Erlent
Nítján látnir eftir illviðri í Flórída Að minnsta kosti nítján eru látnir eftir að skýstrókar gengu yfir miðhluta Flórída í gær og skildu eftir sig slóð eyðileggingar. Verst var ástandið í bæðum Paisley þar sem þrettán létust og þá létust sex í bænum Lady Lake. Erlent 3.2.2007 09:54
Rottweilerinn sér um lömbin Þó svo að rottweiler hundar hafi á sér slæmt orðspor er einn þeirra að sýna fram á að þeir séu ekki svo slæmir. Hann hefur nefnilega tekið að sér að ala upp tvö lömb. Erlent 2.2.2007 23:30
Sérsveitir indíána elta uppi eiturlyfjasala Sérsveit bandarískra indíána hefur verið valin til þess að vakta landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Índíánarnir nota til þess tækni sem forfeður þeirra fullkomnuðu og foreldrar þeirra kenndu þeim síðan. Þeir eiga að rekja spor í eyðimerkurlandslaginu við landamæri ríkjanna tveggja til þess að hafa uppi á eiturlyfjasölum og smyglurum. Erlent 2.2.2007 23:07
Hamas fordæma friðarumleitarnir fjórveldanna Palestínska heimastjórnin, sem lýtur forystu Hamas samtakanna, fordæmdi í kvöld aðilana fjóra, eða fjórveldin, sem eru að reyna að miðla málum á svæðinu um þessar mundir. Það eru Bandaríkin, Evrópusambandið, Sameinuðu þjóðirnar og Rússland. Palestínumenn sögðu að Bandaríkin stjórnuðu þar öllu og að stefnan væri að refsa Palestínu. Erlent 2.2.2007 22:34
K-Fed boðið að vinna á Taco Bell Hjónaband hans endaði með skilnaði, enginn keypti plötuna hans og nú leikur hann sjálfan sig í sjónvarpsauglýsingum að vinna á hamborgarastað. Til þess að taka af allan vafa um hvort frægðarsól Kevin Federline sé að hníga til viðar bauð skyndibitakeðjan Taco Bell honum að vinna í klukkutíma á einum veitingastað þeirra. Erlent 2.2.2007 22:15
Viacom hótar YouTube Viacom Inc. krafðist þess í dag að vefsíðan YouTube fjarlægði fleiri en 100.000 myndbönd af vefþjónum sínum eftir að viðræður um dreifingu á efninu mistókust. Viacom á meðal annars í MTV og BET en samkvæmt tölum óháðs matmanns hefur verið horft á myndbönd með efni frá fyrirtækjum í eigu Viacom oftar en þúsund milljón sinnum. Erlent 2.2.2007 22:00
Öllum leikjum helgarinnar á Ítalíu frestað Ítalska knattspyrnusambandið skýrði frá því í kvöld að það hefði ákveðið að fresta öllum leikjum helgarinn í ítalska boltanum. Ástæðan er að lögreglumaður var myrtur í átökum milli áhangenda tveggja knattspyrnuliða í kvöld. Átökin áttu sér stað í leik Catania og Palermo en þau leika bæði í Serie A sem er efsta deild ítölsku deildakeppninnar í fótbolta. Erlent 2.2.2007 21:45
Ætlaði að selja leynilegar upplýsingar Kóka Kóla Bandarískur dómstóll dæmdi í dag fyrrum háttsettan starfskraft innan Kóka Kóla fyrirtækisins sekan fyrir að hafa ætlað að stela leyndarmálum frá Kóka Kóla og selja þau síðan Pepsí. Joya Williams, fyrrum aðstoðarkona yfirmanns alþjóðlegu deildar Kóka Kóla, gæti fengið tíu ára fangelsisdóm fyrir vikið. Hún sýndi engar tilfinningar þegar dómurinn var kveðinn upp. Erlent 2.2.2007 21:30
Bresk börn að læra um gróðurhúsaáhrif Börnin munu berjast í fremstu víglínu í baráttunni við gróðurhúsaáhrifin samkvæmt áætlunum sem bresk stjórnvöld ætla að birta á mánudaginn kemur. Hún inniheldur breytingar á námsskrá grunnskólabarna á aldrinum 11 til 14 ára og á að miða að því að mennta þau um gróðurhúsaáhrif og ábyrgð þeirra sem neytenda í því samhengi. Erlent 2.2.2007 20:45
Líkamsræktarstöð fyrir nakið fólk Hollendingar munu brátt geta lyft lóðum án íþyngjandi leikfimisklæðnaðar en í bænum Heteren í Hollandi mun líkamsræktarstöð fyrir nakið fólk opna á sunnudaginn kemur. Erlent 2.2.2007 20:30
