Erlent
Á fleygiferð um Norðurhöf Stærsta endurgerð víkingaskips sem smíðuð hefur verið liggur nú við landfestar í Kirkwall, höfuðstað Orkneyja. Á næstu dögum heldur fleyið úr höfn og siglir suður til Skotlands. Erlent 16.7.2007 15:04
Passið ykkur í Kaupmannahöfn Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur varað við hrottalegum erlendum vasaþjófum sem stunda iðju sína á járnbrautarstöðinni í hjarta borgarinnar. Þjófarnir rekast harkalega utan í fólk í rúllustigunum. Fólkið ber fyrir sig hendurnar til þess að detta ekki og í látunum hreinsa þjófarnir af því veski og önnur verðmæti. Erlent 16.7.2007 14:58
Beljuhlaupið í Pamplona? Spænskar stúdínur segja að mikið kynjamisrétti felist í hinu árlega nautahlaupi í Pamplona. Þáttakendur þar séu nær eingöngu karlmenn. Þær krefjast þess að tekið verði upp sérstakt konuhlaup þar sem nautunum verður jafnframt skipt út fyrir kýr. Erlent 16.7.2007 14:29
Leki í heimsins stærsta kjarnorkuveri Jarðskjálftinn sem skók Japan í nótt orsakaði leka í kjarnorkuverinu Kashiwazaki-Kariwa þar í landi. Kjarnaofn í verinu sprakk og vökvi sem inniheldur geislavirk efni lak úr honum. Erlent 16.7.2007 14:04
Deyr Harry Potter? Útgefendur Harry Potter bókanna munu verja yfir milljarði króna til þess að tryggja að örlögum galdrastráksins verði ekki lekið út áður en síðasta bókin um hann kemur út, eftir viku. Höfundurinn J. K. Rowling upplýsti á síðasta ári að tvær aðalpersónurnar myndu týna lífinu. Erlent 16.7.2007 13:50
Dauðadómar fyrir hópnauðganir Fimm unglingspiltar hafa verið dæmdir til dauða í Kína fyrir að nauðga yfir fjörutíu unglingsstúlkum á þriggja ára tímabili. Margir félagar þeirra fengu langa fangelsisdóma en yfir þrjátíu piltar voru í genginu. Erlent 16.7.2007 13:20
Sjö látnir eftir jarðskjálftann í Japan Að minnsta kosti sjö létust og 700 slösuðust þegar jarðskjálfti 6,8 á Richter skók norðvesturhluta Japan. Skjálftinn varð klukkan rúmlega eitt í nótt að íslenskum tíma. Almenningssamgöngur eru í lamasessi á svæðinu og átján þúsund heimili eru án rafmagns. Erlent 16.7.2007 12:37
Dómstólaráð Líbíu frestar ákvörðun til fjögur í dag Dómstólaráð Líbíu hefur frestað ákvörðun sinni um örlög heilbrigðisstarfsfólks sem dæmt var til dauða í síðustu viku fyrir að hafa smitað um 430 börn viljandi af HIV veirunni. Fólkið heldur fram sakleysi sínu og segist hafa verið pyntað þangað til það játaði. Úrskurður ráðsins verður kunngjörður klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma. Engin útskýring hefur verið gefin á frestuninni. Erlent 16.7.2007 11:51
35 stjórnarandstæðingar dæmdir í lífstíðarfangelsi í Eþíópíu Eþíópískur dómstóll dæmdi í morgun 35 stjórnarandstæðinga í fangelsi fyrir lífstíð fyrir aðild sína að mótmælum tengdum kosningunum árið 2005. Hundruð létu lífið í mótmælunum. Saksóknari hafði farið fram á dauðadóm í málinu en dómarinn tók þá ósk ekki til greina. Átta menn til viðbótar voru dæmdir í fangelsi frá 18 mánuðum til 18 ára. Erlent 16.7.2007 11:36
Skólagjöld í þjórfé Tvítug gengilbeina, Jessica Osborne, á Pizza Hut veitingastað í Bandaríkjunum datt í lukkupottinn fyrir stuttu þegar hún fékk töluvert hærra þjórfé en venjulega. Hún fékk tíu þúsund dollara þjórfé til þess að borga fyrir menntun sína. Peningarnir komu frá einstæðri konu og tveimur sonum hennar sem eru fastagestir á veitingastaðnum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá viðtal við stúlkuna. Erlent 16.7.2007 10:59
