Erlent

Flugvél ferst

Talið er að nígerísk farþegavél, með 114 manns innanborðs, hafi brotlent í sjó í nótt samkvæmt fréttavef CNN. Það hefur þó ekki fengist staðfest. Vélin hvarf skömmu eftir flugtak í Lagos en þjóðerni farþeganna er ekki vitað. Vélin var á leið til Abuja, höfuðborgar landsins.

Erlent

Árásirnar réttlætanlegar

Um helmingur Íraka telur að árásir á bandaríska og breska hermenn séu réttlætanlegar. Þetta kemur fram í skoðanakönnun sem breska varnarmálaráðuneytið lét gera í ágúst síðastliðnum. Þá eru rúm 80 prósent Íraka mjög andvígir veru hernámsliðsins í Írak og segjast tveir af hverjum þremur óöruggari með sig vegna veru hernámsliðsins í landinu. Aðeins eitt prósent Íraka telur að landið sé nú öruggara en fyrir stríð.

Erlent

Fuglaflensuveira í Bretlandi

Fuglaflensuveiran er komin til Bretlands en hún greindist í dauðum páfagauki þar í landi í vikunni. Heilbirigðisráðherrann þar í landi segir þó ekkert að óttast.

Erlent

Ofbeldismenn skyldaðir í meðferð

Heimilisofbeldi er blettur á samfélaginu sem erfitt er að fást við. Hér á landi eiga konur, sem eru fórnarlömb slíks ofbeldis, skjól í Kvennaathvarfinu. Austurríkismenn hafa fundið aðra lausn á þessu máli.

Erlent

Tíminn að renna út

Gríðarlegir kuldar á skjálftasvæðunum í Pakistan gera hjálparstarfi erfitt fyrir. Útlit er fyrir að einungis helmingur þeirra, sem misstu heimili sín í hamförunum, fái tjald til að gista í.

Erlent

Nýr varnarmálaráðherra í Serbíu

Næsti varnarmálaráðherra Serbíu og Svartfjallalands verður Zoran Stankovic, fyrrverandi hershöfðingi. Fjölmiðlar í Serbíu vekja á því athygli í dag að Stankovic hafi á sínum tíma verið í tengslum við Ratko Mladic, fyrrverandi yfirmann herafla Bosníu-Serba, sem er í felum vegna fjölmargra stríðsglæpa á síðasta áratug. Þeirri spurningu er varpað upp, hvort hinn nýi varnarmálaráðherra fái það hlutverk að semja við stríðsglæpadómstólinn í Haag um framsal Mladic. Hann segist þó hvorki hafa séð Mladic né heyrt í honum síðastliðin sex ár og hafi ekki hugmynd um hvar hann felur sig.

Erlent

Nýr varnarmálaráðherra í Serbíu

Næsti varnarmálaráðherra Serbíu og Svartfjallalands verður Zoran Stankovic, fyrrverandi hershöfðingi. Fjölmiðlar í Serbíu vekja á því athygli í dag að Stankovic hafi á sínum tíma verið í tengslum við Ratko Mladic, fyrrverandi yfirmann herafla Bosníu-Serba, sem er í felum vegna fjölmargra stríðsglæpa á síðasta áratug.

Erlent

Tuttugu falla í Írak

Tuttugu uppreisnarmenn féllu í átökum við bandaríska hermenn skammt frá landamærum Íraks að Sýrlandi í morgun. Átökin blossuðu upp þegar hermennirnir gerðu húsleit í meintum fylgsnum erlendra al-Qaeda liða, að sögn talsmenna Bandaríkjahers. Hermennirnir munu meðal annars hafa fundið tvö stór vopnabúr og sprengjugerðarbúnað. Bandarískar hersveitir hafa undanfarið gert hríð að uppreisnar- og hryðjuverkamönnum í Efrat-dalnum en það er ein megin flutningsleið vopna frá Sýrlandi til Bagdad.