Syndir upp Amasón-fljótið Slóveni á sextugsaldri ætlar að reyna óvanalegt uppátæki. Hann ætlar fyrstur manna að synda upp eftir öllu Amasón-fljótinu, 5400 kílómetra. Maðurinn, sem heitir Martin Strel, hóf ferðina í fyrradag og ætlar að vera kominn á leiðarenda eftir 70 daga. Erlent 2.2.2007 20:15
Bush mun biðja um 100 milljarða George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, mun biðja bandaríska þingið um 100 milljarða dollara aukafjárveitingu til þess að sjá um kostnað vegna veru hersins í Afganistan og Írak. Talsmenn ríkisstjórnar Bush sögðu síðar í dag að á næsta ári yrði upphæðin enn hærri, eða um 141 milljarður dollara. Erlent 2.2.2007 20:00
14 létu lífið í aftakaveðri í Flórída Fjórtán manns létu lífið og tugir slösuðust í aftakaveðri sem gekk yfir miðbik Flórída í Bandaríkjunum í dag. Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í fjórum sýslum í ríkinu, en hundruð heimila gjöreyðilögðust í þrumuveðri og skýstrókum. Erlent 2.2.2007 19:44
Svört framtíðarsýn Sjávarborð hækkar um allt að 58 sentímetra og hitastig um 6,4 gráður, fari sem horfir. Þetta kemur fram í skýrslu Alþjóðlegrar sérfræðinefndar Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar sem birt var í dag. Erlent 2.2.2007 19:17
Vann 550 milljónir í spilakassa John Bromley, 71 árs, setti 100 dollara í spilakassa í spilavíti í Nevada í Bandaríkjunum og áttaði sig ekki á því að hann hafði unnið tæpar átta milljónir dollara, eða tæplega 550 milljónir íslenskra króna, fyrr en sá sem sat við hlið hans sagði honum frá því. Erlent 2.2.2007 18:19
Olíufyrirtæki reyna að sverta loftslagsskýrslu Samtök sem eru styrkt af bandaríska olíufyrirtækinu Exxon Mobil buðu vísindamönnum og hagfræðingum háar greiðslur til þess að gagnrýna skýrslu sérfræðinga Sameinuðu þjóðanna um ástandið í loftslagsmálum í heiminum. Skýrslan kom út í París í dag. Erlent 2.2.2007 17:18
Punxsutawney Phil sá ekki skuggann sinn Múrmeldýrið Punxsutawney Phil sá ekki skuggann sinn þegar það var tekið úr búri sínu í bænum Punxsutawney í Pennsylvaníu ríki í Bandaríkjunum í dag. Það táknar að vorið eigi eftir að koma snemma. Erlent 2.2.2007 16:49
Jesúbúningar til sölu Embættismenn í Vatikaninu er sagðir fullir viðbjóðs eftir að sala á Jesúbúningum hófst á ítalíu. Búningurinn kostar tæpar 12 hundruð krónur og með honum fylgir þyrnikóróna úr plasti og gerviskegg. Faðir Vittorino Gorss prestur í Vatikaninu sagði að sala búninganna væri guðlast og móðgun við milljónir kristinna manna. Verslunareigandi sem selur búningana fyrir páskaföstuna sagðist ekki sjá vandamálið. "Þetta er bara hárkolla og gerviskegg." Erlent 2.2.2007 16:23
Forseti Gambíu segist geta læknað alnæmi Forseti Gambíu, Yahya Jammeh, tilkynnti í janúarlok að hann gæti læknað fólk af alnæmi og HIV á þremur til tíu dögum. Sérfræðingar í alnæmi og HIV um heim allan hafa fordæmt yfirlýsingu Jammeh og segja að hún gæti leitt til þess að smit aukist þar sem yfirlýsingin gæti gert sjúkdóminn léttvægan í augum almennings. Erlent 2.2.2007 16:01
14 fórust í óveðri í Flórída Fjórtán manns létu lífið og tugir slösuðust í aftakaveðri sem gekk yfir miðbik Flórída í Bandaríkjunum í dag. Hundruð heimila á svæðinu og ein kirkja gjöreyðilögðust í þrumuveðri og skýstrókum. Tré rifnuðu upp með rótum og raflínur eyðilögðust. Flutningabílar með dráttarvagna fuku út af einni aðalhraðbraut Florida og henni var lokað í nokkra tíma. Charlie Crist, ríkisstjóri Florida, hefur lýst fyri neyðarástandi í fjórum sýslum. Erlent 2.2.2007 15:22
Bardagar geysa í Ramadi Bandarískar hersveitir skutu 18 uppreisnarmenn til bana í bardögum í borginni Ramadi í Írak í morgun. Þeir gerðu líka loftárásir á höfuðstöðvar hryðjuverkahóps sem hefur staðið fyrir sjálfsmorðsárásum á óbreytta borgara. Talsmenn hersins sögðu að þeir hefðu fyrir því heimildir að leiðtogar hryðjuverkahópsins hefðu látið lífið í árásunum. Erlent 2.2.2007 14:15
