Erlent

Flutningaskipin seglum búin

Vindknúin flutningaskip verða tíð sjón í framtíðinni samkvæmt framtíðarsýn fallhlífaframleiðandans Skysails. Þar á bæ segja menn að segl með formi fallhlífar geti sparað flutningaskipum allt að 70 þúsund krónur á dag ef vindáttin er hagstæð. Seglin eru allt að 320 fermetrar að stærð og verða sett í sölu á næsta ári.

Erlent

Ekvador hallast til vinstri með nýjum forseta

Ekvador bættist í fylkingu vinstrisinnaðra Suður-Ameríkuríkja í dag þegar talningu lauk upp úr kjörkössum forsetakosninganna. Hagfræðingurinn Rafael Correa, vinur hins alræmda Hugo Chavez, forseta Venesúela, hlaut tæp 56,7% gildra atkvæða og vann óvéfengjanlegan sigur á bananakónginum hægrisinnaða Alvaro Noboa.

Erlent

Valdarán virðist í uppsiglingu

Svo virðist sem valdarán sé í uppsiglingu á Fiji-eyjum. Herinn afvopnaði í dag viðbragðssveitir lögreglu og einangraði höfuðborgina. Herforingi, sem hefur hótað því að ræna völdum, segir þetta aðeins gert til að koma í veg fyrir vopnuð átök á eyjunum.

Erlent

Fríverslunarviðræður eftir áramótin

Viljayfirlýsing um upphaf fríverslunarviðræðna milli Íslands og Kína var undirrituð í Peking í dag. Í gær var fyrsti áfangi íslenskrar hitaveitu tekinn í notkun í Kína. Miklar vonir eru bundnar við hitaveituna og er stefnt að því að hún verði sú stærsta í heimi.

Erlent

Verra en borgarastyrjöld í Írak

Fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir ástandið í Írak mun verra en borgarastyrjöld og telur líf almennra Íraka verra nú en þegar Saddam Hússein réð ríkjum í landinu. Hann segir innrásina í Írak hafa verið mikið áfall fyrir Sameinuðu þjóðirnar.

Erlent

Bretar endurnýja kjarnavopnabúr sitt

Bretar ætla að endurnýja allt kjarnavopnabúr sitt á næstunni, þar á meðal allan kjarnorkukafbátaflotann. Tony Blair, forsætisráðherra, sagði í dag að hinir bandarísku Trident kjarnaoddar verði áfram í vopnabúrinu en hins vegar verði kjarnaoddum fækkað um 20% og verði færri en 160 talsins og hugsanlega verði ekki keyptir nema þrír kafbátar í stað fjögurra.

Erlent

Ekki öruggara að nota handfrjálsan búnað

Hættan á umferðarslysum eykst þegar fólk talar í farsíma við akstur, óháð því hvort notaður er handfrjáls búnaður eða ekki. Þetta leiðir ný rannsókn á vegum rannsóknarseturs Danmerkur í samgöngumálum í ljós en greint er frá henni á vef Jótlandspóstsins.

Erlent

Dýrt spaug að kasta tertu í ráðherra

Karlmaður á þrítugsaldri var dæmdur í eins mánaðar fangelsi í Osló í dag fyrir að kasta rjómatertu í Kristinu Halvorsen, fjármálaráðherra Noregs, í október í fyrra þar sem hún var að ganga inn í ráðuneyti sitt.

Erlent

Pinochet látinn laus gegn tryggingu

Dómstóll í Chile hefur úrskurða að Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra landsins, verði látinn laus gegn tryggingu en hann var handtekinn í síðustu viku í tengslum við morð á tveimur andstæðingum hans í valdatíð Pinochets. Ákvörðun dómstólsins kemur degi eftir að Pinochet hlaut alvarlegt hjartaáfall.

Erlent

Verra en borgarastyrjöld

Kofi Annan, fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir ástandið í Írak mun verra en borgarastyrjöld. Hann segir jafnframt líf almennra Íraka verra nú en þegar Saddam Hussein stjórnaði landinu.

Erlent

Valdarán í uppsiglingu á Fiji-eyjum

Herinn á Fiji-eyjum afvopnaði í morgun viðbragðssveitir lögreglunnar í höfuðborginni Suva. Búið er að koma upp vegatálmum og einangra höfuðborgina. Talið er að herforinginn Frank Bainimarama ætli að ræna völdum en hann hefur hótað því segi forsætisráðherra eyjanna ekki af sér.

Erlent

Samskipti Rússa og Breta versna

Utanríkisráðherra Rússlands, Sergei Lavrov, sagði í dag að eitrunarmálið væri samskiptum Bretlands og Rússlands erfitt. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem hann hélt í Brussel í dag. „Að leggja of mikla áherslu á þetta mál er óásættanlegt og auðvitað hefur þetta slæm áhrif á samskipti okkar.“

Erlent

13 metra há jólageit

Í sænska bænum Gavle er sá siður á að fyrir jólin er reist 13 metra há geit sem gerð er úr hálmi og er hún síðan aðalsmerki bæjarins á meðan jólahátíðinni stendur. Hún hefur hinsvegar aðeins lifað af tíu sinnum af þeim 40 skiptum sem þetta hefur verið gert enda kitlar marga brunavarga í puttana þegar þeir sjá geitina.

