Sport
Button vann í Ungverjalandi - Vettel jók forskotið Bretinn Jenson Button á McLaren-bíl vann ungverska kappaksturinn í formúlu eitt sem fram fór á Hungaroring-brautinni í dag. Þjóðverjinn Sebastian Vettel, sem er langefstur í baráttunni um heimsbikarinn, varð annar og jók því forskot sitt á Mark Webber sem endaði í 5. sæti í dag. Formúla 1 31.7.2011 13:56
Stórt tap hjá stelpunum í bronsleiknum Íslenska 17 ára landslið kvenna í fótbolta endaði í fjórða sæti á Evrópumótinu eftir 2-8 stórtap á móti Þýskalandi í leiknum um þriðja sætið í Nyon í Sviss í dag. Telma Þrastardóttir og Aldís Kara Lúðvíksdóttir skoruðu mörk Íslands í leiknum. Íslenski boltinn 31.7.2011 13:42
54 laxar komnir úr Andakílsá Holl sem lauk veiðum þann 28 júlí fékk sjö laxa á tveimur dögum og þar af voru sex laxar lúsugir. Þessir laxar komu úr Nátthagahyl, Efri Foss og nýjum veiðistað. Laxar sáust varla á öðrum stöðum í ánni. Veiði 31.7.2011 13:01
Einvígið á Nesinu á morgun - Birgir Leifur verður með Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins og DHL, Einvígið á Nesinu, verður haldið í fimmtánda skipti á Nesvellinum á morgun mánudaginn 1. ágúst. Nesklúbburinn hefur nú tilkynnt um það hverjir verða með í mótinu í ár. Golf 31.7.2011 13:00
Leikmenn BÍ/Bolungarvíkur syngja: Við erum harðir eins og hafið BÍ/Bolungarvík leikur í dag stærsta leikinn í sögu félagsins þegar liðið tekur á móti KR í undanúrslitum Valitors-bikarinn. BÍ/Bolungarvík er í B-deildinni en KR-ingar eru á toppnum í Pepsi-deildinni og hafa ekki tapað leik í deild eða bikar í sumar. Íslenski boltinn 31.7.2011 12:00
Eiður Smári náði ekki að skora í leik númer tvö með AEK Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í AEK léku í gær æfingaleik við serbneska liðið FK Rad Belgrade og lauk leiknum með 1-1 jafntefli. Þetta var síðasti leikur liðsins í æfingaferðinni til Slóveníu. Fótbolti 31.7.2011 11:30
Stelpurnar spila um bronsið við Þjóðverja klukkan tólf Íslenska 17 ára landslið kvenna verður í eldlínunni klukkan 12.00 þegar liðið mætir Þýskalandi í leik um þriðja sætið í úrslitakeppni Evrópumótsins en leikið er í Nyon í Sviss. Íslenski boltinn 31.7.2011 11:00
Hamilton og Button á McLaren stefna á sigur Lewis Hamilton er annar á ráslínu í ungverska Formúlu 1 kappakstrinum í dag og Jenson Button þriðji, en báðir aka á McLaren. Þeir eru staðráðnir í að skáka Sebastian Vettel á Red Bull sem er fremstur á ráslinu, en mótið Ungverjalandi verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.40 í dag. Formúla 1 31.7.2011 10:03
Norsku landsliðsmennirnir ánægðir með HM-dráttinn Norsku landsliðsmennirnir Jonathan Parr, Espen Bugge Pettersen og Simen Brenne voru afar ánægðir með HM-dráttinn þegar norska Dagblaðið talaði við þá í gær. Norðmenn eru í riðli með Íslandi, Kýpur, Albaníu, Sviss og Slóveníu. Fótbolti 31.7.2011 10:00
Frank ráðinn sem þjálfari Detroit Pistons Lawrence Frank hefur verið ráðinn sem þjálfari NBA liðsins Detroit Pistons en hann gerði þriggja ára samning við hið sögufræga félag. Frank var áður þjálfari New Jersey Nets en hann var einn af aðstoðarþjálfurum Boston Celtics á síðustu leiktíð. Þjálfaraskipti hafa verið tíð hjá Pistons á undanförnum 11 árum og er Frank sjötti þjálfarinn sem er ráðinn til félagsins á þeim tíma. Körfubolti 31.7.2011 09:00
