Uppgjörið: Þór/KA 0 - 2 Breiðablik | Blikar með öruggan sigur Árni Gísli Magnússon skrifar 16. júní 2025 16:16 Samantha Smith lagði upp seinna mark Birtu Georgsdóttur Vísir/Diego Breiðablik hafði betur gegn Þór/KA í Boganum á Akureyri í 9. umferð Bestu deildar kvenna í dag. Lokatölur 0-2 þar sem Birta Georgsdóttir skoraði bæði mörk leiksins. Gestirnir hófu leikinn af miklum krafti og fékk Birta Georgsdóttir sannkallað dauðafæri á fjórðu mínútu leiksins en á einhvern ótrúlegan hátt setti hún boltann fram hjá markinu, en hún var alein gegn Jessicu í marki Þór/KA. Birta bætti upp fyrir klúðrið með því að koma Blikum í forystu eftir stundarfjórðung. Agla María þræddi þá boltann í gegnum vörn heimakvenna með langri sendingu í hlaupið hjá Birtu sem gerði vel í að klára færið. Blikar héldu mun meira í boltann og Þór/KA komst lítið áleiðis en nálgun þeirra á leikinn var nokkuð áhugaverð þar sem liðið reyndi að spila út frá markmanni og reyna svo að setja háan bolta inn fyrir vörnina þegar komið var lengra upp völlinn. Blikar pressuðu heimakonur vel og gerðu þeim erfitt fyrir. Birta Georgsdóttir tvöfaldaði forystu Breiðabliks á 35. mínútu eftir frábæran undirbúning frá Samönthu Smith sem geystist upp allan hægri kantinn áður en hún gaf boltann á Birtu inn á teignum, sem sneri og setti boltann laglega í netið. Þór/KA byrjaði seinni hálfleik vel og var Ellie Moreno óheppinn að minnka ekki muninn þegar Telma Ívarsdóttir í marki Blika varði vel frá henni eftir undirbúning frá Söndru Maríu. Síðari hálfleikur var mun betri að hálfu Þór/KA sem voru nokkrum sinnum nálægt því að minnka muninn en allt kom fyrir ekki. Næst komst Sandra María í uppbótatíma þegar hún þrumaði boltanum í slána og niður. Breiðablik fór því með sterkan 2-0 útisigur af hólmi og tyllir sér á topp deildarinnar með betri markatölu en Þróttur. Þór/KA áfram í fjórða sæti. Atvik leiksins Fyrsta mark leiksins. Frábær sending frá Öglu Maríu inn fyrir á Birtu sem klárar færið sitt vel. Kannski ekki með sjálfstraustið alveg í botni eftir að hafa klúðrað svakalegu færi stuttu áður en þarna gerði hún vel. Stjörnur og skúrkar Birta Georgsdóttir hefði hæglega getað skorað þrennu í dag. Var mjög ógnandi og alltaf til í að fá boltann og annað hvort sækja á sjálf eða búa til fyrir liðsfélaga sína. Kristín Dís tapaði vart návígi í leiknum og var sem klettur í vörninni. Agla María Albertsdóttir lagði upp mark og hefði hæglega getað skorað líka. Hjá Þór/KA varði Jessica Berlin nokkrum sinnum vel og gat ekkert gert í mörkum Blika. Margrét Árnadóttir hafði alveg ofboðslega mikið að gera á miðjunni gegn sterkri miðju Blika og á hrós skilið. Dómarinn Engin stór atriði sem hægt er að setja út á og heilt yfir vel dæmdur leikur. Stemning og umgjörð Umgjörðin eins góð og hún getur eflaust orðið í Boganum. Sérstakt hrós fá krakkar sem börðu á trommur og sungu allan leikinn. „Tvö mörk og sigur það eina sem skiptir máli“ Birta var ánægð með eigin frammistöðuVísir/Pawel Cieslikiewicz Birta Georgsdóttir, leikmaður Breiðabliks, skoraði bæði mörk Breiðabliks í 2-0 útisigri gegn Þór/KA og gat verið ánægð með frammistöðu liðsins sem og sína eigin. „Bara frábær tilfinning. Þetta var ótrúlega sterkur liðssigur og ég er ógeðslega ánægð með liðið mitt að hafa komið hérna á þennan útivöll og farið heim með þrjú stig.“ Hvað fannst þér ganga vel í fyrri hálfleik sem olli því að þið voruð betra liðið á vellinum? „Í rauninni bara, vorum búnar að æfa það, vissum að þær kæmu mikið með langa bolta og mér fannst við eiga ótrúlega vel við það og vissum að þær skilja eftir sig pláss á bak við sem við nýttum líka vel. Hefðum mátt vera rólegri á boltanum á köflum en heilt yfir bara góður sigur.“ Birta klúðraði dauðafæri í upphafi leiks og skellti upp úr þegar undirritaður minntist á atvikið. „Jú jú, ég horfði á þetta svona þrisvar sinnum í hálfleiknum, og ég skil ekki hvernig þessi bolti gat ekki farið inn, en ég skoraði tvö held að það hafi dugað í dag.