Erlent

Írönsk kona hengd í morgun

Konan hafði áður verið sakfelld fyrir morð á manni sem hún sagði hafa nauðgað sér, en fjöldi alþjóðlegra samtaka höfðu þrýst á Írani að fresta aftökunni.

Erlent

Grjótkasti svarað með skotum

Orwah Hammad, fjórtán ára gamall drengur frá Palestínu, lést þegar ísraelskir hermenn svöruðu grjótkasti palestínskra ungmenna með skotum í Jerúsalem á föstudag.

Erlent

Réðst á lögreglumenn með öxi að vopni

Lögreglumenn í New York skutu mann til bana í gær sem réðst að þeim vopnaður öxi. Árásin var gerð í verslunargötu í Queens hverfinu á háannatíma og særðist einn lögreglumannanna sem fyrir árásinni varð alvarlega.

Erlent

Mánuðir í landhernað gegn IS

Þrátt fyrir loftárásir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra í Írak, er landhernaður nauðsynlegur til að ná tökum á borgum eins og Mosul, sem féll í hendur IS í júní.

Erlent

Bandarískur læknir í New York smitaður af ebólu

Bandarískur læknir búsettur í New York hefur verið greindur með ebólu. Hinn þrjátíu og þriggja ára gamli Craig Spencer var nýkominn heim til sín frá Gíneu þar sem hann hafði tekið þátt í hjálparstarfi vegna faraldursins skæða sem lagt hefur tæplega fimmþúsund manns að velli í vesturhluta Afríku.

Erlent

Svíar hættir að leita að kafbátnum í skerjagarðinum

Sænski herinn hefur hætt leitinni í sænska skerjagarðinum en í heila viku hefur her manna leitað torkennilegs hlutar sem sjónarvottar sáu þar á floti. Talið var líklegt að um rússneskan kafbát hefði verið að ræða en leitin bar þó engan árangur.

Erlent