Erlent
Músum gróflega misboðið Turnuglustofn Danmerkur er í útrýmingarhættu vegna hinna miklu snjóa í landinu. Turnuglur veiða aðeins á nóttunni og lifa á músum. Vegna snjóalaga finna þær nú engar mýs. Erlent 16.12.2010 20:30
Blake Edwards er látinn Bandaríski leiksstjórinn Blake Edwards er látinn, 88 ára að aldri. Edwards lést úr lungnabólgu og var kona hans, leikkonan Julie Andrews honum við hlið þegar hann hélt yfir móðuna miklu. Erlent 16.12.2010 20:00
Julian Assange þakklátur Julian Assange, stofnandi Wikileaks, var lautinn laus gegn tryggingu í dag en dómari yfirréttar í Lundúnum staðfesti niðurstöðu undirréttar og hafnaði áfrýjun saksóknara. Assange ávarpaði fjölmiðla á sjötta tímanum fyrir utan Royal High Court. Erlent 16.12.2010 18:02
Hryðjuverkamenn vilja myrða á dönskum jólum Norska blaðið VG hefur heimildir fyrir því að Danmörk verði sérstakt skotmark hryðjuverkamanna um hátíðarnar. Leyniþjónusta Íraks hefur varað við því að til standi að gera hrinu árása í Evrópu og Bandaríkjunum. Erlent 16.12.2010 14:39
Demantadrottning krefst skaðabóta Grace Mugabe eiginkona einvaldsins Roberts Mugabe í Zimbabwe hefur höfðað mál á hendur dagblaðinu Standard þar í landi. Blaðið sagði frá diplomatapósti á WikiLeaks þar sem því var haldið fram að frú Mugabe hafi auðgast ógurlega á demantsnámum landsins. Erlent 16.12.2010 14:28
Assange laus gegn tryggingu Breskur dómari kvað upp þann úrskurð fyrir stundu að Julian Assange skyldi látinn laus gegn tryggingu. Mikið hefur verið spáð og spekúlarað hvað yrði um Assange. Það hefur nú komið í ljós að það voru alls ekki sænsk yfirvöld sem lögðust gegn því að Assange yrði sleppt gegn tryggingu. Það var breska ákæruvaldið sem það gerði. Mál Assanges um hvort hann verður framseldur til Svíþjóðar verður svo tekið fyrir ellefta janúar. Erlent 16.12.2010 13:12
Hættulegasta borg í heimi Borgin Ciudad Juares í Mexíkó er gjarnan kölluð hættulegasta borg heims. Og stendur vel undir því. Það sem af er þessu ári hafa verið framin þar yfir þrjúþúsund morð. Erlent 16.12.2010 10:43
Lögreglumaður fékk ný augu Breskur lögreglumaður sem morðinginn Raoul Moat skaut í andlitið með haglabyssu í júlí síðastliðnum hefur fengið ný augu. David Rathband var á eftirlitsferð í lögreglubíl þegar Moat skaut hann inn um gluggann á bílnum. Erlent 16.12.2010 10:39
Hundaræktarfélagið fagnar lagabreytingum um hjálparhunda Hundaræktarfélag Íslands lýsir yfir ánægju með nýtt frumvarp sem Guðbjartur Hannesson lagði fram á Alþingi sem kveður á um að takmarkanir á hundahaldi í fjölbýlishúsum eigi ekki við þegar um hjálparhunda er að ræða. Erlent 16.12.2010 09:58
22 fórust í flugslysi í Nepal 22 létu lífið, eða allir um borð, þegar flugvél af gerðinni DeHavilland Twin Otter hrapaði til jarðar í Nepal í gær. Erlent 16.12.2010 07:28
Réttað í máli Assange í dag Fulltrúar frá sænska ríkissaksóknaranum munu kom fyrir rétt í London í dag til að reyna að koma í veg fyrir að Julian Assange stofandi Wikileaks verði látinn laus úr haldi bresku lögreglunnar gegn tryggingu. Erlent 16.12.2010 07:22
Glæparannsókn hafin á strandinu við Jólaeyju Áströlsk stjórnvöld hafa fyrirskipað glæparannsókn á tildrögum þess að skip hlaðið hælisleitendum strandaði við Jólaeyju í vikunni með þeim afleiðingum að 28 um borð fórust. Erlent 16.12.2010 07:18
Segja al-kaída að undirbúa hryðjuverk um jólin Yfirvöld í Írak segja að samkvæmt vitnisburði tveggja uppreisnarmanna í landinu sé al-kaída nú að undirbúa hryðjuverkaárásir um jólin í Evrópu og Bandaríkjunum. Erlent 16.12.2010 07:17
Níu daga flótta bjarnar í Suður Kóreu er lokið Yfirvöld í Suður Kóreu hafa loksins haft hendur í hári Malasíubjarnar sem verið hefur níu daga á flótta í landinu. Erlent 16.12.2010 07:03
Tugir flóttamanna létust Tugir flóttamanna, flestir líklega frá Írak og Íran, létu lífið þegar bátur fórst við klettótta strönd Jólaeyju í Indlandshafi. Íbúar eyjunnar fylgdust með sjóslysinu frá klettunum. Um borð í bátnum voru að minnsta kosti 70 manns á öllum aldri og fóru þeir allir í ólgandi hafið þegar skipið brotnaði í spón. Erlent 16.12.2010 06:00
