Upp­gjör: Þór Þ-Tindastóll 95-98 | Stólarnir komu til baka eftir slæma byrjun

Magnús S. Guðmundsson skrifar
Dedrick Basile var allt í öllu í endurkomu Stólanna í kvöld. 
Dedrick Basile var allt í öllu í endurkomu Stólanna í kvöld.  Vísir/Pawel

Þórsarar fengu Tindastól í heimsókn í Þorlákshöfn í kvöld. Stigasöfnun heimamanna hefur verið rýr í vetur og hafa þeir verið í leðjuslag á botni deildarinnar. Því var því fagnað vel þegar þeir unnu ÍR-inga sannfærandi í síðustu umferð. Í þeim leik frumsýndu þeir nýjan Kana, Dachon Burke, sem var öflugur bæði varnar- og sóknarlega. Með tilkomu hans mátti sjá annan brag á varnarleik liðsins.

Tindastóll rúllaði aftur á móti yfir Ármann í síðustu umferð þar sem Dedrick Basile var eins og kafbátur á launsátri. Hann stillti sér upp við þriggja stiga bakkann í Síkinu og lét tundurskeytin fljúga. Sjö langdræg skot hæfðu körfuna. Þórsura beið því það erfiða verkefni að stöðva Basile fursta og hans hersveit.

Leikurinn byrjaði með látum og strax var ljóst að Þórsarar ætluðu að mæta vitlausir til leiks. Þeir voru á undan í öllum aðgerðum, hentu sér á alla bolta og áttu sviðið. Stólarnir voru á hælunum og það var eins og grimmd heimamanna hefði komið þeim á óvart.

Dachon Burke fór fyrir Þórsurum með öflugum varnarleik og dreifði boltanum í allar áttir. Við lok fyrsta leikhluta leiddu Þórsarar með fjórtán stigum. Í öðrum leikhluta kveikti Taiwo Badmus á dísilvélinni og leiddi sóknaraðgerðir Stólanna. Þórsarar gerðu vel í að loka á Dedrick Basile og settu niður dýrmæt skot. Þeir héldu forskotinu og leiddu í hálfleik með sex stigum, 49-43.

Tölfræðiblaðið leit vel út fyrir Dachon Burke í fyrri hálfleik. Hann var með 11 stig, 7 stoðsendingar, 5 fráköst, 3 stolna bolta og 1 blokkaðan bolta. Alvöru frammistaða þar.

Allt annað Tindastólslið mætti til leiks í seinni hálfleik. Arnar þjálfari hafði greinilega lesið yfir hausamótunum á þeim því grimmdin var allt önnur þegar þeir stigu inn á parketið. Þeir höfðu hugrekki til að reyna löng þriggja stiga skot og á tíma lak allt niður. Drungilas og Sigtryggur Arnar hentu sér á alla bolta og baráttan kom flatt upp á Þórsarana.

Dedrick Basile komst betur inn í sóknarleikinn og boltinn rúllaði hratt. Tindastóll komst yfir með eljuna eina að vopni. Burke reyndi þriggja stiga skotin í sóknarleik Þórsara en miðið var illa stillt. Þegar flautið gall við lok þriðja leikhluta leiddi Tindastóll með fimm stigum.

Fjórði leikhlutinn var alvöru naglbítur. Grimmdin og ákefðin var mikil og baráttan var háð á gólfinu. Stólarnir héldu forystunni en Þórsarar söxuðu hægt og rólega á hana. Lokamínúturnar voru töfrum líkastar. Djordje Dzeletovic fór í þriggja stiga skot þegar örfáar sekúndur voru eftir en brotið var á honum. Hann fær þrjú vítaskot og raðar þeim öllum niður. Munurinn orðinn þrjú stig og Tindastóll missir boltann í sókninni.

Þórsarar fá boltann þegar sex sekúndur eru eftir og geta jafnað leikinn. Þeir stilla upp í sókn og Dachon Burke reynir þriggja stiga skot. Skotið var slakt og því unnu Tindastólsmenn leikinn 95-98.

