Uppgjörið Stjarnan - KR 97-86 | Stjarnan tók öll völd í seinni hálfleik Hjörvar Ólafsson skrifar 1. apríl 2026 21:36 Frá leik Stjörnunnar og KR í bikarúrslitum fyrr á tímabilinu Vísir/Anton Brink Stjarnan fór með sigur af hólmi, 97-86, þegar liðið mætti KR í fyrsta leik liðanna í átta liða úrslitum Bónus-deildar karla í körfubolta í ÞG Verk-höllinni í Ásgarði í kvöld. Leikstíll beggja liða skein í gegn í þessum leik sem var bæði hraður og skemmtilegur. Liðin skiptust á að taka frumkvæðið í leiknum þar til Stjarnan náði þægilegri forystu í þriðja leikhluta sem liðið lét ekki að hendi. Stjarnan fór betur af stað í leiknum en leikmenn KR-liðsins hrukku í gang um miðjan fyrsta leikhluta og gestirnir úr Vesturbænum voru 28-31 yfir eftir fyrsta fjórðung og leiddu 51-55 þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik. Stjörnumenn réðu illa við Linards Jaunzems á póstinum og undir körfunni framan af leik. Linards var kominn með 18 stig í hálfleik. Samvinna Linards og Þóris Guðmundar Þorbjarnarsonar er vel slípuð. Þórir var með 13 stoðsendingar í leiknum og þó nokkrar af þeim voru á Linards. Jafnræði var með liðunum fram í miðjan þriðja leikhluta en þá hrukku Stjörnumenn í gang svo um munaði. Stjarnan næáði 15-3 kafla sem skilaði þeim 11 stiga forystu, 75-64, inn í fjórða og síðasta leikhluta. Stjarnan hamraði heitt járnið í upphafi fjórða leikhluta en Giannis Agravanis og Ægir Þór Steinarsson skoruðu sex fyrstu stig leikhlutans. Lettneski miðherjinn Rinalds Malmanis var fjarri góðu gamni í þessum leik vegna bakmeiðsla. KR-ingar söknuðu Rinalds í frákastabaráttunni en Stjarnan tók 59 fráköst í þessum leik leik á móti 48 hjá KR. Niðurstaðan 11 stiga sigur Stjörnunnar sem er þar af leiðanid komin 1-0 yfir í einvígi liðannan sem heldur áfram á Meistaravöllum á mánudaginn kemur. Baldur Þór er alltaf líflegur á hliðarlínunni og það var engin breyting á því í kvöld. Vísir / Anton Brink Baldur Þór: Gríðarleg orka innan vallar sem utan „Við náðum upp flottri frammistöðu og ég er sérstaklega ánægður með varnarleikinn og ákefðina þar í seinni hálfleik. Það skilaði sér í auðveldum körfum á hinum enda vallarins,“ sagði Baldur Þór Ragnarsson, þjálfari Stjörnunnar. „Það var mikil orka í liðinu og stemmingin úr stúkunni skilaði sér inn á völlinn. Við fengum frábæran stuðning eins og alltaf frá okkur stuðningsmönnum og það hjálpaði okkur mikið,“ sagði Baldur Þór enn fremur. „KR er með frábært lið og vel rútínerað. Það er ekki nóg að stoppa eitthvað eitt hjá þeim. Við náðum bara upp hörku vörn og náðum að stöðva flæðið hjá þeim að þessu sinni sem skilaði þessum sigri,“ sagði hann. Jakob Örn: Fórum út úr sóknarplaninu okkar „Ég er svekktur með hvernig við komum út í seinni hálfleikinn. Við fórum út úr því sóknarplani sem við settum upp og hefur verið okkar leikur í allan vetur. Því fór sem fór,“ sagði Jakob Örn Sigurðarson, þjálfari KR, ósáttur. „Við fórum að þvinga hlutina fram og svo var skotvalið mjög illa ígrundað. Þegar við lentum undir ætluðum við svo að flýta okkur að jafna og það var mikið um einstaklingsframtak. Við náðum ekki að láta boltann flæða og vanda okkur í sóknaraðgerðunum,“ sagði Jakob Örn þar að auki. „Það er svo mjög erfitt að vinna körfuboltaleik þegar þú tapar frákastabaráttunni jafn illa og við gerðum í kvöld. Tapaðir boltar og fráköst hjá þeim skiluðu allt of mörgum auðveldum stigum hjá þeim. Við þurfum einfaldlega að gera betur í leiknum á mánudaginn,“ sagði Jakob sem vonast til þess að njóta krafta Rinalds í þeim leik. Jakob Örn Sigurðarson var ekki ánægður með spilamennsku sinna manna í seinni hálfleik. Vísir/Anton Brink Atvik leiksins Þorvaldur Orri Árnason skoraði fjögur stig í röð fyrir KR undir lok leiksins og minnkaði muninn í sex stig, 90-84. Þá kom þriggja stiga karfa frá Hilmari Smára Henningssyni sem gerði endanlega út um leikinn. Stjörnur og skúrkar Stjörnumenn fengu jafnar og góðar frammistöður frá byrjunarliðsleikmönnum sínum. Giannis Agravanis var stigahæstur með 20 stig en Hilmar Smári kom þar á eftir með 19 stig. Giannis Agravanis tók einnig 10 fráköst en Seth Leday hirti 16 fráköst. Toms Leimanis náði sér ekki almennilega á strik í þessum leik en þrjú af tíu skotum hans í opnum leik rötuðu rétta leið og þá tapaði hann fjórum boltum. Linards var atkvæðamestur hjá KR með 24 stig en hann náði ekki að fyglja eftir góðum fyrri hálfleik í þeim seinni. Dómarar leiksins Dómarar leiksins, þeir Kristinn Óskarsson, Davið Kristján Hreiðarsson og Ingi Björn Jónsson, dæmdu leikinn bara nokkuð vel og fá sjö í einkunn fyrir prýðilega störf. Stemming og umgjörð Stuðningsmenn beggja liða voru í úrslitakeppnisham og studdu liðin sín dyggilega. Léttur banter á milli liða sem var bara gaman af og lungann úr leiknum fengu góð lög stuðningsmannasveitana að njóta sín. Skemmtilegt kvöld í Ásgarði, þá sérstaklega fyrir Stjörnumenn. Bónus-deild karla Stjarnan KR
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti
Sjáðu slagsmálin í Grindavík: Stuðningsmenn stukku út á gólf og lögreglan skarst í leikinn Körfubolti