Erlent

EU og Kasakstan í samstarf

Evrópusambandið samþykkti í dag samning um að hefja samstarf við Kasakstan í kjarnorkumálum en landið er þriðji stærsti framleiðandi úrans. Samningurinn kveður á um samstarf á friðsamlegri nýtingu kjarnorku á sviðum eins og öryggismálum, rannsóknum og þróunum sem og viðskiptum með kjarnaefni hvers konar.

Erlent

Um 70 talibanar felldir í Helmand-héraði í gær

Talsmenn herja Atlantshafsbandlagsins í Afganistan segjast hafa fellt um 70 uppreisnarmenn úr röðum talibana í kjölfar þess að hermönnunum var gerð fyrirsát nærri bænum Musa Qala í Helmand-héraði í suðurhluta landsins í gær.

Erlent

Djúpt á ástinni

Hvar myndir þú vilja gifta þig? Í kirkju, á fjallstoppi eða undir yfirborði jarðarinnar? 10 kínversk pör völdu það síðastnefnda og giftu sig í 300 metra djúpum námugöngum. "Að giftast manninum sem ég elska á vinnustað hans hefur mikla merkingu fyrir mér." sagði ein brúðurin aðspurð.

Erlent

40 ára fangelsi fyrir nauðgun

Bandarískur hermaður hefur verið dæmdur í 40 ára fangelsi fyrir að hafa nauðgað filippeyskri konu þann 1. nóvember síðastliðinn. Konan sagði að hún hefði verið ölvuð og að á meðan hefði maðurinn nauðgað henni en hann bar því við að kynmökin hefðu verið með hennar samþykki.

Erlent

Ástandið í Írak verra en borgarastyrjöld

Kofi Annan, fráfarandi framkvæmdastjór Sameinuðu þjóðanna, segir ástandið í Írak mun verra en borgarastyrjöld. Hann segir jafnframt að líf meðaljónins í Íraks sé nú verra en þegar Saddam Hussein stjórnaði landinu.

Erlent

Óþekkt fórnarlömb flóðbylgjunnar lögð til grafar

Stjórnvöld í Taílandi hafa ákveðið að grafa lík um 500 fórnarlamba flóðbylgjunnar sem gekk yfir svæðið fyrir nærri tveimur árum. Hingað til hafa þau verið geymd í kælibílum í þeirri von um að einhver eigi eftir að bera kennsl á þau en vegna mikils kostnaðar við það var ákveðið að grafa líkin í sérstökum kirkjugarði sem stjórnvöld hafa búið til.

Erlent

Filippseyjar í sárum

Spænskt lækna- og björgunarlið sögðu í dag ólíklegt að einhver myndi finnast á lífi fjórum dögum eftir að fellibylur sem gekk á land á Filippseyjum olli aurskriðum. Aurskriðurnar umkringdu og eyddu heilu þorpunum og sagði björgunarmaður sem var þar að störfum að leitarhundar fyndu eingöngu lík.

Erlent

Flugeldaverksmiðja springur

Tveir slökkviliðsmenn létu lífið í eldum sem geysuðu í flugeldaverksmiðju í suðuhluta Englands í gær. Flugeldar sprungu og sást reykurinn í margra kílómetra fjarlægð en verksmiðjan er um 100 kílómetra frá Lundúnum.

Erlent

Chavez endurkjörinn

Hugo Chavez, forseti Venesúela, sigraði í forsetakosningum í landinu en úrslitin voru birt í gær. Þegar að 78 prósent atkvæða höfðu verið talin var Chavez með 61 prósent þeirra, en meginandstæðingur hans, Manuel Rosales, með 38 prósent.

Erlent

Líf Pinochet hangir á bláþræði

Næstu 48 klukkustundirnar skera úr hvort Pinochet mun lifa eða ei og ekki verður ráðist í aðra skurðaðgerð á fyrrverandi hershöfðingjanum. Þessu lýsti yfirlæknir hjartadeildar hersjúkrahússins í Santiago yfir í nótt.

Erlent

Herinn á Fídjieyjum undirbýr valdarán

Herinn Á Fiji-eyjum afvopnaði í morgun viðbragðssveitir lögreglunnar í höfuðborginni Suva. Talið er að herinn sé að undirbúa væntanlegt valdarán en hershöfðinginn Frank Bainimarama hefur undanfarna vikur hótað því ef forsætisráðherra eyjanna segi ekki af sér.

Erlent

Rússar reiðir Bretum vegna bréfs Litvinenkos

Það andar köldu milli rússneskra og breskra stjórnvalda í kjölfar opinberrar birtingar á bréfi njósnarans, Alexanders Litvinenkos. Bréfið skrifaði Litvinenko á banabeði sínu en í því sakar hann Vladimír Pútín, forseta Rússlands, meðal annars um að hafa ráðið sér bana. Rússar eru sagðir reiðir Bretum fyrir að hafa ekki hindrað birtingu bréfsins.

Erlent

Úr stofufangelsi á sjúkrahúsið

Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í Chile, fékk hjartaáfall í gærmorgun og var í skyndi fluttur á sjúkrahús þar sem tvísýnt var um líf hans.

Erlent

Sprengingar í flugeldagerð

Gríðarlegar sprengingar urðu í flugeldaverksmiðju í Sussex, sunnanvert á Englandi, upp úr hádegi í gær. Tugir slökkviliðsmanna börðust við eld í verksmiðjunni lengi dags og eitthvað af fólki slasaðist, sumt alvarlega.

Erlent