Erlent Laug til um krabbamein Einstæð móðir frá Wisconsin í Bandaríkjunum á yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsisvist fyrir að skrökva að vinum og samstarfsmönnum að hún væri með ólæknandi krabbamein. Erlent 2.12.2006 20:15 Dýrt að fara í vinnuna á Range Rover Breska samgönguráðuneytið íhugar að hækka gjöld á þá sem aka bílum sínum í höfuðborg landins. Þeir þurfa þegar að borga fyrir að aka í miðborginni, en það gæti hækkað verulega á næstu árum. Erlent 2.12.2006 20:07 Tvennir síamstvíburar skildir að Það er ekki á hverjum degi sem síamstvíburar eru skildir að, hvað þá tvennir. Það gerðist þó í vikunni þegar læknar í Kína gerðu skurðaðgerð á 28 daga gömlum systrum frá Fujian-héraði sem voru samvaxnar á búknum. Um svipað leyti hófu sádiarabískir læknar að skilja að írösku systurnar Fatimu og Zöhru en þær eru tíu mánaða gamlar. Erlent 2.12.2006 20:00 Castro hvergi sjáanlegur Fimm daga hátíðarhöldum vegna áttræðisafmælis Fidels Castro lauk í dag með hersýningu á heimsmælikvarða. Sökum veikinda var afmælisbarnið hins vegar hvergi sjáanlegt og það hefur gefið þeim orðrómi byr undir báða vængi að Castro liggi banaleguna. Erlent 2.12.2006 19:30 Tæplega hundrað liggja í valnum Óttast er að hátt í hundrað manns hafi farist þegar enn ein bílsprengjuárásin var gerð á sjíahverfi í Bagdad í dag. Síðastliðinn mánuður var sá mannskæðasti í Írak frá því að ráðist var inn í landið. Erlent 2.12.2006 18:50 Banni létt af Finnair vél Erlent 2.12.2006 17:17
Laug til um krabbamein Einstæð móðir frá Wisconsin í Bandaríkjunum á yfir höfði sér allt að fimmtán ára fangelsisvist fyrir að skrökva að vinum og samstarfsmönnum að hún væri með ólæknandi krabbamein. Erlent 2.12.2006 20:15
Dýrt að fara í vinnuna á Range Rover Breska samgönguráðuneytið íhugar að hækka gjöld á þá sem aka bílum sínum í höfuðborg landins. Þeir þurfa þegar að borga fyrir að aka í miðborginni, en það gæti hækkað verulega á næstu árum. Erlent 2.12.2006 20:07
Tvennir síamstvíburar skildir að Það er ekki á hverjum degi sem síamstvíburar eru skildir að, hvað þá tvennir. Það gerðist þó í vikunni þegar læknar í Kína gerðu skurðaðgerð á 28 daga gömlum systrum frá Fujian-héraði sem voru samvaxnar á búknum. Um svipað leyti hófu sádiarabískir læknar að skilja að írösku systurnar Fatimu og Zöhru en þær eru tíu mánaða gamlar. Erlent 2.12.2006 20:00
Castro hvergi sjáanlegur Fimm daga hátíðarhöldum vegna áttræðisafmælis Fidels Castro lauk í dag með hersýningu á heimsmælikvarða. Sökum veikinda var afmælisbarnið hins vegar hvergi sjáanlegt og það hefur gefið þeim orðrómi byr undir báða vængi að Castro liggi banaleguna. Erlent 2.12.2006 19:30
Tæplega hundrað liggja í valnum Óttast er að hátt í hundrað manns hafi farist þegar enn ein bílsprengjuárásin var gerð á sjíahverfi í Bagdad í dag. Síðastliðinn mánuður var sá mannskæðasti í Írak frá því að ráðist var inn í landið. Erlent 2.12.2006 18:50
Mannskæð árás í Bagdad Að minnsta kosti 43 liggja í valnum eftir að þrjár bílsprengjur sprungu nánast samtímis í miðborg Bagdad fyrr í dag. Bílunum sem sprengjunum hafði verið komið fyrir í var lagt við götumarkað sem sjía-múslimar sækja helst. Erlent 2.12.2006 16:09
