Féll í sprungu í Grindavík „
1 2 ›
„Við munum berjast fyrir því til síðasta dags að fá pabba aftur“ „Ég myndi ekki óska mínum versta óvini að upplifa það sem við upplifðum,” segir Ásta Kristín Lúðvíksdóttir, dóttir Lúðvíks Péturssonar sem féll ofan í sprungu og lést þegar unnið var að því að bjarga húsi í Hópshverfi í Grindavík í janúar árið 2024. Þriggja daga leit fór fram eftir að hann hvarf, sem var að endingu blásin af vegna erfiðra og hættulegra aðstæðna á vettvangi. Í dag, tveimur árum síðar, situr fjölskylda Lúðvíks uppi með ótal spurningar en lítið er um svör. Innlent 9.12.2025 08:02
Grindvíkingar hugsa um að fara heim: Gott að vera í Grindavík en verður aldrei eins Grindvíkingar hugsa nú margir um möguleikann á því að flytja aftur heim. Grindavíkurnefndin vinnur að því að kanna hug Grindvíkinga til framtíðar í Grindavík og fasteignafélagið Þórkatla vinnur að endurkaupaáætlun fyrir Grindvíkinga sem seldu félaginu húsið sitt eftir rýmingu. Veðurstofan hefur spáð eldgosi á næstu vikum en segir óvissu þó hlaupa á mánuðum. Innlent 8.12.2025 06:31
Fréttamynd ársins er af sprunguleit í Grindavík Eggert Jóhannesson og Golli hlutu í dag verðlaun fyrir mynd ársins og fréttamynd ársins 2024. Verðlaunin voru afhent í Ljósmyndasafni Reykjavíkur, en þar var á sama tíma opnuð ljósmyndasýning sem verður opin til 27. apríl 2025. Innlent 22.3.2025 15:43
Fimm með réttarstöðu sakbornings vegna andláts í Grindavík Lögreglan á Suðurnesjum lauk í síðustu viku rannsókn sinni á banaslysi í Grindavík þann 10. janúar í fyrra. Fimm hafa réttarstöðu sakbornings í málinu að sögn Úlfars Lúðvíkssonar lögreglustjóra á Suðurnesjum. Málið er nú á borði héraðssaksóknara. Innlent 12.2.2025 20:39
Krefjast þess að faðir þeirra verði úrskurðaður látinn Börn Lúðvíks Péturssonar, sem féll í sprungu í Grindavík fyrir rétt tæpu ári, hafa krafist þess fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur að ákveðið verði með dómi að faðir þeirra sé talinn látinn. Innlent 16.12.2024 12:58
Ekki vanhæfur til að rannsaka banaslysið Lögreglustjórinn á Suðurnesjum var ekki vanhæfur til þess að fara með rannsókn banaslyss sem varð í Grindavík í janúar á þessu ári. Þetta er niðurstaða Ríkissaksóknara. Innlent 7.11.2024 13:29
Telur lykilspurningum um banaslysið enn ósvarað Bróðir Lúðvíks Péturssonar sem lést í vinnuslysi í Grindavík þann 10. janúar segir skýrslu Vinnueftirlitsins styðja eðlilega ósk fjölskyldunnar að heildstæð rannsókn verði gerð að aðdraganda slyssins og eftirleik þess. Innlent 1.10.2024 12:35
Ekkert skriflegt áhættumat og spurt hvort vinnan hafi verið áhættunnar virði Vinnueftirlitið segir að slysið í Grindavík í janúar, þar sem maður féll ofan í sprungu, megi rekja til þess að ekki hafi verið til staðar fullnægjandi áhættumat og að ekki hafi farið fram nægilega góð kynning á helstu hættum sem gætu steðjað að þeim sem ynnu á vettvangi. Þá veltir Vinnueftirlitið því fram hvort verkið sem var unnið hafi verið áhættunnar virði. Innlent 1.10.2024 10:50
„Þetta er óþarfa tjón“ Jarðeðlisfræðingur segir andvaraleysi hafa ríkt í skipulagsmálum með tilliti til náttúruvár. Til að mynda hefði verið hægt að koma í veg fyrir tjón í Grindavík. Innlent 11.2.2024 13:16
Unnur minnist unnusta síns Lúðvíks sem hvarf í sprungu Minningarathöfn um Lúðvík Pétursson var haldin í Langholtskirkju í dag, föstudaginn 9. febrúar, en hann týndist í Grindavík 10. janúar sl. þegar hann var að vinna við að fylla sprungur fyrir Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Innlent 9.2.2024 17:00
Segir ekki hægt að kalla fall mannsins í sprunguna slys Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir ekki hægt að kalla það þegar maður féll í sprungu í Grindavík slys. Hann telur óafsakanlegt að vinna hafi þegar verið hafin við að fylla í sprungur sem ekki var nauðsynlegt að fylla í, né heldur að hann hafi verið einn að störfum. Innlent 31.1.2024 08:30
Vinnueftirlitið rannsakar slysið í Grindavík og vill lögregluskýrslu Vinnueftirlitið rannsakar nú vinnuslysið í Grindavík, þar sem maður féll ofan í sprungu. Hefur eftirlitið óskað eftir lögregluskýrslu um málið. Innlent 29.1.2024 06:51
Fjölskyldan kallar eftir rannsókn óháðra aðila á hvarfinu Fjölskylda mannsins sem féll ofan í sprungu í Grindavík þann 10. janúar á þessu ári vill að hvarf hans verði rannsakað af óháðum aðilum. Fjölskyldan vill svör um aðdraganda og aðstæður á vettvangi þar sem maðurinn, Lúðvík Pétursson, var við störf. Innlent 26.1.2024 06:57