82 létust í tveimur sprengingum í Kirkuk í Írak í morgun Að minnsta kosti 82 létu lífið í tveimur bílsprengjuárásum í borginni Kirkuk í Írak í morgun. Önnur sprakk á vinsælum markaði og hin á verslunarsvæði í borginni. Að minnsta kosti 136 særðust í árásunum. Kirkuk er norður af Bagdad en þar létust 22 í sjálfsmorðsárás þann 7. júlí síðastliðinn. Erlent 16.7.2007 09:31
CBS gerir raunveruleikaþátt með börnum Bandaríska sjónvarpsstöðin CBS mun sýna nýjan raunveruleikaþátt næsta haust þar sem fylgst er með 40 krökkum, á aldrinum átta til 15 ára, í yfirgefnum draugabæ í Nýju-Mexíkó. Hlutverk krakkanna er að koma upp samfélagi sem gengur snuðrulaust fyrir sig. Erlent 16.7.2007 07:54
Ísland er besti staður í Evrópu að búa á Ísland leiðir lista yfir þau Evrópulönd sem eru færust um að sjá þegnum sínum fyrir löngu og hamingjusömu lífi. Eistland var neðst á listanum. Listinn var tekinn saman af samtökunum New Economics Foundation. Alls voru 30 Evrópulönd skoðuð. Erlent 16.7.2007 07:25
Barack Obama fær flest fjárframlög Barack Obama er sá frambjóðandi demókrata sem hefur sankað að sér flestum fjárframlögum í kosningabaráttu sinni. Hann fékk um 30 milljónir dollara, eða um 1,8 milljarða íslenskra króna, í framlög á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Hillary Clinton var rétt undir þeirri upphæð. Erlent 16.7.2007 07:20
Alþjóðakjarnorkumálastofnunin staðfestir lokun kjarnakljúfs Norður-Kóreu Alþjóðakjarnorkumálastofnunin staðfesti í nótt að Norður-Kórea hefði lokað kjarnorkuveri sínu í Yongbyon. Eftirlitsmenn stofnunarinnar sögðu að lokun kjarnorkuversins væri aðeins fyrsta skrefið í afvopnunarferli Norður-Kóreu. Verið sem nú var verið að loka framleiddi plútóníum sem hægt var að nota í kjarnorkusprengjur. Erlent 16.7.2007 07:13
Haneef haldið um sinn Yfirvöld í Ástralíu ákváðu í nótt að halda indverskum lækni, sem hafði verið tekinn í gæsluvarðhald vegna tengsla við sprengjutilræðin í Glasgow og Lundúnum, enn lengur í gæsluvarðhaldi. Mohamed Haneef var tólf daga í haldi lögreglu án þess að vera ákærður. Erlent 16.7.2007 07:10
Fimm fórust í jarðskjálfta sem skók Japan í nótt Sterkur jarðskjálfti skók norðvesturhluta Japan í nótt. Að minnsta kosti fimm fórust og fleiri en 200 slösuðust í skjálftanum sem var 6,8 á Richter skalanum. Fleiri hundruð heimili jöfnuðust við jörðu og björgunarsveitir leita nú að fólki í rústunum. Smellið á „Spila“ til þess að sjá myndir frá Japan. Erlent 16.7.2007 07:01
Tölvuunnin listaverk Á Rasterbator má búa til allt að 20 metra stór plaköt úr ljósmyndum á tölvutæku formi. Rasterbator er sniðugt viðfangsforrit á netinu, sem býr til risastórar eftirmyndir úr hvaða mynd sem er, sem hægt er að prenta út á nokkrum blaðsíðum og setja saman í plakat. Erlent 16.7.2007 01:00
Í lagi að bandaríski herinn fari Forsætisráðherra Íraka reynir að sannfæra umheiminn um að Írakar séu ekki eins háðir herliði Bandaríkjamanna og margir vilja láta. Á sama tíma eykst þrýstingur á bandaríkjaforseta heimafyrir að kalla herliðið sitt heim frá Írak. Erlent 15.7.2007 19:25
Pólskar hjúkrunarkonur taka niður tjaldbúðir sínar Hundruð pólskra hjúkrunarkvenna hættu í dag mótmælaaðgerðum sínum við skrifstofu pólska forsætisráðherrans. Þær höfðu sett upp tjaldbúðir fyrir utan skrifstofuna og eru nú að taka þær niður. Lögregla var með töluverðan viðbúnað þar sem hjúkrunarkonurnar áttu það til að stöðva umferð á svæðinu. Erlent 15.7.2007 17:23
