Blóðgjöf

Fréttamynd

Á morgun mega hommar gefa blóð

Á morgun mega allir óháð kyni eða kynhneigð gefa blóð þegar ný reglugerð heilbrigðisráðherra tekur gildi. Sérstök skimun var innleidd hjá Blóðbankanum sem hafði gefið góða raun.

Innlent
Fréttamynd

Hvetja fólk til að gerast gjafar: „Það er alltaf pláss fyrir fleiri gæða­blóð“

Björn Skúlason, eiginmaður Höllu Tómasdóttur forseta Íslands, er einn þeirra sem vakið hafa athygli á því að alþjóðlegi blóðgjafadagurinn hafi verið í gær, þann 14. júní. Blóðbankinn flutti í vetur af Snorrabraut í Reykjavík og yfir í Kringluna en aðstaðan er stórbætt og mun auðveldara fyrir blóðgjafa að koma og gefa blóð, að sögn yfirlæknis. Það sé alltaf vöntun á fleiri blóðgjöfum og hann hvetji alla til að kynna sér hvort þeir geti mögulegir orðið gjafar.

Innlent
Fréttamynd

Blóð­bankinn á leið í Kringluna

Til stendur að flytja starfsemi Blóðbankans í svokallaðan Stóra turn í Kringlunni þar til að framtíðarhúsnæði bankans í rannsóknarhúsi nýja Landspítalans verður tilbúið.

Innlent
Fréttamynd

Hommar mega enn ekki gefa blóð

Samkynhneigðir karlmenn mega enn ekki gefa blóð á Íslandi. Fjallað var um það í fréttum í október á síðasta ári að búið væri að breyta reglugerð þannig að samkynhneigðir karlmenn mættu gefa blóð og að reglugerðin myndi taka gildi í dag, 1. júlí.

Innlent
Fréttamynd

Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum

Þann 14. júní ár hvert sameinast heimurinn í að fagna Alþjóðlega blóðgjafadeginum. Á þeim degi er þakklæti sýnt þeim sem gefa blóð af fúsum og frjálsum vilja. Dagurinn er einnig nýttur til að vekja athygli á brýnni þörf fyrir fjölgun á blóðgjöfum. Þema dagsins í ár er: „Gefðu blóð, gefðu von: saman björgum við lífum“og undirstrikar það mikilvægi þess að blóðgjafar bjarga mannslífum og mikilvægi samfélagslegrar samstöðu.

Skoðun
Fréttamynd

„Maðurinn með gullarminn“ látinn

James Harrison, þekktur í Ástralíu sem „maðurinn með gullarminn“, er látinn. Á yfir 60 árum gaf Harrison blóðvökva alls 1.173 sinnum og bjargaði lífi 2,4 milljón barna. 

Erlent
Fréttamynd

Fagna löngu tíma­bærri breytingu

Formaður Samtakanna '78 fagnar mjög reglugerðarbreytingu sem mun gera samkynhneigðum körlum kleift að gefa blóð. Hún segir breytinguna löngu tímabæra en nú þegar hún sé gengin í gegn sé farsælla að horfa fram á veginn fremur en að dvelja við fortíðina. 

Innlent
Fréttamynd

Loksins mega hommar gefa blóð

Samkynhneigðir karlmenn fá að gefa blóð hér á landi frá og með júlí á næsta ári. Heilbrigðisráðherra segir mikið ánægjuefni að þetta skref sé loks tekið

Innlent
Fréttamynd

Ó­venju­legt ættar­mót við Snorra­braut

Blóðgjafi sem nýverið fagnaði sjötugsafmæli gaf í morgun blóð í hinsta sinn vegna aldurs, þrátt fyrir að vera við hestaheilsu. Hann skilur við Blóðbankann með trega en vonar að börn hans, sem öll voru einnig mætt í blóðgjöf föður sínum til stuðnings, taki við keflinu. Sár vöntun er á blóðgjöfum um þessar mundir.

Innlent
Fréttamynd

Ljúf­sár hinsta heim­sókn í Blóðbankann

Maður sem gaf blóð í síðasta sinn með viðhöfn í morgun segir blendnar tilfinningar fylgja hinstu blóðgjöfinni, sem jafnframt er númer 250 á ferlinum. Formaður Blóðgjafafélagsins hefur áhyggjur af ítrekuðum neyðarköllum frá Blóðbankanum og hvetur fólk að skrá sig til leiks, sérstaklega konur.

Innlent
Fréttamynd

Blóð­gjöf - Taktu þátt

Fullyrða má að minnsti banki landsins sé jafnframt sá mikilvægasti fyrir alla íbúa. Hér er átt við Blóðbankann, banka sem allir Íslendingar reiða sig á, eða ættu í það minnsta að gera það.

Skoðun
Fréttamynd

Mygla í Blóðbankanum hafi ekki á­hrif á starf­semi bankans

Mygla greindist í Blóðbankanum í sumar. Læknir segir ekkert benda til þess að mygla og raki hafi áhrif á blóð sem geymt er í bankanum, loftgæði séu góð í húsinu og forsvaranlegt að halda starfseminni áfram. Öryggi starfsmanna, blóðgjafa og starfseminnar sé tryggt. 

Innlent
Fréttamynd

Hommar eru gæða­blóð

Árið 2006 á Hinsegin dögum gengu hinsegin stúdentar undir slagorðinu „Hommar eru gæðablóð“ og ég tel flest ekki þurfa að hugsa sig lengi um af hverju. Jú, það er vegna mismununar milli kynhneigða í reglum um hver megi gefa blóð. Það var alls ekki fyrsta né síðasta skiptið sem vakin var athygli á þessu og nú gerum við það enn og aftur.

Skoðun
Fréttamynd

Sam­- og tví­kyn­hneigðir karl­ar mega gefa blóð

Matvæla- og lyfjaeftirlit Bandaríkjanna hefur bundið enda á fjörutíu ára bann við blóðgjöfum samkynhneigðra og tvíkynhneigðra karlmanna þar í landi. Í staðinn munu allir blóðgjafar svara spurningalista um kynlíf sitt. Á Íslandi er enn beðið eftir sambærilegum breytingum.

Erlent
Fréttamynd

Hin­segin réttindi - hvar stendur Ís­land

Þegar jafnréttisbarátta hinsegin fólks er til umræðu í samfélaginu nú til dags er oft einblínt á persónulegu hliðina. Við fáum að heyra reynslusögur og skoðanapistla um fordóma og mismunun í garð hinsegin fólks. Þessar sögur eiga fyllilega rétt á sér, það er mikilvægt að þær séu sagðar, og að á þær sé hlustað, en þær einar og sér birta ekki heildarmyndina.

Skoðun
Fréttamynd

Er þitt blóð verra en mitt?

Nú þegar hinsegin dagar ganga í garð er gott að líta aðeins í kringum sig og hugsa. Hugsa afhverju erum við enn að minna á rétt hinsegin fólks og baráttu þeirra? Hugsa hvað viljum við gera betur? Og hvar getum við gert betur?

Skoðun
  • «
  • 1
  • 2