“ Birta komst nokkrum sinnum nálægt því að innsigla þrennuna og viðurkennir að henni hafi klæjað í þriðja markið. „Já já, væntanlega langar manni að skora sem mest, en eins og ég segi tvö mörk hérna fyrir norðan og sigur er það eina sem skiptir máli.“ Birta er nú komin með fimm mörk í níu leikjum og kveðst ánægð með sína persónulegu frammistöðu hingað til. „Já og eins og ég segi, ég er í geggjuðu liði og það sem skiptir mig máli er að við erum komnar aftur á toppinn og þarf bara að klára næsta leik og enda þetta vel áður en við förum í pásuna“, sagði Birta en landsleikjahlé tekur við eftir næstu umferð þar sem Íslands leikur á EM. Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, sagði í viðtali eftir leikinn að frammistaða liðsins væru sú besta hingað til á tímabilinu og því kjörið tækifæri að spyrja Birtu hvort hún vildi vera ósammála þjálfaranum? „Þetta var liðssigur, mér fannst geggjað að vera inn á, við vorum ógeðslega þéttar og ógeðslega góðar. Bara samstíga í öllum aðgerðum og ég held að það sé rétt hjá honum að því leytinu til“, sagði Birta spekingsleg að endingu. „Klárlega okkar besta frammistaða á árinu“ Nik Chamberlain var mjög ánægður með frammistöðuna í dag. Nik Chamberlain, þjálfari Breiðabliks, var virkilega ánægður með sitt lið eftir 2-0 útisigur gegn Þór/KA og segi frammistöðuna vera sú bestu hjá liðinu á þessu ári. „Frábærar. Mér fannst við frábærar frá upphafi til enda, bæði varnar- og sóknarlega. Við komum inn í leikinn með mikilli orku og þegar við misstum boltann voru sóknarsinnuðu leikmennirnir okkar strax mættir að pressa þær svo þær gætu ekki komið af stað spili og náð löngu boltunum sínum því þær voru undir svo mikilli pressu,“ sagði Nik. „Varnarlega stóðum við okkur mjög vel og vörðum teiginn okkar mjög vel í báðum hálfleikjum þegar þær fengu sín færi. Með boltann vorum við lausnamiðaðar, við náðum ekki endilega eins mörgum sendingum og við hefðum viljað en þær gáfu okkur pláss á bak við og þá hugsuðum við bara að við myndum nýta okkur það og gerðum það í nokkur skipti.“ Þór/KA reyndi að spila út frá aftasta manni sem gekk ekkert allt of vel sökum pressu Blika sem Nik var mjög ánægður með. „Pressan var frábær. Alveg frá byrjun til enda, bæði varnar- og sóknarlega, gekk allt upp nákvæmlega eins og við vildum í dag. Ég held að þetta hafi klárlega verið besta frammistaðan okkar á árinu. Nokkrar stelpur voru algjörlega frábærar, Birta (Georgsdóttir) var ein þeirra, Karitas (Tómasdóttir) sem þurfti að koma inn í byrjunarliðið rétt fyrir leik í hægri bakvörðinn. Það er erfitt að taka einhverjar út fyrir sviga þar sem í dag fengum við alvöru liðsframmistöðu frá Breiðablik.“ Karitas Tómasdóttir var upphaflega ekki í byrjunarliðinu en þurfti að koma inn sökum meiðsla hjá Barbáru Sól Gísladóttur. „Barbára fann bara fyrir einhverju svipuðu og á móti HK svo við þurfum að fylgjast með henni næstu daga og líklega verður hún ekki með gegn Stjörnunni en svo hugsum við bara um restina af tímabilinu.“ Þór/KA kom sterkara til leiks í síðari hálfleik en Nik fannst sitt lið samt sem áður hafa völdin. „Smávegis, en við fengum alltaf sénsa þegar við fórum aftur fyrir, við reyndum ekki endilega það mikið á Jessicu (Berlin) í markinu en við settum nokkra bolta fyrir og á öðrum degi hefði það getað endað með marki. Fyrir utan skotið hjá Söndru (Maríu Jessen) í slána var ég í raun ekki áhyggjufullur af stöðunni varnarlega. Þær mega skjóta fyrir utan, við getum alltaf átt við það. Þær komu aðeins sterkari en við brugðumst vel við öllum hættum sem þær sköpuðu.“ „Við mætum Stjörnunni næst sem eru nýbúnar að sigra Þrótt, það er alltaf erfiður staður til að fara á, svo við þurfum bara að tryggja að við byggjum á þessari frammistöðu og höldum áfram á réttri vegferð“, sagði Nik að lokum. Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Breiðablik