Erlent

Samstarfsörðugleikar í írösku ríkisstjórninni

Íraska ríkisstjórnin hefur skipst í tvær fylkingar vegna örlaga fólksins sem var rænt í mannráninu í gær. Segja margir þeirra að vígahópar öfgatrúarmanna hafi sýnt að ástandið í Írak er ekki jafngott og sumir vilja vera láta.

Erlent

Bandaríkin tilbúin til viðræðna við Íran vegna Íraks

David Satterfield, háttsettur ráðgjafi utanríkisráðherra Bandaríkjanna og umsjónarmaður málefna Íraks, sagði í dag að Bandaríkin væru tilbúin í viðræður við Íran varðandi ástandið í Írak en hvenær það myndi gerast væri óvíst.

Erlent

Nauðguðu og myrtu í Írak

Bandarískur hermaður hefur játað að hafa nauðgað fjórtán ára gamalli íraskri stúlku og hjálpað svo til að myrða hana og þrjá ættingja hennar.

Erlent

Hverjir rændu hverjum og hvers vegna ?

Ringulreiðin í Írak er slík að stjórnvöld virðast ekki hafa hugmynd um hversu mörgum mönnum var rænt úr menntamálaráðuneyti landsins í gær, né hversu margra er enn saknað. Menntamálaráðherrann er hættur þáttöku í ríkisstjórn Íraks, þartil gíslunum hefur verið sleppt.

Erlent

Geimhænsni Kentucky Fried

Kjúklingaveitingastaðurinn Kentucky Fried Chicken hefur breytt aðeins vörumerki sínu og í tilefni af því hefur verið gerð risastór mynd af Sanders ofursta á jörðinni, í Nevada fylki. Það er sagt fyrsta vörumerkið sem sést utan úr geimnum.

Erlent

Lolu gert að skila brókum Bonos

U2 söngvarinn Bono hefur unnið mál gegn fyrrverandi stílista hljómsveitarinnar. Lolu Cashman var gert að skila söngvaranum brókum hans, kúrekahatti og öðrum smáhlutum sem hún sagði að sér hefðu verið gefnir meðan hún starfaði fyrir hljómsveitina.

Erlent

Hæ pabbi...?

Þýskur kvensjúkdómalæknir hefur verið dæmdur til þess að greiða meðlag með barni til átján ára aldurs vegna þess að getnaðarvörn sem hann kom fyrir í móðurinni brást. Þýskir fjölmiðlar fordæma úrskurð dómstólsins.

Erlent

Flóðbylgjan í Japan reyndist lítil

Flóðbylgjan sem varað var við eftir jarðskjálfta norður af Japan, skall á norðurströnd landsins um hádegið, en reyndist ekki nema fjörutíu sentimetra há og olli engum skemmdum.

Erlent

Minniháttar flóðbylgja væntanleg við Japansstrendur

Flóðbylgjan skilar sér seinna en spáð var upp á Japansstrendur en ekki er lengur búist við að hún valdi miklum skaða. Ölduhæðin mun hugsanlega ná tveimur metrum á litlu svæði á norðurströnd Hokkaido en annars staðar verður hún í kringum hálfan metra.

Erlent

Mega sletta SMS-skammstöfunum á prófi

Framhaldsskólanemar á Nýja-Sjálandi mega nú nota SMS-styttingar á prófum, til jafns við fullgilda ensku. Skammstafanir eins og CU (í stað see you) og btw (stendur fyrir by the way, sem sagt "meðal annarra orða") eru nú fullgilt ritmál á prófum. Þannig ætla nýsjálenskir framhaldsskólar að halda í við nútímann, þó að málfarið sé illa séð víðast hvar.

Erlent

Velflestir gíslar fengu frelsi

Velflestir þeirra sem rænt var í menntamálaráðuneytinu í Bagdad í gær hafa nú verið látnir lausir eða frelsaðir af lögreglu. Ekki hefur fengist staðfest að allir gíslarnir hafi fengið frelsi.

Erlent

Flóðbylgjuviðvörun fyrir Japan og Rússland

Íbúar á Hokkaido- og Honshu-eyja í Japan hafa verið hvattir til að flýja frá ströndinni þar sem búist er við flóðbylgju eftir að jarðskjálfti upp á 8,1 á Richter varð neðjansjávar undan ströndum Chijima-eyja fyrir stundu. Varað er við að a.m.k. tveggja metra háar öldur geti skollið á norður- og austurströnd Japans, einnig gætu Rússar verið í hættu.

Erlent

Fullyrðir að ráðist verði á Íran

Sendiherra Ísraels, í Bandaríkjunum, segir að George Bush, forseti, muni ekki hika við að beita hervaldi ef ekkert annað dugi til þess að fá Írana ofan af því að smíða kjarnorkusprengjur.

Erlent

IKEA opnar á norðurhjara

Nyrsta IKEA-búð í heimi opnaði í dag í Haparanda í Svíþjóð þar sem nyrstu öldur Eystrasaltsins sleikja sandinn. Þetta lyftir hjörtum og vonum bæjarbúa og ekki síður tilkynning forstjóra IKEA að fyrirtækið muni veita 10 milljónum á ári næstu 10 árin til uppbyggingar í bæjarfélaginu. Þannig blæs fyrirtækið lífi í norðurbyggðir Svíþjóðar.

