

Halla Gunnarsdóttir
Greinar eftir Höllu Gunnarsdóttur, formann VR.

Nú ertu á (síðasta) séns!
Kosningar í VR hafa nú staðið yfir í tæpa viku, en enn er séns, annars vegar til að kjósa og hins vegar til að tryggja áframhaldandi öfluga forystu í VR! Kosningabaráttan hefur verið ótrúlega skemmtileg og lifandi og að allra mestu leyti jákvæð og uppbyggileg.
Fréttir í tímaröð

Yfir til ykkar, VR-ingar!
Á slaginu 10 í dag hefjast kosningar til formanns VR. Ég tók við embættinu fyrir nokkrum mánuðum síðan þegar forveri minn leitaði á ný mið en ég var þá varaformaður félagins. Þessir mánuðir hafa verið ævintýri líkastir.

Bætt réttindi VR félaga frá áramótum
Litlar breytingar á réttindum félaga í VR geta skipt sköpum fyrir einstaklinga sem þurfa að nýta sér réttindin. Of lengi hefur staðan verið þannig að annað hvort ertu í fullu starfi eða þú ert utan vinnumarkaðar.

Hugmynd af barnum árið 2005
Fyrir góðum tuttugu árum síðan sat ég á bar með góðri vinkonu minni, nánar tiltekið á Ölstofu Kormáks & Skjaldar í þeim reykjarmekki sem þá þótti eðlilegur fyrir bari.

Geðheilsuskatturinn
Um árabil hefur VR stéttarfélag vakið athygli á því misræmi sem er á skattalegri meðferð styrkja stéttarfélaga eftir því til hvers styrkurinn er veittur. Sérstaklega er hrópandi misræmi á milli styrkja sem félagsfólk nýtur eftir því hvort það vill rækta sína andlegu eða líkamlegu heilsu.

Blað brotið í húsnæðismálum: VR Blær afhendir sínar fyrstu íbúðir
Á föstudag var brotið blað í húsnæðismálum þegar VR Blær afhenti yfir tuttugu leiguíbúðir í glæsilegu fjölbýlishúsi í Úlfarsárdal.Íbúðir VR Blævar eru byggðar eftir nýrri hugsun á leigumarkaði þar sem örugg afkoma og búsetuöryggi eru í fyrirrúmi.

Fóturinn tekinn af vegna tannpínu
Eftir því sem stjórnmálaflokkarnir sýna meira á spilin í aðdraganda Alþingiskosninga er erfitt að verjast þeirri hugsun að þjóðin hafi leitað til læknis með svæsna tannpínu og áformað sé að takast á við það með því að höggva af henni fótinn.

Niðurskurðurinn sem enginn bað um
Á haustdögum, nánar tiltekið á þingsetningardegi, efndu ASÍ, BSRB og KÍ til útifundar á Austurvelli til að mótmæla þeim áhrifum sem þrálát verðbólga og háir vextir hafa haft á venjulegt fólk. Innan þessara regnhlífasamtaka er þorri vinnandi fólks á Íslandi og krafan á fundinum var skýr: ríkisstjórnin væri ekki á vetur setjandi nema hún væri reiðubúin að takast á við efnahagsvandann út frá almannahag.

Hvað er niðurskurðarstefna?
Það var kallað sparnaðarþingið mikla, vorþingið árið 1924, þegar ríkisstjórn Íhaldsflokksins réðist í niðurskurð á öllu sem hægt var að skera niður. Framkvæmdir voru stöðvaðar, snardregið úr fjárframlagi til menntamála, vísinda og lista og ráðist í umfangsmikla einkavæðingu á ríkisstofnunum.

Atlaga að kjarasamningum
Hafnarfjarðarbær hefur gefið það út að börn í Hafnarfirði eigi héðan í frá að koma með liti og blýanta í skólann til að „sporna gegn sóun“. Það gefur auga leið að sóun lita verður miklu meiri ef öll börn þurfa að eiga gulan, rauðan, grænan og bláan, og auðvitað tré, vax og túss, til að mæta með í skólann.

Skammsýni í leikskólamálum – VR efnir til málþings
Nokkur sveitarfélög hafa nú riðið á vaðið með að stytta leikskóladag barna í sex klukkustundir. Hin æskilega samfélagsbreyting væri að sjálfsögðu sex klukkustunda vinnudagur sem síðan gæti leitt til styttri leikskóladags og meiri samvista barna og foreldra.

Húðlatt (og rauðeygt) foreldri skrifar um leikskólamál
Nú kemur sá árstími að rauðeygðu fólki fjölgar í nágrenni leikskóla að morgni til. Þetta eru foreldrar ungra barna sem eru að aðlagast leikskólalífi.

Útvötnuð kærunefnd
Fyrir Alþingi liggur nú frumvarp innanríkisráðherra til breytinga á lögum um útlendinga. Þar er meðal annars kveðið á um sjálfstæða kærunefnd sem mun fjalla um kærumál á grundvelli útlendingalaga, í stað innanríkisráðuneytisins líkt og nú er. Það er jákvætt ef myndast getur þverpólitísk samstaða um að koma slíkri kærunefnd á laggirnar,

Útlendingamál og rangfærslur Pawels
Pawel Bartoszek skrifar um margt ágæta grein í Fréttablaðið 14. júní sl. þar sem hann fjallar um útlendingamál.

Samfélagsleg áhrif kláms
Innanríkisráðuneytið og lagadeild Háskóla Íslands hafa undanfarin misseri efnt til umræðu um meðferð kynferðisbrota í réttarvörslukerfinu. Hófst þetta ferli haustið 2010 með stórum samráðsfundi þáverandi dómsmála- og mannréttindaráðuneytis og í framhaldinu smærri fundum með fulltrúum réttarvörslukerfisins, fræðasamfélagsins, stofnana og frjálsra félagasamtaka. Í framhaldi af samráðinu hefur verið gripið til fjölmargra aðgerða og má þar nefna lagabreytingar, ráðstefnuhald, aukið formlegt samráð varðandi rannsókn kynferðisbrota og gerð fræðilegrar rannsóknar sem nú stendur yfir.

Tækifæri til breytinga í Blaðamannafélaginu
Fyrir rétt um ári síðan hélt Blaðamannafélag Íslands aðalfund sinn við heldur skrítnar aðstæður. Meirihluti stjórnar hafði neitað að samþykkja ársreikninga félagsins vegna skorts á upplýsingum frá framkvæmdastjóra félagsins, til margra ára, um fjárhagsstöðu BÍ.

Forgangsröðum upp á nýtt
Það hlýtur að teljast sérstakt að á sama tíma og Íslendingar ganga í gegnum djúpa kreppu skuli forystumenn Samtaka atvinnulífsins og Alþýðusambands Íslands tala einum rómi í mörgum mikilvægustu málum í þjóðfélagsumræðunni. Svo er komið að í fréttum þarf oft ekki nema eina samhljóða fyrirsögn og síðan er hægt að skrifa fréttina með endurtekningunni: „Vilhjálmur Egilsson og Gylfi Arnbjörnsson segja…" Hnífurinn gengur ekki milli þeirra.

Fullkomið jafnrétti?
"Hér er fullkomið jafnrétti milli karla og kvenna og hefur lengi verið." Það væri eflaust hægt að nota ofangreind ummæli í spurningakeppni og láta þátttakendur giska á hvenær þau féllu og af hvaða tilefni. Sjálf gæti ég haldið að þau væru úr einhverri framtíðarkvikmyndinni og ættu raunar ekki við fyrr en árið 4312. Svo er þó ekki. Þessi orð eru úr leiðara Morgunblaðsins frá árinu 1926.