Frábær skilyrði og góð veiði í Kjósinni. Mikið af laxi í Langá Félagarnir Sævar Haukdal og Rögnvaldur Jónsson voru í síðasta holli í Laxá í Kjós og enduðu með 21 lax á stöngina. Skilyrðin í ánni voru að þeirra sögn frábær. Áin í góðu vatni og fiskur að ganga af krafti, en sérstaklega var mikið af laxi á frísvæðinu frá Káranesfljóti og upp fyrir Hurðarbakshyl. Efsta svæðið hefur verið rólegast en er þó að koma hægt og rólega inn núna þegar fiskurinn dreifir sér um ánna. Veiði 31.7.2011 08:36
300 laxa vika í Selá Veiðin í Selá heldur áfram að vera eins og hún hefur verið frá opnun, alveg ótrúlega góð! Síðasta vika gaf 300 laxa sem er alveg ótrúleg tala miðað við það sem er að gerast í ánum í kring og í raun á landinu öllu. Áin var ekki sein til eins og víða og tveggja ára laxinn er ennþá rúmlega helmingur aflans. Veiði 31.7.2011 08:32
Haakonsen: Veigar Páll er besti sóknarmaður norsku deildarinnar Veigar Páll Gunnarsson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við norska úrvalsdeildarliðið Vålerenga og er íþróttastjóri félagsins sannfærður um að Veigar sé besti sóknarleikmaður deildarinnar. Fótbolti 31.7.2011 08:00
Liðsfélagi Grétars Rafns í Bolton fótbrotnaði illa í gær Lee Chung-yong, miðjumaður Bolton og suður-kóreska landsliðsins, verður frá níu mánuði eftir að hafa fótbrotnað illa í æfingaleik Bolton og velska liðsins Newport í gær. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Enski boltinn 31.7.2011 07:00
Roma búið að kaupa hollenska landsliðsmarkvörðinn frá Ajax Maarten Stekelenburg, markvörður Ajax og hollenska landsliðsins, mun spila í ítölsku deildinni á komandi tímabil eftir að Roma keypti hann í gær frá Ajax. Fótbolti 31.7.2011 06:00
Owen tryggði Manchester United sigur á Barcelona Michael Owen kom inn á sem varamaður og tryggði Manchester United 2-1 sigur á Evrópumeisturum Barcelona í æfingaleik liðanna í Washington í Bandaríkjunum í nótt. Fótbolti 31.7.2011 01:02
Öryggislögreglan fjarlægði myndir af Twitter síðu Rio Ferdinand Rio Ferdinand, varnarmaður enska meistaraliðsins Manchester United, fór aðeins yfir strikið í myndabirtinum á Twitter síðu sinni eftir heimsókn Man Utd í Hvítahúsið í Washington. Bandaríska leyniþjónustan lét fjarlægja myndirnar og kom það leikmanninum á óvart. Enski boltinn 30.7.2011 23:00
Ólafur var ekki viðstaddur þegar dregið var í riðla í Brasilíu Ólafur Jóhannesson þjálfari íslenska landsliðsins í knattspyrnu var ekki viðstaddur þegar dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramótið 2014 í Brasilíu í dag. Það vekur óneitanlega athygli að Ólafur skuli ekki hafa verið viðstaddur en samningur Ólafs rennur út eftir undankeppni EM sem lýkur í haust. Nánar í frétt Stöðvar 2 sem birt var í kvöld. Fótbolti 30.7.2011 22:30
Mörkin úr leik Arsenal og Boca Juniors á Emirates mótinu Arsenal og Boca Juniors frá Argentínu skildu jöfn 2-2 á Emirates mótinu sem fram fer í London á heimavelli Arsenal. New York Red Bulls frá Bandaríkjunum hafði betur, 1-0, gegn franska liðinu Paris SG í fyrri leiknum í keppninni í dag. Mörkin úr leik Arsenal og Boca Juniors má sjá í fréttinni sem birtist á Stöð 2 í kvöld. Enski boltinn 30.7.2011 22:00
Arsenal missti niður tveggja marka forskot Arsenal og Boca Juniors gerðu 2-2 jafntefli í Emirates-bikarnum í knattspyrnu í Lundúnum síðdegis í dag. Arsenal komst í 2-0 en argentínska liðið jafnaði leikinn. Í fyrri leik dagsins vann New York Red Bulls óvæntan 1-0 sigur á Paris Saint Germain. Enski boltinn 30.7.2011 21:38