Erlent

Engin hjálp berst

Enn hefur engin hjálp borist til yfir þriðjungs þeirra sem lentu í jarðskjálftanum í Pakistan og á Indlandi í síðustu viku. Þetta segir Toby Porter, starfsmaður Barnaheilla sem staddur er í Pakistan. Hann segir að víða sé fjalllent og erfitt þar af leiðandi að lenda þyrlum. Björgunarmenn hafi því þurft að kasta niður vistum víða. Nú er ljóst að yfir 80 þúsund manns hafi látist í jarðskjálftunum og segja Sameinuðu þjóðirnar að sú tala muni að öllum líkindum tvöfaldast ef þjóðir heimsins taki sig ekki á og sendi enn frekari hjálp til hamfarasvæðanna.

Erlent

Fuglaflensan komin til Bretlands

Fuglaflensuveiran er komin til Bretlands en hún greindist í dauðum páfagauki þar í landi í vikunni. Heilbirigðisráðherrann þar í landi segir þó ekkert að óttast.

Erlent

Neyðarástand á Yukatanskaga

Fellibylurinn Wilma fer nú yfir Yukatanskaga í Mexíkó og flæðir gríðarlegur sjór yfir baðstrandarbæinn Cancun. Allt að átta metra djúpt vatn er á sumum svæðum.

Erlent

Einn slasaður í Salzburg

Að minnsta kosti einn slasaðist alvarlega þegar gashylki sprakk í miðborg Sazburg í Austurríki í dag. Sprengingin varð í íbúð við Bachstrasse þar í borg og var að sögn lögreglunnar gríðarlega öflug. Verið er að athuga hvort einhverjir fleiri hafi slasast í sprengingunni

Erlent

Eigandi næturklúbbs myrtur

Lögreglan í Lundúnum handtók í gærkvöldi tvo menn sem grunaðir eru um aðild að hrottalegu morði á tuttugu og fjögra ára gömlum manni sem rak vinsælan næturklúbb fyrir samkynhneigða. Hinir handteknu eru 33ja og 25 ára og voru þeir yfirheyrðir vegna málsins í nótt.

Erlent

Neyðarástand á Yukatan-skaga

Tugþúsundir hafa yfirgefið heimili sín í Mexíkó, á Kúbu og á Flórída vegna fellibylsins Vilmu og hefur neyðarástandi verið lýst yfir á Yukatan-skaga þar sem búist er við að Vilma komi að ströndum í dag. Vilma er nú orðin að fjórða stigs fellibyl og mun að öllum líkindum fara um Flórídaskaga á sunnudag.

Erlent

Gefa 20 milljónir til aðstoðar

Rauði kross Íslands ætlar að leggja tuttugu milljónir króna til neyðaraðstoðar í Pakistan, úr neyðarsjóði sínum. Ekki hefur verið veitt fé úr þeim sjóði síðan snjóflóðin féllu vestur á fjörðum og er það til marks um hversu alvarlegt ástandið er í Kasmír. Rauði kross Íslands hyggst jafnframt senda tvo starfsmenn til Pakistans.

Erlent

Mannræningjar slepptu blaðamanni

Rory Carroll, írski blaðamaðurinn sem mannræningjar tóku höndum í Írak í gær, hefur verið leystur úr haldi. Carroll var að koma út úr húsi þar sem hann hafði nýlokið viðtali við eitt fórnarlamba stjórnartíðar Saddams Hussein fyrir enska blaðið <em>Guardian</em> þegar byssumenn rændu honum.

Erlent

Langt frá því að vera nóg

Forseti Pakistans segir þá rúmlega þrjátíu og sjö milljarða króna, sem borist hafa frá alþjóðasamfélaginu vegna hamfaranna í Pakistan í síðustu viku, langt frá því að vera nóg. Segir hann að minnsta kosti þrjú hundruð milljarða króna þurfi til enduruppbyggingar á þeim svæðum sem verst urðu úti.

Erlent

Lögmaðurinn fannst myrtur

Lögmaður eins samstarfsmanna Saddams Husseins, sem ákærður er fyrir aðild að fjöldamorðum ásamt Hussein og sjö öðrum, fannst látinn í Bagdad, höfuðborg Íraks, í morgun. Lögmaðurinn var skotinn til bana en honum var rænt af skrifstofu sinni í Bagdad í gær. Ekki er nánar vitað um málið að svo stöddu en enginn hefur lýst verknaðinum á hendur sér.

