Erlent Samúræji til bjargar! Lögreglan í bænum South Shields í Bretlandi er að reyna að hafa upp á dularfullum samúræja sem birtist upp úr þurru og hjálpaði tveimur lögreglumönnum að verjast þremur vopnuðum glæpamönnum og handtaka þá. Dularfulli samúræjinn hvarf síðan út í næturmyrkrið, sporlaust. Erlent 11.1.2007 22:45 Klósettfiskabúr? Þeir sem ætla sér að endurnýja baðherbergið hjá sér á næstunni gætu haft áhuga á því nýjasta í bransanum, klósett sem er líka fiskabúr. Klósettið, sem á frummálinu er kallað „Fish 'n Flush“, er gegnsætt og samanstendur af vatnskassa og fiskabúri. Erlent 11.1.2007 22:30 Átök í Líbanon Vígamenn múslima og líbanskar hersveitir börðust í dag í suðurhluta Líbanon og þurftu hundruð manna að flýja heimili sín vegna þess. Hefur fólkið meðal annars leitað sér hælis í moskum nálægt heimilum sínum. Samkvæmt heimildum meiddust tveir hermenn þegar á þá var skotið við leit í bíl og varð það upphafið að átökunum. Erlent 11.1.2007 22:15 NATO banar 150 talibönum Norðuratlantshafsbandalagið (NATO) skýrði frá því í dag að það hefði banað allt að 150 vígamönnum talibana í bardögum í austurhluta Afganistan síðastliðna daga. Herlið frá Pakistan hjálpaði til við undirbúning bardagans. Erlent 11.1.2007 21:47 Bangladesh frestar kosningum Yfirvöld í Bangladesh hafa frestað umdeildum kosningum sem áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi þar sem forseti millibilsstjórnar landsins sagði af sér í dag. Ástæðan fyrir afsögn hans er talin vera mikil gagnrýni á hann fyrir að undirbúa kosningarnar ekki nógu vel en talið er að afsögn hans eigi eftir að draga úr óstöðugleika í landinu. Erlent 11.1.2007 21:11 Refsiaðgerðir hafa ekki áhrif á Íran Yfirmaður leyniþjónustna Bandaríkjanna, John Negroponte, sagði í ræðu í öldungadeild Bandaríska þingsins í kvöld að Íran gæti staðið af sér þær efnhagsþvinganir sem alþjóðasamfélagið hefur sett á landið. Bandaríkjastórn bindur einmitt vonir við hið andstæða, nefnilega að Íran eigi eftir að láta undan þrýstingnum og hætta við kjarnorkuverkefni sín. Erlent 11.1.2007 20:53 Þingið rýmkar lög um stofnfrumurannsóknir Bandaríska þingið, sem nú er undir stjórn demókrata, greiddi í dag atkvæði með þeirri tillögu að aflétta takmörkunum á fjármögnun stofnfrumurannsókna sem George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hafði áður sett. Erlent 11.1.2007 20:29 Gates segir aukninguna til skamms tíma Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Gates, sagði við fréttamenn í dag að hann búist við því að aukningin á hermönnum í Írak myndi aðeins vara í nokkra mánuði fremur en ár. Erlent 11.1.2007 20:09 Búist við árekstri skips og borpalls í Norðursjó Björgunarsveitir þurfa að sækja starfsmenn olíuborpalls á Norðursjó þar sem stjórnlaust skip er við það rekast á hann samkvæmt fréttum frá strandgæslunni í Bretlandi. Alls voru 30 starfsmenn á borpallinum og er þegar búið að flytja 20 þeirra í land með þyrlum. Erlent 11.1.2007 20:02 Ruddust inn á ræðismannsskrifstofurnar Bandaríska ríkisstjórnin ætlar að fjölga í herliði sínu í Írak um rösklega tuttugu þúsund manns á næstu vikum í þeirri von að þar með dragi úr ofbeldinu í landinu. Hersveitir Bandaríkjamanna réðust inn í ræðismannsskrifstofur Írans í bænum Irbil í Norður-Írak í dag. Erlent 11.1.2007 18:45 Engin hætta á ferðum í Lundúnum Pakkinn sem varð til þess að breska lögreglan lokaði fjölfarinni götu í miðborg Lundúna í dag var ekki hættulegur. Lögregla rannsakaði málið og komst að því að ekki var um sprengju eða annað slíkt að ræða og var hann því fjarlægður og er nú verið að opna götuna á ný. Erlent 11.1.2007 17:57 Sprengjuógn í Lundúnum Erlent 11.1.2007 16:45 Kúrdar skamma Bandaríkjamenn Héraðsstjórn kúrda í Írak, fordæmdi í dag árás bandarískra hermanna