Peres orðinn forseti Ísraels Shimon Peres tók í dag við embætti sem forseti Ísraels. Embættið er ekki ósvipað því íslenska að því leyti að um heiðursstöðu með takmarkað vald er að ræða. Peres hefur meðal annars fengið Friðarverðlaun Nóbels á löngum ferli sínum sem stjórnmálamaður. Erlent 15.7.2007 16:41
Harry Potter og Fönixreglan ráða Bandaríkjunum „Harry Potter og Fönixreglan“ náði toppnum í Bandaríkjunum um helgina og tók alls inn 77,4 milljónir dollara, eða um 4,7 milljarða íslenskra króna. Alls hefur myndin tekið inn, þá fimm daga sem hún hefur verið í sýningu, rúmlega 140 milljónir dollara, eða um 8,5 milljarða íslenskra króna. Erlent 15.7.2007 16:27
Franska lögreglan leitar morðingja sem flúði úr fangelsi Franska lögreglan leitar nú að dæmdum morðingja sem flúði á reyfarakenndan hátt úr fangelsi í suðausturhluta Frakklands seint í gærkvöldi. Erlent 15.7.2007 15:18
Sáttaráðstefnu frestað fram á fimmtudag Umfangsmikilli sáttaráðstefnu sem fram átti að fara í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í dag hefur verið frestað fram á fimmtudag. Skipuleggjendur ákváðu að fresta henni þar sem enn vantaði marga fundarmenn. Erlent 15.7.2007 14:56
66 handteknir í barnaklámsmáli á Spáni Lögreglan á Spáni skýrði frá því í dag að hún hefði lagt hald á 48 milljónir tölvumynda og myndbanda og handtekið 66 manns í tengslum við rannsókn á barnaklámi. Lögreglan vann með Interpol í málinu og fylgdist með þegar 5 þúsund skrám var hlaðið niður af netþjónum í Þýskalandi. Erlent 15.7.2007 14:18
Fóstureyðingar löglegar í Portúgal Lög sem heimila fóstureyðingu tóku gildi í Portúgal í dag. Nú mega konur láta eyða fóstri á fyrstu tíu vikum meðgöngu. Þjóðaratkvæðagreiðsla var haldin um lögin í febrúar síðastliðnum en hún var ógild vegna þess hversu fáir tóku þátt. Engu að síður tóku stjórnvöld tillit til úrslita kosninganna en 59,25% þeirra sem greiddu atkvæði vildu aflétta banninu. Erlent 15.7.2007 13:43
Gleymdu börnunum vegna tölvuleikjafíknar Ungt par sem var handtekið fyrir að vanrækja börnin sín tvö sagði tölvuleiki og internetið vera ástæðurnar fyrir vanrækslunni. Börnin, sem eru 22 mánaða strákur og 11 mánaða stúlka, voru alvarlega vannærð og nær dauða en lífi þegar þau voru færð á sjúkrahús. Erlent 15.7.2007 13:02
Talibanar í Pakistan rifta friðarsamkomulagi við stjórnvöld Herskáir stuðningsmenn talibana í Waziristan í norðvesturhluta Pakistan sögðu í dag að þeir hefðu rift friðarsamkomulagi sínu við stjórnvöld. Þeir saka stjórnvöld um að hafa brotið skilmála þess með því að gera áhlaup á Rauðu moskuna. Talibanar og al-Kaída njóta mikils stuðnings á svæðinu. Erlent 15.7.2007 11:40
Kínversk stjórnvöld passa upp á ástalíf námsmanna Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að breyta skipulagi danskennslu í skólum landsins til þess að koma í veg fyrir að nemendurnir verði ástfangnir og spilli þannig náminu. Dans var gerður að skyldufagi í kínverskum skólum til þess að reyna að stemma stigu við offitu. Erlent 15.7.2007 11:28
Líbanski herinn inn í Nahr al-Bared Líbanskar hersveitir fóru í fyrsta sinn inn í flóttamannabúðirnar Nahr al-Bared í morgun. Vitni sögðust hafa séð fána hersins yfir nokkrum sundurskotnum húsum í búðunum. Átökin á milli hersins og uppreisnarmanna í Fatah al-Islam hafa nú staðið í níu vikur. Erlent 15.7.2007 10:53