Raðmorðingi í New York-borg Lögreglan í New York-borg í Bandaríkjunum óttast að raðmorðingi gangi þar laus eftir að fjögur illa útleikin lík fundust á strönd við Long Island um 60 kílómetrum frá borginni. Beinagrind fannst á laugardag en þrjú lík til viðbótar á mánudaginn. Erlent 16.12.2010 06:00
Minna fer í bjór og sígarettur Bjórdrykkja og reykingar hafa dregist saman í Danmörku á undanförnum árum, ef marka má nýlega könnun. Erlent 16.12.2010 05:00
Frelsisher Kosovo seldi líffæri Frelsisher Kosovo myrti fjölda almennra borgara sem teknir höfðu verið til fanga og seldi úr þeim líffærin eftir að stríðinu í Kosovo lauk árið 1999. Þetta kemur fram í rannsóknarskýrslu svissneska þingmannsins Dick Marty, sem er kunnur fyrir rannsókn Evrópuráðsins á fangaflugi bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Erlent 16.12.2010 03:30
Tékkneskar pappalöggur gera allt vitlaust Tékknesk lögregluyfirvöld fengu hugmynd á dögunum sem þeir sjá sennilega eftir í dag. Hugmyndin gekk út á að setja upp pappalöggur við akbrautir til þess að draga úr umferðaróhöppum. Hugmyndin er reyndar ekki ný af nálinni því þetta var reynt á Íslandi í tíð Sólveigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra. Hefðu Tékkarnir vitað af því hefðu þeir sennilega ekki farið út í ævintýrið en það endaði reyndar enn verr fyrir þá en hér á landi. Erlent 15.12.2010 22:00
Uppljóstrarinn vildi halda heimilisfanginu leyndu Julian Assange, stofnandi uppljóstrarasíðunnar WikiLeaks, vildi ekki að heimilisfang hans yrði gert opinbert í réttarsal í gær þegar að dómari úrskurðaði að honum skyldi veitt lausn úr varðhaldi gegn tryggingu. Erlent 15.12.2010 21:45
Berlusconi man vel eftir Þingvallakirkju Silvio Berlusconi kom til Íslands árið 2002 og heimsótti meðal annars Þingvelli þar sem Davíð Oddsson, þá forsætisráðherra, tók á móti honum. Erlent 15.12.2010 16:06
Eiginkonan rak hann út í hryðjuverk í Stokkhólmi Amma eiginkonu sprengjumannsins í Stokkhólmi segir að það hafi verið eiginkonan sem hrakti hann út í hryðjuverk. Erlent 15.12.2010 14:06
Stofnandi Facebook maður ársins hjá Time Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, hefur verið valinn maður ársins hjá bandaríska tímaritinu Time. Lengi vel var talið að Julian Assange, stofnandi Wikileaks, hreppti þennan titil en Zuckerberg hafði betur á endanum. Erlent 15.12.2010 13:16
Slökkvibifreið fældi kýr Breskur slökviliðsmaður hefur viðurkennt að hafa valdið dauða bónda nokkurs með ógætilegum akstri. Á vefsíðu Sky fréttastofunnar er greint frá því að bóndinn hafi verið að sækja kýr sínar til mjalta. Erlent 15.12.2010 11:32
Fjöldamorð í Íran Að minnsta kosti 38 sjía múslimar létu lífið þegar tveir sjálfsmorðssprengjumenn gerðu árás á bænasamkomu í suðausturhluta Írans í dag. Erlent 15.12.2010 11:22
Margrét Þórhildur kostar sitt Danir hafa nú í fyrsta skipti verið upplýstir um kostnað við rekstur konungsfjölskyldunnar. Hún kostar skattgreiðendur um sjö milljarða íslenskra króna á ári. Erlent 15.12.2010 10:36
Börðust við að bjarga 300 manns úr blindbyl Lögregla og hermenn hafa barist í gærkvöldi og nótt við að bjarga um 300 manns í Ontario í Kanada undan versta blindbyl sem skollið hefur á héraðið undanfarin 25 ár. Erlent 15.12.2010 07:24
Um 30 fórust þegar bátur strandaði við Jólaeyju Um 30 manns fórust þegar bátur með hælisleitendum strandaði við grýtta fjöru Jólaeyjar á Indlandshafi í nótt. Sjónvarvottar að strandinu gátu ekkert aðhafst sökum þess hversu slæmt var í sjóinn. Erlent 15.12.2010 07:21
Skotárás á skólanefndarfundi í Flórída Opinn fundur hjá skólanefnd í Panama borg í Flórída síðdegis í gær endaði með því að 56 ára gamall karlmaður hóf skothríð með skammbyssu á nefndarmennina. Honum tókst þó ekki að hitta neinn þeirra. Erlent 15.12.2010 06:59
Lausn gegn tryggingu áfrýjað Blaðamaðurinn John Pilger og kvikmyndagerðarmennirnir Michael Moore, Ken Loach og Tariq Ali eru meðal þeirra sem lögðu í gær fram tryggingarfé svo leysa mætti Julian Assange, stofnanda Wikileaks, úr fangelsi í London. Samtals voru lagðar fram 43 milljónir króna, en dómstóllinn krefst 36 milljóna króna. Erlent 15.12.2010 03:15