Skrópið kostar Diego Costa að minnsta kosti 42 milljónir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. ágúst 2017 16:42 Diego Costa verður stundum svolítið reiður. Vísir/AFP
Chelsea hefur ákveðið að sekta Diego Costa um tveggja vikna laun en framherjinn hefur ekki ekki látið sjá sig á Stamford Bridge eftir sumarfríið. Diego Costa er enn að dunda sér í Brasilíu en hann sagði frá þeirri skoðun sinni í viðtali við Daily Mail að honum líði eins og Chelsea sé að koma í veg fyrir að hann geti snúið aftur til Atletico Madrid. Tveggja vikna laun Diego Costa eru engir smáaurar heldur um 300 þúsund pund eða tæplega 42 milljónir í íslenskum krónum. Sky segir frá. Diego Costa segir að knattspyrnustjórinn Antonio Conte hafi tilkynnt honum eftir tímabilið að hann væri ekki inn í framtíðarplönum Ítalans hjá Chelsea. Eftir þá frétt skömmu eftir síðasta tímabil hefur verið algjört bíó að fylgjast með málinu ekki síst þar sem þarna er á ferðinni leikmaður sem var með 20 mörk og 8 stoðsendingar í 35 leikjum á meistaratímabili Chelsea 2016-17. Diego Costa segist vera opinn fyrir því að eyða einu ári í Brasilíu án þess að spila og segir það þá ekki skipta sig máli þótt að Chelsea sekti hann grimmt eða borgi honum ekki laun. Fyrsta sektin er nú orðin staðreynd og þær gætu vissulega orðið fleiri og mun hærri. Diego Costa hefur nefnilega ekki mætt á æfingasvæði Chelsea síðan að hann hjálpaði liðinu að vinna ensku úrvalsdeildina síðast vor. Atletico Madrid seldi Diego Costa til Chelsea fyrir 32 milljónir punda árið 2014 en nú vill Chelsea fá um 50 milljónir punda fyrir hann. Eitt stærsta vandamálið er að Atletico Madrid er í félagsskiptabanni í þessum glugga og getur því ekki keypt framherjann fyrr en í fyrsta lagi í janúar. Annað stórt vandamál er að spænska félagið vill ekki borga svona mikið fyrir leikmanninn sem er orðinn 28 ára gamall.
Enski boltinn Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Missir af Ólympíuleikunum af því að móður hennar var rænt Sport „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Sport „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Fótbolti Gæti verið valinn fyrstur í nýliðavalinu en líka endað í tuttugu ára fangelsi Sport Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Handbolti Svara gagnrýni Alfreðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“ Handbolti Fleiri fréttir Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjá meira