Erlent

Stærsti maður heims í það heilaga

Tyrkinn Sultan Kosen, hávaxnasti maður heims, gifti sig um helgina. Kosen, sem er þrítugur að aldri, gekk að eiga hina 21 árs gömlu Merve Dibo. Kosen er 2,47m á hæð en eiginkona hans 1,75m á hæð.

Erlent

Gera smyglbíla upptæka

Norsk yfirvöld hafa hert verulega á viðurlögum við smygli og nú eiga þeir sem eru staðnir að smygli með bílum yfir höfði sér að missa bæði bílinn og ökuskírteinið auk hefðbundinna refsinga.

Erlent

Vilja konur út úr kaffihúsum í Kúvæt

Harðlínumenn í Persaflóaríkinu Kúvæt hafa skorið upp herör gegn því að konur fái að koma inn á svokölluð shisha-kaffihús til að reykja úr vatnspípum. Telja þeir þetta dæmi um innreið frjálslyndrar vestrænnar úrkynjunar.

Erlent

Margvelashvili næsti forseti Georgíu

Giorgi Margvelashvili sigraði með miklum yfirburðum í forsetakosninunum sem fram fóru í Georgíu í gær. Hann hlaut um 62 prósent atkvæða samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum.

Erlent

Ók inn í mannþröng á Torgi hins himneska friðar

Þrír hið minsta létust og marrgir eru slasaðir eftir að bifreið var ekið á fullri ferð inn í mannþröng á Torgi hins himneska friðar í höfuðborg Kína, Peking, í morgun. Torgið var rýmt en eldur kom upp í bílnum þegar hann ók inn í þvöguna og endaði á steinbrú sem liggur að innganginum að Forboðnu borginni, einu helgasta véi Kínverja. Fólkið sem lést var allt um borð í bílnum, að því er kínverskir miðlar segja, en óljóst er enn hvað varð þess valdandi að bíllinn ók inn í mannþröngina.

Erlent

NSA hleraði líka á Spáni

Enn berast fregnir af víðtækri njósnastarfsemi Bandarísku þjóðaröryggisstofnunarinnar en spænskir miðlar fullyrða að stofnunin sem gengur undir nafninu NSA, hafi hlerað rúmlega sextíu milljónir símtala á aðeins einum mánuði á Spáni. Upplýsingarnar koma frá uppljóstraranum Edward Snowden, sem flúði undan bandarískum yfirvöldum og hefur fengið tímabundið hæli í Rússlandi.

Erlent

Brjálað veður í Bretlandi

Aftakaveður gengur nú yfir Bretlandseyjar og hefur Suður-England orðið verst úti. Miklar tafir eru á samgöngum en um miðnættið fór að blása fyrir alvöru. Rafmagnslínur hafa víða rofnað og tré rifnað upp með rótum í veðurofsanum en vindstrengirnir ná allt að hundrað og fjörutíu kílómetra hrða á klukkustund.

Erlent

Bandaríkin hleruðu síma Merkel

Spiegel segist hafa séð leynileg skjöl frá Þjóðaröryggisstofnun Bandaríkjanna, NSA, þar sem númer Merkel er fyrst skráð árið 2002, en það er áður en hún varð kanslari.

Erlent

Fara varlega að Obama

Leiðtogar Evrópusambandsríkjanna vilja ekki spilla samskiptunum við Bandaríkin, þrátt fyrir víðtækar njósnir bandarísku leyniþjónustunnar um þá sjálfa.

Erlent

Sjö hundruð bjargað úr hafinu

Meðan leiðtogar Evrópusambandsins ræddu málefni flóttamanna á tveggja daga fundarhöldum sínum í Brussel björguðu Ítalir meira en 700 flóttamönnum af fimm yfirfullum bátum á Miðjarðarhafinu.

Erlent