Erlent

Senda hermenn til Pakistan

Sendiherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins samþykktu í dag að senda á bilinu fimm hundruð til þúsund hermenn og nokkrar þyrlur til Pakistan. Hermennirnir eiga að veita aðstoð við hjálparstarf á svæðunum sem urðu verst úti í jarðskjálftanum áttunda október, þegar fimmtíu þúsund manns að lágmarki létu lífið.

Erlent

Vinna sameiginlega gegn flensunni

Heilbrigðisráðherrar aðildarríkja Evrópusambandsins munu vinna sameiginlega að því að vinna bug á fuglaflensufaraldri í álfunni. Þetta kom fram á fundi sem ráðherrarnir héldu í gær.

Erlent

Rússnesku skipverjunum fagnað

Rússneskir fjölmiðlar fögnuðu skipverjum á rússneska togaranum Elektron sem þjóðhetjum þegar togarinn lagðist að bryggju í Múrmansk í gærkvöldi eftir sögulegan flótta undan norsku strandgæslunni síðan á laugardag. Norskir fjölmiðlar tala hins vegar um hetjudáð norsku strandgæslumannanna sem hafðir voru í gíslingu í togaranum í nokkra sólarhringa. 

Erlent

Hnífjafnt í Póllandi

Fylgi frambjóðendanna tveggja í forsetakosningunum í Póllandi er nánast hnífjafnt aðeins tveimur dögum fyrir síðari umferð kosninganna. Samkvæmt síðustu skoðanakönnunum er fylgi Donalds Tusks 48,8 prósent en fylgi Lechs Kaczynskis 50,2 prósent. Stjórnmálaskýrendur segja útilokað að spá fyrir um hvor stendur uppi sem sigurvegari.

Erlent

Skýrsla um morðið á Hariri

Sameinuðu þjóðirnar segja leyniþjónustur Sýrlands og Líbanons bera ábyrgð á morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons.

Erlent

Lögfræðingi Saddams rænt

Fyrrverandi lögfræðingi Saddams Husseins, sem ákærður hefur verið fyrir aðild að fjöldamorðum ásamt Hussein og 7 öðrum, var rænt af skrifstofu sinni í Bagdad í gær.

Erlent

Litlar líkur á alheimsvandamáli

Heilbrigðisyfirvöld Evrópusambandsríkjanna segja litlar sem engar líkur á að fuglaflensan verði að alheimsvandamáli. Engu að síður verði gripið til varúðarráðstafana.

Erlent

Áfengisauglýsingabann samþykkt

Bann við áfengisauglýsingum í norskri löggjöf samræmist EES-samningnum að sögn EFTA-dómstólsins. Þó sé nauðsynlegt að meta aðstæður í hverju landi fyrir sig.

Erlent

Sýrlendingum kennt um morðið

Stjórnvöld í Sýrlandi og líbanskir bandamenn þeirra fá á baukinn í skýrslu rannsóknarnefndar Sameinuðu þjóðanna sem segir allt benda til aðildar þeirra að morðinu á Rafik Hariri, fyrrverandi forsætisráðherra Líbanons, í febrúar síðastliðnum.

Erlent

64 prósent greiddu atkvæði

Sextíu og fjögur prósent atkvæðabærra Íraka greiddu atkvæði í kosningum um nýja stjórnarskrá landsins, sögðu talsmenn kjörstjórnar Íraks í dag. Svo virðist sem stjórnarskráin hafi verið samþykkt.

Erlent

Lífsýni tekið úr litla prinsinum

Lífsýni verður tekið úr litla prinsinum í Danmörku og varðveitt á Ríkissjúkrahúsinu. Danskt fyrirtæki, StemCare, hafði boðist til að varðveita blóðið í naflastreng litla prinsins til seinni nota en danska konungsfjölskyldan hefur afþakkað það með ofangreindum rökum.

Erlent

Dönsk ungmenni í djörfum leik

Dönsk lestarfyrirtæki segja það sífellt færast í aukana að ungmenni stundi þann lífshættulega leik að standa sem lengst á lestarteinum þegar lest kemur æðandi. Á undanförnum þremur árum hefur fjöldi tilfella þar sem næstum hefur verið keyrt á fólk meira en tvöfaldast.

Erlent