Lífið samstarf

Ísland vill sjá þig í sumar: Bílabúð Benna leggur ferðaþjónustunni lið

Bílabúð Benna
Ísland vill sjá þig í sumar
Ísland vill sjá þig í sumar

Það dylst engum að fækkun erlendra ferðamanna sökum Covid-ástandsins mun óhjákvæmilega koma hart niður á ferðaþjónustunni á Íslandi. Sú atvinnugrein hefur verið byggð upp af miklum metnaði undanfarin ár, skapað gríðarlegan fjölda spennandi starfa og fært þjóðarbúinu ómæld verðmæti.

Öllum vandamálum fylgja þó tækifæri. Bílabúð Benna ríður á vaðið með markaðsherferð undir yfirskriftinni: Ísland vill sjá þig í sumar, í samstarfi við Fosshótel, Orkuna og Bylgjuna.

Benedikt Eyjólfsson forstjóri Bílabúðar BennaVilhelm

Hótelgisting morgunmatur og bensín fylgir kaupum á völdum notuðum bílum

„Með átakinu viljum við hvetja Íslendinga til að gera gott úr ástandinu, kynnast landinu sínu betur og nýta plássið sem erlendu gestirnir okkar hefðu annars notið,“ segir Benedikt Eyjólfsson, forstjóri Bílabúðar Benna.

„Við erum stolt af því að styðja íslenska ferðaþjónustu í verki og látum í því skyni, sjö nætur á Fosshótelum með morgunverði og eldsneytiskort frá Orkunni, fylgja í kaupauka með völdum notuðum bílum.“

Skráðu þig í pott og þú gætir unnið ævintýraferð fyrir tvo

„Þá erum við líka með í gangi Ævintýrapott, þar sem allir geta tekið þátt og unnið margs konar ævintýraupplifun með samstarfsaðilum okkar úr ferðaþjónustunni,“ segir Benedikt. Skráðu þig í pottinn hér. Í ævintýrapottinum leynast ferðir fyrir tvo með Íshestum, hressandi sjóferð fyrir tvo með hvalaskoðunarfyrirtækinu Eldingu, spennandi ferð á Langjökul með Into the Glacier og fjórhjólaferð um svartar strendurnar við Þorlákshöfn með Black Beach Tours.

Úrval notaðra bíla er að finna hjá Bílabúð Benna. 

Enn hægt að gera frábær bílakaup

„Síðast en ekki síst vil ég nefna að þrátt fyrir allt að 15% gengisfall krónunnar, höfum við tekið þá ákvörðun að hækka ekki verð á nýjum bílum, en þar er að sjálfsögðu um takmarkað magn bíla að ræða og enn hægt að gera frábær kaup,“ segir Benedikt.

Vísir hefur tekið saman yfirlit yfir perlur Íslands. Þar má fá hugmyndir að spennandi áfangastöðum fyrir ferðaævintýri sumarsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×