Fréttir
18 19 20 21 22 23 24 25 26 … 334 ›
Minni hamingja meðal landsmanna og fleiri einmana Ungu fólki sem metur andlega heilsu sína góða hefur fækkað á síðastliðnum áratug á Íslandi og þá hefur streita og einmanaleiki aukist á meðal landsmanna. Innlent 27.6.2026 12:15
Þörf sé á að endurhugsa fjármögnum NPA-þjónustu Í hádegisfréttum verður rætt við formann velferðarráðs Reykjavíkurborgar sem segir að breyta þurfi algjörlega hvernig NPA-þjónusta sveitarfélaga sé fjármögnuð. Þá fjöllum við um andlega heilsu ungs fólks en þeim hefur fækkað á síðastliðnum áratug sem telja hana góða. Innlent 27.6.2026 11:46
Rétt rúmur helmingur myndi segja já í ágúst Rétt rúmlega helmingur landsmanna, 52 prósent, telur líklegast að ef atkvæðagreiðslan færi fram núna myndi hann greiða atkvæði með því að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný en rétt tæplega helmingur, 48 prósent, telur líklegast að hann greiddi atkvæði gegn því. Innlent 27.6.2026 11:37
Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Útlit er fyrir að hitamet verði slegin víðs vegar um Evrópu í dag. Búist er við því að hiti verði allt að 34 stig í Danmörku. Gefin hefur verið út rauð viðvörun víða um álfuna og búist við því að hiti nái allt að 40 stigum í Þýskalandi og Hollandi. Á Balkanskaga á einnig hiti að vera verulegur. Tugir hafa látist í Frakklandi og Spáni síðustu daga og þar á meðal fjögur ung börn. Erlent 27.6.2026 10:50
Foreldrar standi eftir „einir, örmagna og án stuðnings“ Ingibjörg Einarsdóttir, móðir eins drengsins sem fór til Suður-Afríku í meðferð, segist ekki hafa þurft að lesa nýja skýrslu Ríkisendurskoðunar um innleiðingu farsældarlaganna til að vita að barnaverndarkerfið sé að bregðast þeim börnum sem þurfa á mestri aðstoð að halda. Hún segir tíma til að framkvæma frekar en að „skrifa falleg lög“. Innlent 27.6.2026 10:31
Gotta-rennibraut lokað vegna slysahættu Vegna slysahættu hefur Gotta-rennibrautinni í sundlauginni á Selfossi verið lokað. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu Árborg kemur fram að rennibrautinni hafi verið lokað tímabundið vegna slysa barna. Innlent 27.6.2026 09:18
Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Ástandið hefur versnað með hverri klukkustund sem líður í Venesúela þar sem fólk grefur í rústum þremur dögum eftir að tveir jarðskjálftar, 7,2 og 7,5 að stærð, riðu yfir með skömmu millibili. Sérfræðingar segja lykilatriði að ná fólki út í dag. Erlent 27.6.2026 08:32
Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Bandaríkjaher hefur gert árásir á írönsk skotmörk eftir að Donald Trump forseti sakaði Íran um „heimskulegt brot“ á vopnahléi í kjölfar árásar á flutningaskip á Hormússundi á fimmtudag. Erlent 27.6.2026 08:00
Flest ljósin tengd stýritölvu en kerfið ekki fullnýtt Ljósastýring á höfuðborgarsvæðinu er ekki fullnýtt þrátt fyrir að flest umferðarljós séu tengd miðlægu kerfi. Nýr meirihluti vill flýta innleiðingu snjallra ljósastýringa á fyrsta ári sínu. Innlent 27.6.2026 07:33
Tilkynnt um einstakling að stunda sjálfsfróun í runna Einn var handtekinn í nótt í Kópavogi eða Breiðholti eftir að hafa ógnað börnum með hníf og reynt að ræna þau hlaupahjóli. Fram kemur í dagbók lögreglu að þessi einstaklingur hafi verið í mjög annarlegu ástandi. Innlent 27.6.2026 07:20
Stíf norðanátt með rigningu víða um land Í nótt og í fyrramálið gengur sakvæmt spá í stífa norðaustanátt með rigningu víða um land. Einna hvassast verður á norðvestanverðu landinu þar sem spáir norðaustan 10-15 m/s og hviðum yfir 25 m/s við fjöll. Veður 27.6.2026 07:13
„Ég ætla bara að halda mínu striki, það verða tíu gusur hér um helgina“ Rekstraraðili gufubaðs á Ægissíðu ætlar að halda sínu striki þrátt fyrir deilur við Reykjavíkurborg um eignarhald skúra sem hýsa starfsemina. Borgarlögmaður telur borgina mögulega þurfa að fara dómstólaleiðina og telur einstakling hafa sölsað undir sig eign borgarinnar. Innlent 27.6.2026 00:04
Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot Íslendingur hlaut þriðja vinning í EuroJackpot kvöld og deilir honum með tveimur öðrum sem keyptu miða í Þýskalandi. Fær hver um sig tæpar 65 milljónir króna í sinni hlut. Innlent 26.6.2026 22:47
Erfitt fyrir launafólk að taka aftur mark á loforðum stjórnvalda og fyrirtækja „Eins og staðan er núna er náttúrulega mjög lítið hægt að gera til þess að forsendur bresti ekki. Það hefði þurft að grípa til þeirra aðgerða fyrr. Það er hins vegar hægt að gera mikið og ábyrgð aðila núna er að reyna að láta samninga halda og það er ábyrgð sem við tökum mjög alvarlega.“ Þetta segir formaður VR stéttarfélags, um stöðu kjarasamninga eftir að ljóst varð að ársverðbólgan jókst lítillega í júní og mælist nú 5,2 prósent. Innlent 26.6.2026 21:53
Hrafnagilshverfi stækkar ört Á Hrafnagili hefur gríðarleg uppbygging orðið síðustu ár og fær skólinn þar meiriháttar yfirhalningu í sumar. Oddvitinn segir ánægjulegt hversu margt ungt fólk er að leita í bæinn. Innlent 26.6.2026 21:26
Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi í haust en verðbólga hefur aukist þvert á spár. Við ræðum við hann í kvöldfréttum en hann segir það vonbrigði hversu mikið flugfargjöld hafa hækkað og segir að grannt sé fylgst með því að lækkun olíuverðs á heimsmarkaði skili sér til neytenda. Þá mætir Halla Gunnarsdóttir formaður VR til okkar til að fara yfir þetta mál. Innlent 26.6.2026 18:10
Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Margrét Jónsdóttir Njarðvík hefur verið skipuð í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti af Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra. Margrét var rektor Háskólans á Bifröst í tæp sex ár en hætti eftir að hún kærði þrjá kennara við skólann til siðanefndar. Innlent 26.6.2026 18:01
Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Baðlón á suðvesturhorninu hefur verið sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns sem lenti í vinnuslysi á hálu gólfi og hlaut áverka. Niðurstaðan var því sú að um óhappatilvik hafi verið að ræða sem vinnuveitandanum verður ekki kennt um með saknæmri háttsemi. Innlent 26.6.2026 16:02
Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Farþegum og leiðsögumönnum um borð í hvalaskoðunarskipi Eldingar varð hverft við þegar við þeim blasti dauð langreyður í eftirdragi hvalveiðiskips í Faxaflóa í gær. Leiðsögumaður segi suma farþega hafa orðið skelfingu lostna. Framkvæmdastjóri Eldingar segir að lifandi hvalir séu einnig auðlind og hvalaskoðun líka vertíð. Innlent 26.6.2026 15:47
Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum John Bolton, sem var þjóðaröryggisráðgjafi á fyrsta kjörtímabili Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, játaði fyrir dómi í dag að hann hefði farið óhönduglega með trúnaðarupplýsingar er varða þjóðaröryggi. Erlent 26.6.2026 14:45
Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Lítilli flugvél var flogið á hæsta skýjakljúf kínversku höfuðborgarinnar Peking í dag. Erlendir fjölmiðlar segja að byggingin hafi verið rýmd og að brak úr vélinni hafi fallið til jarðar. Erlent 26.6.2026 13:41
Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Borgarlögmaður telur að Reykjavíkurborg þurfi að fara í hart til þess að stöðva rekstur gufubaðs í grásleppuskúr á Ægisíðu sem yfirlýstur „gusumeistari“ hafi sölsað undir sig. Hann telur fyrri eiganda og gufubaðsstjórann ekkert tilkall eiga til skúrsins. Innlent 26.6.2026 13:22
Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Yfirlæknir hjá samhæfingarmiðstöð krabbameinsskimana segir að fella þurfi þröskulda og auka traust á kerfum meðal erlendra kvenna hér á landi svo auka megi þátttöku þeirra í krabbameinsskimunum. Aðeins 25% kvenna með erlent ríkisfang mættu í boðaða skimun fyrir brjóstakrabbameini á síðasta ári. Innlent 26.6.2026 13:01
Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Varaforseti Bandaríkjanna segist ekki skilja hvernig Watergate-hneysklið, þekktasta stjórnmálahneyksli í sögu Bandaríkjanna, felldi Richard Nixon. Ef málið kæmi upp í dag yrði það að fréttamáli í hálfan dag. Erlent 26.6.2026 12:53
Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Tæplega þriðjungshlutur í húsinu þar sem rússneskir útsendarar eitruðu fyrir Sergei Skripal árið 2018 er nú falur. Útsendararnir mökuðu taugaeitrinu novichok á hún útidyrahurðar hússins. Erlent 26.6.2026 12:27
Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Ríkið auglýsir nú eftir bæði að langtíma- og skammtímahúsnæði undir brottfararstöð. Húsnæðið þarf að geta hýst allt að þrjátíu manns, samkvæmt auglýsingu. Innlent 26.6.2026 12:26
Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Verðbólga er að aukast þvert á spár en hækkun flugfargjalda vegur þar hvað þyngst. Hagfræðingur ASÍ segir áhyggjuefni að markmið kjarasamninga um minni verðbólgu og lægri vexti séu ekki að nást. Innlent 26.6.2026 12:02
Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verð á óslægðum þorski er nú tæplega fjörutíu prósentum hærra en í fyrra. Skortur er á hvítfiski í Evrópu sem má rekja til þess að veiðar á þorski í Barentshafi hafa dregist mikið saman og minna framboð af fiski frá Rússlandi. Innlent 26.6.2026 11:54
Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum Í hádegisfréttum verður fjallað um nýjustu verðbólgutölurnar sem bárust í morgun og eru töluvert hærri en búist hafði verið við. Innlent 26.6.2026 11:41
„Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Fjallaleiðsögumanni brá verulega í brún þegar hann sá að tveir ungir menn höfðu haldið upp í Fálkaklett án nauðsynlegs búnaðar um miðja nótt í fyrrinótt. Þó að hann þekki það sjálfur að hafa verið ungur og vitlaus segir hann athæfi ungu mannanna stórhættulegt og geta hafa endað í stórslysi. Innlent 26.6.2026 11:39