Engin geislun þar sem Gaidar var Engin geislun hefur fundist á stöðum sem rússneski stjórnmálamaðurinn Yegor Gaidar heimsótti á Írlandi, áður en hann missti meðvitund í Maynooth háskólanum, þar sem hann var að kynna nýja bók sína. Írskur blaðamaður sem er fyrrverandi fréttaritari í Moskvu, segir að aðstoðarmenn Gaidars hafi tjáð sér að hann hafi verið orðinn veikur fyrir komuna til Írlands. Erlent 2.12.2006 16:07
Castro lét ekki sjá sig Mikilli hersýningu í tilefni af áttatíu ára afmæli Fidels Castro, er nú lokið á Kúbu án þess að leiðtoginn léti sjá sig. Með réttu eða röngu var litið á það sem mælikvarða á heilsu forsetans, og pólitíska framtíð, hvort hann myndi mæta eða ekki. Erlent 2.12.2006 15:30
Finnair þota kyrrsett vegna geislavirkni Rússnesk yfirvöld hafa kyrrsett flugvél frá Finnska flugfélasginu Finnair, eftir að geislun mældist þar um borð. Vélin átti að fara frá Moskvu til Helsinki. Erlent 2.12.2006 14:27
Mannskæð umferðarslys á Indlandi Þrjátíu og þrír létu lífið og fimmtán slösuðust þegar 150 ára gömul brú sem verið var að rífa, hrundi ofan á járnbrautarlest sem keyrði fyrir neðan hana, á Indlandi í dag. Erlent 2.12.2006 12:58
Sex hundruð taldir af Nánast engar líkur eru taldar á að fleiri finnist á lífi í eðjunni við rætur eldfjallsins Mayon á Filippseyjum en miklar aurskriður féllu úr því í fyrrinótt í kjölfar fellibyls sem gekk yfir eyjarnar. Erlent 2.12.2006 11:15
Castro ennþá veikur Hátíðarhöldum í tilefni áttræðisafmælis Fídels Castro Kúbuleiðtoga lýkur í dag með mikilli hersýningu í höfuðborginni Havana. Margt fyrirmenna er samankomið á Kúbu í tilefni afmælisins, þar á meðal Evo Morales og Daniel Ortega, forseta Bólivíu og Níkaragva, en sjálft afmælisbarnið hefur hins vegar enn ekki látið sjá sig. Erlent 2.12.2006 10:45
Pólóníum finnst í konu Litvinenkos Leifar af geislavirka efninu pólóníum 210 hafa fundist í Marinu Litvinenko, eiginkonu Alexanders Litvinenko, fyrrverandi KGB-njósnara sem lést úr eitrun í síðustu viku. Erlent 2.12.2006 10:15
Mótmælin standa enn Enn situr talsverður mannfjöldi í miðborg Beirútar, höfuðborgar Líbanons, sem krefst þess að ríkisstjórn Fuads Saniora, forsætisráðherra segi af sér. Erlent 2.12.2006 09:58
Mótmæli í Beirút Gríðarlega fjölmenn mótmæli stjórnarandstæðinga voru í Beirút í gær og mættu þau öflugum viðbúnaði stjórnarliða. Krafist var afsagnar forsætisráðherra. Fleiri mótmæli hafa verið boðuð næstu vikur. Erlent 2.12.2006 07:45
Mikil þörf fyrir ódýrari vodka Nauðsynlegt er að hefja á ný ríkisframleiðslu á vodka í Rússlandi, sem seldur yrði mun ódýrari en sá sem einkarekin áfengisfyrirtæki framleiða. Þetta segir Osman Paragulgov, formaður samtaka áfengisframleiðenda í Rússlandi. Erlent 2.12.2006 07:15
Banaði barni í örbylgjuofni Tuttugu og sex ára gömul bandarísk móðir hefur verið handtekin í Ohio í Bandaríkjunum, sökuð um að hafa banað mánaðargömlu barni sínu með því að stinga því í örbylgjuofn. Erlent 2.12.2006 06:30
Átta ára barn myrt í skóla Átta ára gamall drengur var myrtur í skóla sínum í bænum Hoogerheide í Hollandi í gær. Árásarmaðurinn var 22 ára gamall maður íklæddur síðum frakka og með hettu. Lögreglan handtók manninn skömmu síðar. Erlent 2.12.2006 05:00
Ódýrari alnæmislyf fyrir börn Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í Nýju-Delí á Indlandi á fimmtudag að stofnun hans hefði gert samning við lyfjafyrirtæki um að lækka verð á alnæmislyfjum ætluðum börnum um heim allan. Munu tvö indversk lyfjafyrirtæki leggja til 19 tegundir af algengum veirulyfjum, sem munu lækka um 45 prósent í verði. Erlent 2.12.2006 04:45