Ísland í riðli með Noregi í undankeppni HM í Brasilíu Dregið var í riðla í undankeppni Heimsmeistarakeppninnar í fótbolta sem fram fer í Brasilíu 2014 í kvöld. Ísland dróst í E-riðil og er aðra forkeppnina í röð með Noregi og Kýpur í riðli. Fótbolti 30.7.2011 20:11
Golfskóli Birgis Leifs: Hvernig er best að slá úr sandinum? Margir kylfingar óttast það mest að þurfa að slá boltann úr sandglompu þegar þeir leika golf. Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur, sýnir réttu aðferðina við þetta högg. Atriðið er úr þáttunum Golfskóli Birgis Leifs, sem sýndir eru á Stöð 2 sport. Golf 30.7.2011 20:00
Antonio Valencia mun skrifa undir nýjan samning við Man Utd David Gill, stjórnarformaður Manchester United, segir að Antonio Valencia muni skrifa undir langtímasamning í næstu viku. Valencia, sem er frá Ekvador, er aðeins hálfnaður með samninginn sem hann skrifaði undir til fjögurra ára árið 2009 þegar hann var keyptur frá Wigan fyrir um 19 milljónir punda eða sem nemur 3,6 milljörðum kr. Enski boltinn 30.7.2011 18:00
Guðlaugur Victor lék í sigri Hibernian Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leikinn þegar Hibernian sigraði Inverness Caledonian Thistle 1-0 á útivelli í annarri umferð skosku úrvalsdeildarinnar sem hófst í dag. Fótbolti 30.7.2011 17:08
Rory McIlroy stimplaður sem óþroskuð dekurrófa Rory McIlroy stendur í ströngu eftir að hann skrifaði allt sem hann hugsaði í Twitterfærslu um sjónvarpsþul sem starfar á Golf Channel. Bandaríkjamenn eru allt annað en ánægðir með hversu hreinskilinn Norður-Írinn var í þessari færslu og kylfingurinn hefur nú fengið „stimpil“ sem „óþroskuð og barnaleg dekurrófa“. Golf 30.7.2011 17:00
Vettel fullur sjálfstrausts á ný Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu er fremstur á ráslínu fyrir ungverska kappaksturinn á sunnudag, eftir góða frammistöðu í tímatökunni í dag. Hann var á undan Lewis Hamilton og Jenson Button á McLaren. Formúla 1 30.7.2011 16:27
Bankaði upp á hjá Ferguson með DVD disk og fékk að spreyta sig Max Lonsdale er ekki þekktasta nafnið í fótboltaheiminum. Hann virðist vera með bein í nefinu því hinn 18 ára gamli leikmaður er nú á reynslu hjá Manchester United eftir að hann bankaði upp á hjá Alex Ferguson og lét hann fá DVD disk sem innihélt hápunkta úr ýmsum leikjum hjá Lonsdale. Sir Alex tók vel á móti drengnum sem var látinn fara frá Macclesfield Town á síðustu leiktíð og Lonsdale er nú til reynslu hjá enska meistaraliðinu. Enski boltinn 30.7.2011 16:00
Torres tryggði Chelsea Asíubikarinn Chelsea sigraði Aston Villa 2-0 í úrslitum Asíubikarsins í dag þar sem Fernando Torres tryggði sigurinn með marki skömmu eftir að hafa komið inná sem varamaður. Enski boltinn 30.7.2011 15:41
Eriksson telur að Mourinho sé rétti maðurinn fyrir England Svíinn Sven Göran Eriksson, sem var þjálfari enska landsliðsins í fótbolta, telur að Portúgalinn Jose Mourinho ætti að sækjast eftir því að komast í það starf. Eriksson telur að Mourinho sé rétti maðurinn fyrir England en Ítalinn Fabio Capello er þjálfari liðsins. Enski boltinn 30.7.2011 15:30
Andrés Már komin til Haugesund Norska úrvalsdeildarfélagið Haugesund hefur staðfest að Andrés Már Jóhannesson sé orðinn leikmaður félagsins. Fótbolti 30.7.2011 15:09