Erlent

Japanski hvalveiðiflotinn lætur úr höfn

Sex japönsk hvalveiðiskip lögðu úr höfn, í dag, ásamt 8000 tonna verksmiðjuskipi. Flotinn stefnir á Norður íshafið þar sem veiða á 860 hvali. Þar af eru 850 hrefnur og 10 langreyðar. Fjögur skip hvalfriðunnarsinna elta japönsku skipin.

Erlent

Kofi Annan gagnrýnir aðgerðaleysi í loftslagsmálum

Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna gagnrýnir skort á forystu og frumkvæði á loftslagsráðstefnu í Nairobi í Kenía sem helguð er baráttunni við hlýnun andrúmsloftsins. Í ræðu á ráðstefnunni kallaði hann loftslagsbreytingar eina af mestu ógnum heimsins. Hann sagði að efasemdarmenn um umhverfisvá hefðu "engin rök og engan tíma".

Erlent

Jacques Chirac íhugar framboð í þriðja skipti

Eiginkona Jacques Chiracs, forseta Frakklands, segir að hann sé enn að íhuga hvort hann eigi að bjóða sig fram í þriðja skipti í kosningunum sem haldnar verða í apríl á næsta ári. Bernadette Chirac, segir í blaðaviðtali að hann muni taka ákvörðun sína í byrjun næsta árs.

Erlent

13 ára brennuvargar á Akranesi

Lögreglan á Akranesi hefur upplýst tvo bruna sem urðu í bænum í júní síðastliðnum. Tveir 13 ára drengir reyndust hafa kveikt í á báðum stöðunum: í brettastæðum við Sementsverksmiðjuna og birgðastöð við Olís við Hafnarbraut. Drengirnir játuðu brot sín skýlaust við yfirheyrslur hjá lögreglu. Mál þeirra verður sent félagsmálayfirvöldum til umfjöllunar þar sem þeir eru ósakhæfir.

Erlent

Snjókoma um mitt sumar í Ástralíu

Snjórinn fellur víðar en hér á Íslandi um þessar mundir. Hitt er öllu óvenjulegra að það snjói á suðurhveli jarðar á þessum tíma árs. Þess vegna ráku íbúar í Viktoríu í Ástralíu upp stór augu í morgun þegar þeir þurftu að taka fram rúðusköfurnar um mitt sumar.

Erlent

Bemba sættir sig ekki við tap í forsetakosningum í A-Kongó

Þegar 90% atkvæða höfðu verið talin í Austur-Kongó hafði sitjandi forseti Joseph Kabila öruggan meirihluta með 60% atkvæða. Fyrrum uppreisnarleiðtoginn Bemba virðist samt ekki ætla að una þeim úrslitum því hans fyrstu viðbrögð eru að væna kjörnefndina um að hagræða úrslitunum og svíkja þar með austurkongósku þjóðina.

Erlent

10 ríki selja vopn til Sómalíu samkvæmt skýrslu SÞ

Nýbirt skýrsla Sameinuðu þjóðanna segir að 10 tiltölulega valdamikil ríki geri átök í Sómalíu möguleg með því að selja þangað vopn. Þeirra á meðal eru Sýrland og Íran, sem sögð eru selja vopn til íslamskra skæruliðahópa sem stjórna stórum hluta Sómalíu. Öll neita löndin ásökununum.

Erlent

Al Jazeera í loftið á ensku um hádegisbil

Arabíska sjónvarpsstöðin Al Jazeera telur nú niður í fyrstu útsendingu á ensku systurstöðinni, sem á að hefja útsendingar á hádegi í dag. Þessi alþjóðlega Al Jazeera mun senda út allan sólarhringinn frá Doha í Katar, Kuala Lumpur í Malasíu, Washington og London og segist munu sameina sjónarmið Miðausturlanda og útsendingargæði Vesturlanda.

Erlent

Flestir gíslarnir lausir í Bagdad

Velflestir gíslarnir sem rænt var í menntamálaráðuneytinu í Bagdad í gær hafa nú verið látnir lausir eða frelsaðir af lögreglu. Innanríkisráðuneytið getur ekki staðfest að allir séu lausir því ekki er vitað hversu mörgum var rænt í gær. Fyrstu tölur í gær voru ýktar, þeir munu hafa verið nær 50 en 100.

Erlent

Bangladess lamað vegna mótmæla og ofbeldis

Verkföll, vegatálmar og vígaleg mótmæli gegn kjörnefnd fyrir þingkosningarnar sem verða haldnar í janúar lama allt daglegt líf í Bangladess fjórða daginn í röð í dag. Tugþúsundir mótmælenda lokuðu helstu vegum og járnbrautarlínum og nær engin starfsemi hefur verið í höfnum eða landamærastöðvum síðan á sunnudag.

Erlent

Bush lætur ekkert uppi um Íraksmálið

Íraksnefndin hefur síðustu daga átt fundi með George W. Bush Bandríkjaforseta, Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og fleiri ráðamönnum. Bush segist hlakka til að sjá „áhugaverðar hugmyndir“ frá Íraksnefndinni.

Erlent

Vill byrja á Ísrael og Palestínu

„Stór hluti af lausninni á Íraksvandanum liggur ekki innan landamæra Íraks heldur utan þeirra,“ sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, í ræðu um utanríkismál sem hann flutti á mánudagskvöld.

Erlent

Fimmtíu á valdi mannræningja

Byssumenn, sem voru klæddir eins og lögreglumenn, rændu um fimmtíu starfsmönnum og gestum af einni skrifstofu menntamálaráðuneytis Íraks í Bagdad í gær.

Erlent