Atvik leiksins

Þriðji leikhlutinn var svo sannarlega atvik leiksins. Tindastólsmenn mættu brjálaðir á parketið eftir hressandi hálfleiksræðu og grimmdin skein úr augunum. Þessi grimmd og elja hélst út leikinn og skóp sigurinn.

Stjörnur og skúrkar

Stjörnurnar hjá heimamönnum í Þór voru þeir Lazar Lugic og Djordje Dzeletovic sem báðir skoruðu 25 stig.

Hjá Tindastóli voru stjörnurnar margar. Taiwo Badmus var allt í öllu í leik liðsins og setti niður 32 stig og Dedrick Basile var með 28 stig.

Það á enginn skilið skúrkastimpilinn en ég hefði viljað sjá meira frá Burke í seinni hálfleik. Tindastóll gerði vel í að loka á hann í þeim seinni og því skoraði hann bara fjögur stig í seinni hálfleik.

Dómararnir

Dómaratríó kvöldsins steig ekki feilspor.

Stemmning og umgjörð

Þórsarar biðluðu til Þorlákshafnarbúa að fjölmenna í stúkuna og styðja við bakið á strákunum. Íbúar sveitarfélagsins svöruðu kallinu og létu vel í sér heyra. Stuðningsmenn úr Skagafirðinum mættu einnig vel og ljóst að enginn var fastur í Hrútafirðinum.

Lárus Jónsson, þjálfari Þórs Þorlákshafnar.Vísir/Hulda Margrét

Lárus: Þessi leikur hefði alveg getað dottið okkar megin

Í lok leiks var Lárus Jónsson, þjálfari Þórsara, nokkuð sáttur með sína menn þrátt fyrir tap.

„Þessi leikur hefði alveg getað dottið okkar megin. Við byrjuðum vel og vorum að skora góðar körfur. Leikurinn sveiflaðist svolítið til en ég var ánægður með mína menn í fyrri hálfleik,“ sagði Lárus.

Þegar hann var spurður út í seinni hálfleikinn sagði hann að Tindastóll hefði náð að ýta hans mönnum út úr þeirra aðgerðum.

„Við ætluðum að koma aftur til baka í fjórða leikhluta, með meiri baráttu og ákefð en þeir sáu við okkur. Þeir settu stór skot en mínir menn gáfust aldrei upp. Við brotnuðum ekki og þrátt fyrir að spila bara la la þriðja leikhluta þá vorum við með leik allt fram í síðasta leikhluta,“ sagði Lárus.

Lárus sagði að hans leikmenn gætu verið stoltir af frammistöðu sinni í leiknum. Aðspurður sagði hann nýju leikmenn Þórs, þá Burke og Hauk Davíðsson, koma með þyngd og hæð sem sé dýrmætt fyrir liðið.

Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls.vísir/Anton

Arnar: Ekkert eðlilega sætt

Arnar Guðjónsson, þjálfari Tindastóls, var gríðarlega ánægður með sigurinn hjá Stólunum í kvöld.

„Það er ekkert eðlilega sætt að ná loksins í deildarsigur hérna. Ég man hreinlega ekki hvenær það gerðist síðast. Taiwo sagði mér eftir leik að þetta væri einungis í annað sinn sem hann vinnur hérna á ferlinum. Þannig sigurinn var sætur,“ sagði Arnar.

Arnar sagðist aðspurður ekki hafa verið ánægður með hittni sinna manna í kvöld. Þrátt fyrir að þriggja stiga pokinn hafi verið gal opinn um tíma þá var hann ekki sáttur.

„Við vorum einfaldlega ekki að hitta rassgat. Ég held við höfum verið með eina þriggja stiga körfu í fyrri hálfleik eða eitthvað álíka lélegt. Á köflum var þetta svolítið one man show hjá Taiwo Badmus og á hann hrós skilið fyrir sína frammistöðu,“ sagði Arnar.

Arnar og hans menn bruna því norður með tvö extra sæt stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira