst hún þess að hætt verði að reyna að klína ábyrgð hennar á menn úti í bæ. Innlent 10.3.2023 19:30
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum heyrum við í Valmundi Valmundssyni formanni Sjómannasambands Íslands en í dag felldu félagar í öllum sextán aðildarfélögum sambandsins nýgerðan kjarasamning með miklum meirihluta atkvæða. Samningnum var hafnað með 67 prósentum atkvæða en 32 prósent samþykktu samninginn. Hann þótti marka tímamót þótt ekki væri fyrir annað en gildistímann sem var tíu ár. Skipstjórnarmenn í Sjómannafélagi Íslands hafa hins vegar samþykkt samninginn. Innlent 10.3.2023 18:00
Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar hlaut tvenn blaðamannaverðlaun Blaðamannaverðlaunin voru veitt af Blaðamannafélagi Íslands í dag í Safnahúsinu við Hverfisgötu í Reykjavík. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar vann til tveggja verðlauna. Innlent 10.3.2023 17:37
Sjómenn hafna tímamótasamningi: „Mikil vonbrigði“ Öll aðildarfélög innan Sjómannasambands Íslands hafa fellt nýgerðan kjarasamning í atkvæðagreiðslu. Samningurinn var talinn vera tímamótasamningur enda gilti hann til tíu ára. Innlent 10.3.2023 16:41
Skjálfti upp á 3,8 austan Grímseyjar Jarðskjálfti upp á 3,8 varð fjórtán kílómetra austnorðaustur af Grímsey rétt fyrir klukkan fjögur síðdegis í dag. Skjálftahrina hefur verið á svæðinu síðan í nótt og hafa rúmlega sextíu skjálftar mælst. Innlent 10.3.2023 16:41
Frávísun í hryðjuverkamálinu staðfest með minnsta mun Landsréttur hefur staðfest frávísun á þeim köflum ákæru á hendur tveimur karlmönnum á þrítugsaldri er fjallar um hryðjuverk, tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilraun til hryðjuverka. Tveir dómarar Landsréttar vildu staðfesta frávísun úr héraðsdómi en einn vildi fella úrskurðinn úr héraði úr gildi. Héraðssaksóknari hefur þrjá mánuði til að gefa út nýja ákæru. Innlent 10.3.2023 15:53
Hótar endurtekið sprengjum, eltir lögmann og hrækir á lögregluþjóna Þrítugur karlmaður búsettur í Reykjanesbæ sem grunaður er um sprengjuhótanir á dögunum ásamt mikinn fjölda annarra brota hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 30. mars. Óhætt er að segja að um góðkunningja lögreglu sé að ræða. Innlent 10.3.2023 15:28
Einn á sjúkrahús eftir árekstur rútu og mjólkurbíls Bílstjóri rútunnar sem lenti aftan á mjólkurbíl á Þjóðvegi 1 við Þverá í Öxnadal fyrr í dag var fluttur á sjúkrahús. Meiðsli hans eru þó ekki talin alvarleg. Þrjátíu manna hópur ungmenna var um borð í rútunni. Innlent 10.3.2023 15:26
Dómari telur ekki forsendur til að refsa blaðamönnum Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur ákveðið að aðhafast ekkert við því að Vísir hafi birt fréttir af stóra kókaínmálinu á meðan fjölmiðlaumfjöllunarbanni dómara stóð. Þetta kemur fram í tölvupósti frá dómaranum til saksóknara og verjenda í stóra kókaínmálinu í dag. Dómari segir ekki forsendur til að aðhafast í málinu. Innlent 10.3.2023 14:49
Nú má heita Chloé og Gleymmérei Mannanafnanefnd samþykkti og færði alls þrettán nöfn á mannanafnaskrá í gær. Nefndin hafnaði einu nafni. Innlent 10.3.2023 13:36
Rúta og flutningabíll rákust saman Þjóðvegur 1 um Öxnadal í Hörgársveit er lokaður eftir árekstur rútu og flutningabíls. Innlent 10.3.2023 13:34
Líklegt að flakið sem fannst sé úr banaslysi fyrir fimmtán árum Margt bendir til þess að flak og líkamsleifar sem komu upp í togara úti fyrir strendur Reykjaneshryggs séu úr lítilli flugvél sem fórst á leiðinni frá Grænlandi til Íslands í febrúar 2008. Rannsóknarnefnd samgönguslysa og kennslanefnd munu taka málið til skoðunar þegar togarinn kemur í land eftir tæpar tvær vikur. Innlent 10.3.2023 12:54
Örmagnaðist á göngu Síðdegis í gær óskuðu tveir ferðamenn eftir aðstoð björgunarsveita. Ferðamennirnir voru á ferð að eða frá íshelli í Kötlujökli þegar annar þeirra örmagnaðist á göngunni. Innlent 10.3.2023 12:46