Hamas og Fatah samþykkja vopnahlé Leiðtogar Hamas samtakanna og Fatah fylkingarinnar ákváðu eftir viðræður í morgun að endurvekja vopnahlé sín á milli. Vopnahléið var rofið í gær eftir harða bardaga á milli liðsmanna samtakanna. „Leiðtogar samtakanna tveggja hafa samþykkt að taka upp vopnahlé á ný.“ sagði í yfirlýsingu sem einn leiðtoga Hamas, Nizar Rayyan, las upp eftir sáttafund sem egypskir sáttasemjarar stóðu að. Yfirlýsingar sem þessar hafa venjulega ekki leitt til langvarandi friðar. Erlent 2.2.2007 14:00
Spilaðu eða deyðu Tuttugu og átta ára gamall hljómplötuútgefandi í Svíþjóð hefur verið handekinn fyrir að hóta að drepa útvarpsstjóra á á útvarpsstöðvum sem ekki spiluðu tónlist hans. Hann hótaði þeim bæði í síma og með því að setja öskjur með skothylkjum á tröppurnar á heimilum þeirra. Nöfn útvarpsstjóranna voru skrifuð á öskjurnar. Erlent 2.2.2007 14:00
Forseti Serbíu hafnar áætlun UN um Kosovo Forseti Serbíu, Boris Tadic, sagði í dag að Serbía mundi aldrei samþykkja sjálfstætt Kosovo. Þetta sagði hann í viðræðum við Martti Ahtisaari í dag. Ahtisaari er sérstakur erindreki Sameinuðu þjóðanna í Kosovo og lagði nýlega fram áætlun um framtíð héraðsins. Í henni felast tillögur sem Tadic segir að geti leitt til sjálfstæðis Kosovo síðar meir. Erlent 2.2.2007 13:42
Sonur Kim Jong Il í fríi í Macau Japönsk sjónvarpsstöð náði myndum af elsta syni Kim Jong Il, einræðisherra Norður-Kóreu, þar sem hann var við fjárhættuspil í Macau, eyju sem tilheyrir Kína og er þekkt fyrir spilavíti. Maðurinn sem heitir Kim Jong Nam neitaði því staðfastlega að vera sá sem hann var talinn og neitaði að svara spurningum ágengra japanskra fréttamanna um viðskiptabann á Norður-Kóreu. Erlent 2.2.2007 12:40
Kína fellir niður skuldir Líberíu Kínverjar hafa fellt allar skuldir Líberíu við Kína niður. Ellen Johnson-Sirleaf forseti Líberíu segir skuldaniðurfellinguna mikilvæga fyrir landið og biðlar til annara skuldunauta landsins að fylgja fordæmi Kínverja. Erlent 2.2.2007 12:05
Gleypti eitraðan peningaseðil Umferðarlögreglumaður frá Kenýa gleypti eitraðan peningaseðil til að koma í veg fyrir að vera handtekinn þegar lögreglumenn sem vinna að því að uppræta spillingu stóðu hann að mútuþægni. Spillingarlöggurnar leiddu umferðarlögguna í gildru með því að bjóða honum mútur þegar bíll þeirra var stöðvaður við vegtálma. Peningaseðlinum höfðu þeir hinsvegar dýft í efni sem getur verið eitrað til að auðkenna hann örugglega frá öðrum seðlum. Erlent 2.2.2007 11:42
Serbar hafna tillögu Sþ um Kosovo Serbar hafa algerlega hafnað tillögum Sameinuðu þjóðanna um framtíð Kosovo. Í þeim felst að héraðið verði skilið frá Serbíu og fái aðild að alþjóðlegum stofnunum. Það verði hinsvegar áfram undir alþjóðlegu eftirliti og NATO annist friðargæslu. Erlent 2.2.2007 11:16
Sarkozy með nauma forystu í Frakklandi Spennan magnast fyrir forsetakosningar í Frakklandi en Nicolas Sarkozy, frambjóðandi hægrimanna hefur nú afmáð forskot Segolene Royal sem er frambjóðandi sósíalista. Í byrjun árs leit allt út fyrir að Royal mundi leiða sósíalista til sigurs í kosningunum, henni skrikaði vart fótur í orðaskaki við sé reyndari pólitíkusa. Erlent 2.2.2007 10:59
Skelfileg framtíð Indlands Hlýnandi loftslag er þegar farið að taka þungan toll af Indlandi og það er verra í vændum. Eitt alvarlegasta vandamálið er að bráðnun jökla hefur tvöfaldast. Gangotri jökullinn sem hörfaði 19 metra á ári árið 1971 minnkar nú um 34 metra á ári. Bráðnun jöklanna í Himalayafjöllum mun hafa skelfilegar afleiðingar í framtíðinni. Erlent 2.2.2007 10:28