Ferðaþjónusta

Ummæli starfsmanns Hafró verða ekki dregin til baka
Forstjórinn segir ofsa í umræðu sem þurfi að eiga sér stað.

Skemmtiferðaskip losar fínt svifryk á við þúsundir bíla
Mengunin getur orðið enn meiri undan vindi yfir byggð, að sögn dansks umhverfisverkfræðings sem mældi svifryksmegnun í Sundahöfn.

Tvíeggjað sverð
Oft er sagt að einn maður hafi bjargað Íslendingum úr hruninu og að það hafi verið ferðamaðurinn. Sviptingar á markaði undanfarið valda áhyggjum. Fall WOW air réði þar mestu.

Eyðslan minnkar höggið af fækkun ferðamanna í sumar
Ferðamönnum fækkaði um 17 prósent í júlí miðað við árið á undan. Framkvæmdastjóri SAF segir fækkunina skarpari en hann hefði viljað sjá. Sérfræðingur í greiningardeild Arion banka býst við að aukning í meðaleyðslu haldi áfram á næstunni. Verði það raunin mun það draga úr tekjutapi þjóðarbúsins.

Barðist við brimið eftir sundsprett í Reynisfjöru
Ferðamaður sem átti leið um Reynisfjöru seinni partinn í dag stakk sér þar til sunds.

Óska eftir því að ummæli starfsmanns Hafró verði dregin til baka
Stjórn Hvalaskoðunarsamtaka Íslands afar ósátt við ummæli starfsmannsins.

Ferðamenn fengu kústa og hrífur til að laga för eftir utanvegaakstur
Landverðir í Kerlingafjöllum stóðu erlenda ferðamenn að utanvegaakstri. Um minniháttar spjöll var að ræða. Fengu ferðamennirnir kústa og hrífur til þess að lagfæra hjólför sem komið höfðu eftir bifreið þeirra. Lögregla hefur málið til rannsóknar.

Hlupu út í Jökulsárlón og klifruðu upp á ísjaka
Tveir ungir menn hugsuðu sig ekki tvisvar um þegar þeir hlupu á undirfötunum út í Jökulsárlón fyrr í kvöld.

Gripið til aðgerða vegna ferðamannaágangs í Reykjahlíð
Umhverfisstofnun hefur takmarkað umferð um Hveri, Leirhnjúk og Stóra-Víti við Kröflu í Skútustaðahreppi.

Air Iceland Connect aftur hætt að fljúga milli Akureyrar og Keflavíkur
Markmið flugsins var að auka hlutdeild erlendra ferðamanna í innanlandsflugi.

Ísframleiðsla í Efstadal heimiluð að nýju
Heilbrigðiseftirlit Suðurlands hefur gert úttekt á ferðamannastaðnum og heimilað að framleiðsla íss hefjist á nýjan leik.

Flug milli Akureyrar og Bretlands úr sögunni með gjaldþroti Super Break
Breska ferðaskrifstofan Super Break, sem boðið hefur upp á beint flug milli Bretlands og Akureyrar, er hætt rekstri og hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta.

Duttu í lukkupottinn í ruslagámi í Austurstræti
Það er hægðarleikur að finna fullt af ætilegum mat í ruslatunnum Reykjavíkur.

Segir að svæsnustu brotin á vinnumarkaði séu í ferðaþjónustunni
Forseti ASÍ segir að svæsnustu brot sem verkalýðshreyfingar sjá á vinnumarkaði sé að finna í ferðaþjónustunni. Hún gagnrýnir hve litla aðkomu verkalýðshreyfingarnar hafi að stefnumótun í ferðaþjónustu í ljósi fjölda brota.

British Airways fækkar ferðum til Íslands í vetur
Á komandi vetri verða ferðirnar sjö á viku yfir alla vetrarmánuðina.

Ók með ferðamenn um Suðurland án réttinda
Lögregla á Suðurlandi stöðvaði í gær ökumann 50 sæta rútu, sem reyndist aka með útrunnin ökuréttindi.