á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Abril. Héraðsstjórnin sagði að þetta væri bæði brot á sjálfstæði héraðssins og alþjóðlegum reglum um friðhelgi. Erlent 11.1.2007 16:29 Lacrosse-leikmenn í faðernispróf Dómari í nauðgunarmáli hefur skipað þremur lacrosse-leikmönnum að gefa lífssýni til faðernisprófs eftir að kona sem nýverið eignaðist dóttur kærði þá fyrir að hafa nauðgað sér í gleðskap í Duke University í Bandaríkjunum. Lögfræðingar konunnar fóru fram á faðernisprófið í desember. Erlent 11.1.2007 16:22 Hjálpaði Bin Laden að flýja Afganski uppreisnarleiðtoginn Gulbuddin Hekmatyar sagðist í sjónvarpsviðtali í dag hafa aðstoðað Osama bin Laden að flýja þegar Bandaríkjaher lét sprengjum rigna yfir Tora Bora fjöllin, þar sem bin Laden hafðist við um tíma árið 2001. Erlent 11.1.2007 16:05 Kjötæta afhjúpuð Moira Cameron, sem er 42 ára undirforingi í breska hernum, mun á næstunni ganga í lið varðsveitarinnar við Tower of London. Ástæðan fyrir því að þetta þykir fréttnæmt er sú að varðsveitin hefur starfað frá árinu 1337 og Moira er fyrsta konan sem tekin er í sveitina. Erlent 11.1.2007 15:59 Bush harðlega gagnrýndur í þinginu Þingmeirihluti demókrata í báðum deildum bandaríska þingsins gagnrýnir harðlega áætlun Bush forseta um að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Þingmennirnir segja ákvörðun forsetans ganga á svig við vilja almennings og ráðleggingar æðstu hershöfðingja. Erlent 11.1.2007 15:39 Beckham skrifar undir samning við Los Angeles Galaxy Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham fer frá spænska liðinu Real Madrid í lok tímabilsins og gengur í raðir Los Angeles Galaxy. Beckham sagði í samtali við Reuters fréttastofan í dag að hann væri reiðubúinn að skrifa undir fimm ára samning við bandaríska félagið. Erlent 11.1.2007 15:11 Rice tekur hart á friðarspillum Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varaði í dag við því að Bandaríkin muni grípa til aðgerða gegn hverju því landi sem reyni að auka á ofbeldi og ójafnvægi í Írak. Aðeins eru nokkrir tímar síðan Bandaríkin réðust inn á ræðisskrifstofu Írans í norðurhluta Íraks. Erlent 11.1.2007 14:51 Yfir 100 hengdir til að hefna fyrir Saddam Hussein Yfir eitthundrað sjía múslimar hafa verið hengdir í ljósastaurum og símastaurum í Bagdad, í hefndarskyni fyrir aftöku Saddams Hussein. Hinir hengdu eru venjulegir óbreyttir borgarar, sem súnní múslimar safna saman í stóra hópa til að hengja opinberlega. Erlent 11.1.2007 14:40 Neyðarástand í Bangladesh Forseti Bangladesh hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu og sett á útgöngubann um nætur sem gilda skal fram að kjördegi, þann 22. janúar næstkomandi. Mikill pólitískur órói hefur verið í landinu þar sem stjórnarandstaðan sakar valdamenn um spillingu og áætlanir um kosningasvindl. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hættu í morgun við kosningaeftirlit sitt. Erlent 11.1.2007 14:27 Ég gaf skipanir um að drepa alla í þorpunum Efnavopna Ali, frændi Saddams Hussein, var kokhraustur fyrir rétti í dag, þar sem hann hefur verið kærður fyrir þjóðarmorð. Hann kvaðst hafa skipað hermönnum að drepa alla þá sem ekki hlýddu skipunum um að yfirgefa þorp sín, í herförinni gegn kúrdum árið 1988. Erlent 11.1.2007 14:02 Gengið gegn ofbeldi í New Orleans Íbúar New Orleans munu í dag ganga gegn ofbeldi í borginni, sem hefur farið stigvaxandi alveg frá því felllibylurinn Katrín skildi borgina eftir í rúst fyrir tæplega einu og hálfu ári. Ofbeldið heimtir að jafnaði um eitt líf á dag: níu eru látnir það sem af er ári. Erlent 11.1.2007 13:58 Loftárásir mistókust Bandaríkjamönnum tókst ekki að ráða af dögum þrjá af foringjum Al Kæda, sem reynt var að koma fyrir kattarnef með loftárásum á þorp í Sómalíu undanfarna