Áfram líkur á að gossprungur opnist án fyrirvara Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi en of snemmt er að segja til um hraða landrissins svo snemma eftir eldgos. Samkvæmt reiknilíkönum liggur kvika grunnt í suðurenda kvikugangsins, þar virðist landið vera mikið sprungið og kvikan eigi því auðvelt með að komast upp á yfirborðið. Áfram eru því líkur á að nýjar gossprungur opnist án fyrirvara. Innlent 17.1.2024 14:53
Gefa sér ekki tíma til að óttast Pípulagningameistari sem fer fyrir vinnu í Grindavíkurbæ segir að unnið sé í kappi við tímann við að koma vatni og rafmagni á bæinn. Vinnumenn gefi sér ekki tíma til þess að óttast um eigið öryggi innan bæjarins en fari auðvitað varlega. Innlent 17.1.2024 11:50
Bein útsending: Íbúafundur Grindvíkinga Íbúafundur íbúa Grindavíkurbæjar í Laugardalshöll hefst klukkan 17 í dag. Fundinn má sjá í beinni útsendingu hér að neðan. Innlent 16.1.2024 16:30
Brotnir verktakar fari grjótharðir áfram á hnefanum Fjöldi íbúa Grindavíkur hefur skrifað undir pappíra sem heimila viðbragðsaðilum að fara inn í hús þeirr,a til þess að kanna ástand hitakerfa fasteigna, og afhent þeim lykla að heimilum sínum. Einn þeirra segir einsýnt að halda verði viðgerðum í bænum áfram. Verktakar hafi brotnað við slysið í bænum en fari áfram á hnefanum. Innlent 16.1.2024 16:11
Forsetinn boðar samstöðu og enga uppgjöf Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands vitnaði í forvera sinn Kristján Eldjárn og Snorra goða í ávarpi um kvöldmatarleytið þar sem hann blés baráttuhug í landsmenn. Skilaboðin voru skýr; við gefumst ekki upp. Innlent 14.1.2024 20:36
Nafn mannsins sem saknað er eftir vinnuslysið Maðurinn sem saknað er eftir vinnuslys sem varð í Grindavík þann 10. janúar heitir Lúðvík Pétursson. Innlent 13.1.2024 18:08
Almannavarnir funda með ráðamönnum um áhættu í Grindavík Almannavarnir funda í dag með ráðamönnum og hagaðilum um framhaldið í Grindavík. Áhættur sem fylgja því að vera í bænum verða metnar. Innlent 13.1.2024 12:33
Ekki hægt að réttlæta áframhaldandi leit Ekki var hægt að réttlæta áframhaldandi leit að manni sem féll niður um sprungu í Grindavík í gær vegna lífshættulegra aðstæðna við björgun, að sögn lögreglustjóra. Svipað hættulegar sprungur finnist víða í Grindavík. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í bænum. Innlent 13.1.2024 12:10
Hætta að meta tjón í Grindavík í bili Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur gert hlé á tjónamati í Grindavík í ljósi atburða vikunnar. Stofnunin hefur unnið að mati á tjóni á fasteignum og innviðum í bænum frá því náttúruhamfarirnar hófust í nóvember síðastliðnum. Innlent 13.1.2024 10:31
Hætta leitinni að manninum Úlfar Lúðvíksson, lögreglustjóri á Suðurnesjum segir að leitin að manninum sem féll ofan í sprungu í Grindavík sé hætt vegna hve erfiðar aðstæður eru. Innlent 12.1.2024 19:14
Hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag Leit að manni sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í Grindavík er hafin á ný. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir leit ganga vel og að hann sé hæfilega bjartsýnn á að maðurinn finnist í dag. Innlent 12.1.2024 12:15
Hefja leit á ný Leit að manninum, sem talið er að hafi fallið ofan í sprungu í Grindavík á miðvikudag, er hafin á ný. Leit var frestað í gærkvöldi vegna hættulegra aðstæðna á svæðinu. Innlent 12.1.2024 10:09
Hlé gert á leitinni í Grindavík í nótt Á tólfta tímanum í gærkvöldi var gert hlé á leitinni að manninum sem féll í sprungu í Grindavík sökum aðstæðna á slysstað. Innlent 12.1.2024 06:51
„Það styttist í það eftir því sem lengur er unnið“ Enn er leitað að manni sem féll ofan í sprungu við framkvæmdir í Grindavík í gær. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi slysavarnafélagsins Landsbjargar, segir í samtali við fréttastofu að aðstæður við björgunarstarfið séu erfiðar. Innlent 11.1.2024 22:32
Hrun í miðri sprungu dró manninn með sér Fannar Jónasson bæjarstjóri Grindavíkur segir mál mannsins sem talinn er hafa fallið ofan í við sprunguinnfyllingu vera bakslag fyrir Grindvíkinga. Þetta segir hann í viðtali við Stöð 2 í dag. Innlent 11.1.2024 18:41
Hægur gangur í leitinni en rofar til Hjálmar Hallgrímsson, sem stýrir aðgerðum á vettvangi í Grindavík, segir að unnið sé hörðum höndum að því að greiða fyrir aðgengi í sprungunni, sem talið er að maður hafi fallið ofan í. Innlent 11.1.2024 15:30
„Við erum bæði sorgmædd og slegin“ Bæjarstjóri Grindavíkur segir bæjarbúa bæði vera sorgmædda og slegna eftir atburði gærdagsins og yfirstandandi leit að manni, sem talinn er hafa fallið ofan í sprungu í bænum. Hugur allra Grindvíkinga sé hjá aðstandendum mannsins. Innlent 11.1.2024 11:41