Veitingaskáli á Myrká heima hjá frægasta draugi Íslands
Hverjum gæti dottið í hug að byggja upp ferðaþjónustu á grunni draugasögu? Jú, bændunum á Myrká þar sem djákninn ásótti Guðrúnu forðum og kallaði Garúnu.

Hornafjarðarflugvöllur með blæ alþjóðavallar
Annir voru á Hornafjarðarflugvelli í morgun þegar þar voru á sama tíma Bombardier Q400 vél frá Flugfélagi Íslands og Jetstream-vél frá Flugfélaginu Erni og flestir farþeganna erlendir ferðamenn.

Beint flug stærsta hagsmunamál ferðaþjónustunnar á landsbyggðinni
Bæði framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands og bæjarstjórinn á Akureyri segjast finna fyrir fækkun ferðamanna á Norðurlandi. Brýnt sé að grípa í taumana fyrir veturinn.

„Einhvers konar met í afneitun“ að móta stefnu í ferðaþjónustu án tillits til vinnandi fólks
Forseti ASÍ segir meira en 70% af tíma verkalýðshreyfingarinnar sé varið í að leysa úr málum innan ferðaþjónustunnar.

Margir vanmeta aðstæður við Fimmvörðuháls
Þrjú slys urðu á aðeins fimm dögum á Fimmvörðuhálsi fyrir skemmstu. Einn hinna slösuðu var Íslendingur og hinir tveir erlendir ferðamenn.

Ætla að bjóða þyrluflug í fólkvanginum í Glerárdal
Félagið Circle Air hyggst selja fjallahjólreiðafólki þyrluferðir í fólkvanginum í Glerárdal svo það geti hjólað niður fjöll, og einnig aðstandendum þátttakenda í "Sulur Vertical“ utanvegahlaupinu.

Ævintýri kærustupars í tjaldi í Laugardalnum
Háskólanemi frá Grikklandi hefur búið ásamt kærasta sínum í tjaldi í Laugardal frá því í júní og hyggst búa þar fram á haust. Katerina Parouka segist ekki kvíða kuldanum sem fylgi haustinu heldur njóti hún þess að sofa í tjaldinu.

Mikil ánægja með ævintýrasiglingu um Breiðafjörðinn
Farþegar, sem fara með Særúnu um Breiðafjörðinn eru mjög hrifnir og ánægðir með siglinguna, sem boðið er upp á. Hún tekur tvær klukkustundir og fimmtán mínútur.

Enginn pirraður á Kurt
Á þjóðvegum landsins hafa margir tekið eftir manni á traktor með áfast hjólhýsi. Þetta er hinn danski Kurt L. Frederiksen sem er að aka hringinn í kringum Ísland og upp um fjöll og firnindi.

Telja skemmtiferðaskipin á réttri leið í mengunarmálum
Hafnarstjórar Faxaflóahafna og Akureyrarhafnar eru sammála því að langt sé í að stærstu skemmtiferðaskipin geti tengst rafmagni í höfnum landsins sem myndi draga úr loftmengun. Fyrst þurfi að byggja upp innviði sem dugi minni skipunum. Komum skemmtiferðaskipa hefur fjölgað mikið á undanförnum árum.

Skyggnst inn í Drottninguna við Skarfabakka
Farþegaskipið Queen Mary 2 lagðist að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík í morgun.

Metfjöldi skemmtiferðaskipa í ár
Skemmtiferðaskipið Queen Mary 2 sem liggur við bryggju í Reykjavík er lengsta skip sem komið hefur til landsins.

345 metra farþegaskip í Reykjavík
Farþegaskipið RMS Queen Mary 2 er í þann mund að leggja að bryggju við Skarfabakka í Reykjavík.

Starfsfólk íslensks hótels tók upp klámmyndband á vinnustaðnum
Fólkinu hefur síðan verið sagt upp störfum.