Farþegar voru ekki varaðir við æfingunni Æfing á viðbrögðum við flugráni á flugvellinum í Ulan Bator í Mongólíu snerist upp í skelfingu á miðvikudag þar sem gleymst hafði að vara bæði farþega og flugmenn vélarinnar við ósköpunum. Erlent 2.12.2006 04:00
Fimm ár fyrir morð Svíi á fimmtugsaldri var á fimmtudag dæmdur í fimm ára fangelsi í Taílandi fyrir morðið á þarlendri vændiskonu. Maðurinn játaði sök og stytti það dóm hans úr tíu árum í fimm. Hann viðurkenndi að hafa barið stúlkuna til bana í hótelherbergi sínu og reynt svo að fela lík hennar. Hann mun líklega afplána dóminn í Svíþjóð. Erlent 2.12.2006 03:45
Stimpingar í þingsalnum Felipe Calderon þurfti að sæta lagi til þess að geta tekið við forsetaembættinu í Mexíkó í gær af Vicente Fox. Andstæðingar Calderons á þingi reyndu hvað þeir gátu til að koma í veg fyrir athöfnina. Erlent 2.12.2006 01:45
Geislavirkt efni í Scaramella Ítalinn Mario Scaramella, sem hitti Alexander Litvinenko á veitingahúsi í London hinn örlagaríka 1. nóvember síðastliðinn, var með í líkama sínum „umtalsvert magn“ af geislavirka efninu pólón 210, sem varð Litvinenko að bana í síðustu viku. Þetta kom í ljós þegar Scaramella var skoðaður í gær. Erlent 2.12.2006 01:30
Castro fjarri eigin afmælishátíð Fidel Castro Kúbuleiðtogi hefur verið of veikur til þess að koma fram opinberlega á fimm daga afmælishátíð hans sjálfs, sem varð áttræður í sumar. Erlent 2.12.2006 00:45
Bandaríkin reyna að stilla til friðar í Sómalíu Bandaríkin hafa beðið öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um að styrkja stjórnina í Sómalíu með herliði frá Afríkubandalaginu sem myndi ekki innihalda hermenn frá nágrannaríkjum eins og Eþíópíu. Tillaga sem Bandaríkjamenn hafa gert leggur líka til að slakað verði á vopnasölubanninu sem Sómalía býr við svo að friðargæsluliðar geti komið með vopn til landsins og styrkt her þess. Erlent 1.12.2006 23:31
Röntgentæki á flugvöllum framtíðarinnar Alþjóðlegi flugvöllurinn í Phoenix í Arizona í Bandaríkjunum mun nú taka upp gegnumlýsingartæki sem nota á á farþega. Grunsamlegir farþegar verða þá beðnir um að standa fyrir framan það á meðan mynd er tekin af þeim og sést þá allt sem undir fötum manns er. Erlent 1.12.2006 22:44
Smokkur sem er spreyjað á Þýskir kynfræðslukennarar áætla að þróa smokk sem verður spreyjað á kynfæri karlmanna og á hann að passa á allar stærðir þeirra. Jan Vinzenz Krause frá þýsku Smokkastofnununni, sem er ráðgefandi aðili um notkun smokka, sagði að varan ætti að hjálpa fólki að lifa einfaldara og öruggara kynlífi. Erlent 1.12.2006 22:00
Calderon orðinn forseti Mexíkó Felipe Calderon var vígður í embætti sem forseti Mexíkó í dag. Athöfnin fór fram í þinghúsinu en stjórnarandstöðuþingmenn höfðu tekið sér stöðu í húsinu nokkrum dögum áður og klukkutíma fyrir athöfnina tóku þeir völdin og lokuðu hurðinni inn í þingsalinn. Calderon fór þá inn bakdyramegin ásamt fráfarandi forseta og var vígður á fáeinum mínútum og hljóp síðan aftur út. Erlent 1.12.2006 21:46
Lögreglumenn handteknir á Spáni Yfirvöld á Spáni hafa handtekið sjö manns, þarf af fjóra lögregluþjóna, í úthverfi Madrídar vegna gruns um að þeir hafi tekið þátt í sölu á sprengiefnum eins og þeim sem notuð voru í sprengjuárásinni á lestarkerfi Spánverja í mars 2004. Mennirnir eru einnig grunaðir um að selja eiturlyf. Erlent 1.12.2006 20:54