daga. Háttsettur bandarískur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ennþá væri verið að eltast við þremenningana. Erlent 11.1.2007 13:45 Engar forsendur fyrir lýðræðislegum kosningum Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafa hætt við kosningaeftirlit í Bangladesh, þar sem embættismenn þeirra segja grunninn fyrir lýðræðislegar kosningar í landinu hruninn. Stórfylking stjórnmálaflokka hafði hótað að sniðganga kosningarnar og sakaði ráðandi aðila um að ætla að hagræða úrslitunum. Kosningarnar áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi. Erlent 11.1.2007 13:35 Fimm ár frá opnun Guantanamo-búðanna Fimm ár eru liðin frá því að fyrstu fangarnir komu til fangabúða Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu vegna gruns um aðild að hryðjuverkum. Af þessu tilefni efnir Íslandsdeild Amnesty International til útifundar á Lækjartorgi klukkan fimm í dag. Erlent 11.1.2007 13:15 Nei er ekkert svar Það er ekki óalgengt, í Bandaríkjunum, að svokallaðir hausaveiðarar frá stórfyrirtækjum fari í skóla til þess að leita að framtíðar starfsmönnum. Ekki er ekki heldur óalgengt að nemendur byrji að leita fyrir sér, og skrifa fyrirtækjum, þegar kemur að námslokum. Einn nemandi skrifaði eftirfarandi: Erlent 11.1.2007 13:15 Brak úr vélinni loks fundið Búið er að finna hluta af flaki indónesísku farþegaþotunnar sem leitað hefur verið síðan á nýársdag. Það voru fiskimenn á eynni Sulawesi sem fundu stélhluta með sama verksmiðjunúmeri og vélin hafði. Erlent 11.1.2007 13:00 Þrumufleygur frá Englandsbanka Erlent 11.1.2007 12:59 Umtalsverð fjölgun hermanna í Írak Demókratar á Bandaríkjaþingi segjast ætla að koma í veg fyrir að fleiri hermenn verði sendir til Íraks með því að neita ríkisstjórninni um fjárveitingar. George Bush greindi í gær frá þeirri ákvörðun sinni að tuttugu þúsund manna aukaherlið færi á næstunni til landsins til að binda enda á vargöldina þar. Erlent 11.1.2007 12:08 « ‹ ›
Samúræji til bjargar! Lögreglan í bænum South Shields í Bretlandi er að reyna að hafa upp á dularfullum samúræja sem birtist upp úr þurru og hjálpaði tveimur lögreglumönnum að verjast þremur vopnuðum glæpamönnum og handtaka þá. Dularfulli samúræjinn hvarf síðan út í næturmyrkrið, sporlaust. Erlent 11.1.2007 22:45
Klósettfiskabúr? Þeir sem ætla sér að endurnýja baðherbergið hjá sér á næstunni gætu haft áhuga á því nýjasta í bransanum, klósett sem er líka fiskabúr. Klósettið, sem á frummálinu er kallað „Fish 'n Flush“, er gegnsætt og samanstendur af vatnskassa og fiskabúri. Erlent 11.1.2007 22:30
Átök í Líbanon Vígamenn múslima og líbanskar hersveitir börðust í dag í suðurhluta Líbanon og þurftu hundruð manna að flýja heimili sín vegna þess. Hefur fólkið meðal annars leitað sér hælis í moskum nálægt heimilum sínum. Samkvæmt heimildum meiddust tveir hermenn þegar á þá var skotið við leit í bíl og varð það upphafið að átökunum. Erlent 11.1.2007 22:15
NATO banar 150 talibönum Norðuratlantshafsbandalagið (NATO) skýrði frá því í dag að það hefði banað allt að 150 vígamönnum talibana í bardögum í austurhluta Afganistan síðastliðna daga. Herlið frá Pakistan hjálpaði til við undirbúning bardagans. Erlent 11.1.2007 21:47
Bangladesh frestar kosningum Yfirvöld í Bangladesh hafa frestað umdeildum kosningum sem áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi þar sem forseti millibilsstjórnar landsins sagði af sér í dag. Ástæðan fyrir afsögn hans er talin vera mikil gagnrýni á hann fyrir að undirbúa kosningarnar ekki nógu vel en talið er að afsögn hans eigi eftir að draga úr óstöðugleika í landinu. Erlent 11.1.2007 21:11
Refsiaðgerðir hafa ekki áhrif á Íran Yfirmaður leyniþjónustna Bandaríkjanna, John Negroponte, sagði í ræðu í öldungadeild Bandaríska þingsins í kvöld að Íran gæti staðið af sér þær efnhagsþvinganir sem alþjóðasamfélagið hefur sett á landið. Bandaríkjastórn bindur einmitt vonir við hið andstæða, nefnilega að Íran eigi eftir að láta undan þrýstingnum og hætta við kjarnorkuverkefni sín. Erlent 11.1.2007 20:53
Þingið rýmkar lög um stofnfrumurannsóknir Bandaríska þingið, sem nú er undir stjórn demókrata, greiddi í dag atkvæði með þeirri tillögu að aflétta takmörkunum á fjármögnun stofnfrumurannsókna sem George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hafði áður sett. Erlent 11.1.2007 20:29
Gates segir aukninguna til skamms tíma Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Gates, sagði við fréttamenn í dag að hann búist við því að aukningin á hermönnum í Írak myndi aðeins vara í nokkra mánuði fremur en ár. Erlent 11.1.2007 20:09
Búist við árekstri skips og borpalls í Norðursjó Björgunarsveitir þurfa að sækja starfsmenn olíuborpalls á Norðursjó þar sem stjórnlaust skip er við það rekast á hann samkvæmt fréttum frá strandgæslunni í Bretlandi. Alls voru 30 starfsmenn á borpallinum og er þegar búið að flytja 20 þeirra í land með þyrlum. Erlent 11.1.2007 20:02
Ruddust inn á ræðismannsskrifstofurnar Bandaríska ríkisstjórnin ætlar að fjölga í herliði sínu í Írak um rösklega tuttugu þúsund manns á næstu vikum í þeirri von að þar með dragi úr ofbeldinu í landinu. Hersveitir Bandaríkjamanna réðust inn í ræðismannsskrifstofur Írans í bænum Irbil í Norður-Írak í dag. Erlent 11.1.2007 18:45
Engin hætta á ferðum í Lundúnum Pakkinn sem varð til þess að breska lögreglan lokaði fjölfarinni götu í miðborg Lundúna í dag var ekki hættulegur. Lögregla rannsakaði málið og komst að því að ekki var um sprengju eða annað slíkt að ræða og var hann því fjarlægður og er nú verið að opna götuna á ný. Erlent 11.1.2007 17:57
Kúrdar skamma Bandaríkjamenn Héraðsstjórn kúrda í Írak, fordæmdi í dag árás bandarískra hermanna á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Abril. Héraðsstjórnin sagði að þetta væri bæði brot á sjálfstæði héraðssins og alþjóðlegum reglum um friðhelgi. Erlent 11.1.2007 16:29
Lacrosse-leikmenn í faðernispróf Dómari í nauðgunarmáli hefur skipað þremur lacrosse-leikmönnum að gefa lífssýni til faðernisprófs eftir að kona sem nýverið eignaðist dóttur kærði þá fyrir að hafa nauðgað sér í gleðskap í Duke University í Bandaríkjunum. Lögfræðingar konunnar fóru fram á faðernisprófið í desember. Erlent 11.1.2007 16:22
Hjálpaði Bin Laden að flýja Afganski uppreisnarleiðtoginn Gulbuddin Hekmatyar sagðist í sjónvarpsviðtali í dag hafa aðstoðað Osama bin Laden að flýja þegar Bandaríkjaher lét sprengjum rigna yfir Tora Bora fjöllin, þar sem bin Laden hafðist við um tíma árið 2001. Erlent 11.1.2007 16:05
Kjötæta afhjúpuð Moira Cameron, sem er 42 ára undirforingi í breska hernum, mun á næstunni ganga í lið varðsveitarinnar við Tower of London. Ástæðan fyrir því að þetta þykir fréttnæmt er sú að varðsveitin hefur starfað frá árinu 1337 og Moira er fyrsta konan sem tekin er í sveitina. Erlent 11.1.2007 15:59
Bush harðlega gagnrýndur í þinginu Þingmeirihluti demókrata í báðum deildum bandaríska þingsins gagnrýnir harðlega áætlun Bush forseta um að fjölga í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Þingmennirnir segja ákvörðun forsetans ganga á svig við vilja almennings og ráðleggingar æðstu hershöfðingja. Erlent 11.1.2007 15:39
Beckham skrifar undir samning við Los Angeles Galaxy Enski knattspyrnumaðurinn David Beckham fer frá spænska liðinu Real Madrid í lok tímabilsins og gengur í raðir Los Angeles Galaxy. Beckham sagði í samtali við Reuters fréttastofan í dag að hann væri reiðubúinn að skrifa undir fimm ára samning við bandaríska félagið. Erlent 11.1.2007 15:11
Rice tekur hart á friðarspillum Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, varaði í dag við því að Bandaríkin muni grípa til aðgerða gegn hverju því landi sem reyni að auka á ofbeldi og ójafnvægi í Írak. Aðeins eru nokkrir tímar síðan Bandaríkin réðust inn á ræðisskrifstofu Írans í norðurhluta Íraks. Erlent 11.1.2007 14:51
Yfir 100 hengdir til að hefna fyrir Saddam Hussein Yfir eitthundrað sjía múslimar hafa verið hengdir í ljósastaurum og símastaurum í Bagdad, í hefndarskyni fyrir aftöku Saddams Hussein. Hinir hengdu eru venjulegir óbreyttir borgarar, sem súnní múslimar safna saman í stóra hópa til að hengja opinberlega. Erlent 11.1.2007 14:40
Neyðarástand í Bangladesh Forseti Bangladesh hefur lýst yfir neyðarástandi í landinu og sett á útgöngubann um nætur sem gilda skal fram að kjördegi, þann 22. janúar næstkomandi. Mikill pólitískur órói hefur verið í landinu þar sem stjórnarandstaðan sakar valdamenn um spillingu og áætlanir um kosningasvindl. Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hættu í morgun við kosningaeftirlit sitt. Erlent 11.1.2007 14:27
Ég gaf skipanir um að drepa alla í þorpunum Efnavopna Ali, frændi Saddams Hussein, var kokhraustur fyrir rétti í dag, þar sem hann hefur verið kærður fyrir þjóðarmorð. Hann kvaðst hafa skipað hermönnum að drepa alla þá sem ekki hlýddu skipunum um að yfirgefa þorp sín, í herförinni gegn kúrdum árið 1988. Erlent 11.1.2007 14:02
Gengið gegn ofbeldi í New Orleans Íbúar New Orleans munu í dag ganga gegn ofbeldi í borginni, sem hefur farið stigvaxandi alveg frá því felllibylurinn Katrín skildi borgina eftir í rúst fyrir tæplega einu og hálfu ári. Ofbeldið heimtir að jafnaði um eitt líf á dag: níu eru látnir það sem af er ári. Erlent 11.1.2007 13:58
Loftárásir mistókust Bandaríkjamönnum tókst ekki að ráða af dögum þrjá af foringjum Al Kæda, sem reynt var að koma fyrir kattarnef með loftárásum á þorp í Sómalíu undanfarna daga. Háttsettur bandarískur embættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að ennþá væri verið að eltast við þremenningana. Erlent 11.1.2007 13:45
Engar forsendur fyrir lýðræðislegum kosningum Sameinuðu þjóðirnar og Evrópusambandið hafa hætt við kosningaeftirlit í Bangladesh, þar sem embættismenn þeirra segja grunninn fyrir lýðræðislegar kosningar í landinu hruninn. Stórfylking stjórnmálaflokka hafði hótað að sniðganga kosningarnar og sakaði ráðandi aðila um að ætla að hagræða úrslitunum. Kosningarnar áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi. Erlent 11.1.2007 13:35
Fimm ár frá opnun Guantanamo-búðanna Fimm ár eru liðin frá því að fyrstu fangarnir komu til fangabúða Bandaríkjamanna við Guantanamo-flóa á Kúbu vegna gruns um aðild að hryðjuverkum. Af þessu tilefni efnir Íslandsdeild Amnesty International til útifundar á Lækjartorgi klukkan fimm í dag. Erlent 11.1.2007 13:15
Nei er ekkert svar Það er ekki óalgengt, í Bandaríkjunum, að svokallaðir hausaveiðarar frá stórfyrirtækjum fari í skóla til þess að leita að framtíðar starfsmönnum. Ekki er ekki heldur óalgengt að nemendur byrji að leita fyrir sér, og skrifa fyrirtækjum, þegar kemur að námslokum. Einn nemandi skrifaði eftirfarandi: Erlent 11.1.2007 13:15
Brak úr vélinni loks fundið Búið er að finna hluta af flaki indónesísku farþegaþotunnar sem leitað hefur verið síðan á nýársdag. Það voru fiskimenn á eynni Sulawesi sem fundu stélhluta með sama verksmiðjunúmeri og vélin hafði. Erlent 11.1.2007 13:00
Umtalsverð fjölgun hermanna í Írak Demókratar á Bandaríkjaþingi segjast ætla að koma í veg fyrir að fleiri hermenn verði sendir til Íraks með því að neita ríkisstjórninni um fjárveitingar. George Bush greindi í gær frá þeirri ákvörðun sinni að tuttugu þúsund manna aukaherlið færi á næstunni til landsins til að binda enda á vargöldina þar. Erlent 11.1.2007 12:08