Stéttarfélög
1 2 3 4 5 6 … 27 ›
Efling lætur ekki af aðgerðum á meðan SVEIT endurskoðar samning Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir félagið ekki láta af aðgerðum gagnvart fyrirtækjum innan SVEIT, Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, þótt samtökin ætli að endurskoða kjarasamning sem samtökin gerðu við stéttarfélagið Virðingu. Virðing hafnar því að félagið fremji lögbrot og segist ætla að laga misfellur í samningi. Innlent 11.12.2024 15:26
SVEIT endurskoðar kjarasamning við Virðingu SVEIT, Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, hafa ákveðið að taka til endurskoðunar kjarasamninga þá sem í gildi eru við stéttarfélagið Virðingu. SVEIT vonast til þess að Efling láti af fyrirhuguðum aðgerðum á meðan endurskoðun stendur. Frá þessu er greint í tilkynningu frá SVEIT. Innlent 11.12.2024 14:14
Enginn skilningur á alvarleika málsins hjá SVEIT Fimmtungur meðlima samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði (SVEIT) hefur sagt sig úr samtökunum eftir að Efling tilkynnti um aðgerðir gegn þeim. Formaður Eflingar segir aðgerðirnar gríðarlega nauðsynlegar. Innlent 11.12.2024 13:02
Fimmtungur veitingastaða sem Efling sendi bréf hefur sagt sig úr SVEIT Fimmtungur allra þeirra fyrirtækja sem Efling stéttarfélag sendi bréf vegna kjarasamnings SVEIT, samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, við stéttarfélagið Virðingu, hefur sagt sig úr samtökunum. Þá hafa enn fleiri fyrirtæki lýst því að þau muni fylgja kjarasamningum Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Innlent 11.12.2024 10:06
Birta nöfn og vörumerki tengd SVEIT í mótmælaskyni Efling stéttarfélag hefur sent erindi á forsvarsfólk 108 veitingastaða á höfuðborgarsvæðinu, sem eru aðilar að SVEIT, samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði. Þar er þeim tilkynnt um ýmsar aðgerðir sem Efling mun standa fyrir vegna aðkomu samtakanna að stofnun stéttarfélagsins Virðingar. Innlent 10.12.2024 13:46
BSRB og BHM taka undir gagnrýni á stéttarfélagið Virðingu BHM og BSRB segja stofnun stéttarfélagsins Virðingar ganga gegn grundvallarreglum á vinnumarkaði og taka undir gagnrýni Eflingar, Eflingar-Iðju og Alþýðusambands Íslands á stofnun félagsins. Félagið er stofnað af atvinnurekendum í veitingarekstri, Samtökum fyrirtækja á veitingamarkaði, SVEIT. Innlent 10.12.2024 11:19
Bauna á SVEIT og kjarasamninga sem standist ekki lög Í tilkynningu stéttarfélagsins Eflingar er því haldið fram að kjarasamningur sem stéttarfélagið Virðing hefur við SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, gangi gegn ákvæðum fjölda laga og skerði rétt launþega til muna. Innlent 7.12.2024 13:13
Framtíð Kristjáns Þórðar hjá RSÍ ræðst í janúar Kristján Þórður Snæbjarnarson, nýkjörinn þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík og formaður Rafiðnaðarsambands Íslands er kominn í leyfi frá störfum hjá sambandinu fram í janúar. Boðað verður til aukaþings eftir áramót þar sem framtíð Kristján hjá sambandinu skýrist. Innlent 6.12.2024 14:02
Taka ekki þátt í orðræðu og átökum Eflingar SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði, hafa ákveðið að taka ekki þátt í „þeirri neikvæðu orðræðu og átökum sem hafa einkennt málflutning Eflingar undanfarin ár í garð veitingareksturs á Íslandi.“ Samtökin hafi ítrekað reynt að semja við Eflingu en hafi nú samið við stéttarfélagið Virðingu til fjögurra ára. Innlent 5.12.2024 16:10
Segjast ekkert tengjast meintu gervistéttarfélagi Efling hefur sakað atvinnurekendafélagið SVEIT um að reka „gervistéttarfélag“. Formaður Eflingar segir að ráðist sé að öllum mikilvægustu réttindum fólks á vinnumarkaði. SVEIT vísar ásökunum Eflingar á bug. Innlent 5.12.2024 12:08
Ragnar Þór hættur hjá VR og Halla tekin við Ragnar Þór Ingólfsson hefur tilkynnt afsögn sína sem formaður VR. Hann var sem kunnugt er kjörinn á Alþingi á laugardag. Halla Gunnarsdóttir, varaformaður, tekur þegar við starfinu ef honum. Innlent 3.12.2024 13:25
Félag áhugamanna um löggæslu Lögreglumenn eru búnir að vera kjarasamningslausir í 8 mánuði, þeir felldu kjarasamning í júní með miklum meirihluta. Lögreglumenn hafa ekki haft verkfallsrétt síðan 1986. Skoðun 29.11.2024 19:10
Kennaraverkfalli frestað Verkfalli kennara hefur verið frestað um tvo mánuði. Innanhússtillaga Ríkissáttasemjara þess efnis var samþykkt um klukkan 15. Innlent 29.11.2024 15:38
Fákeppni og almannahagsmunir Almenningur á Íslandi hefur lengi mátt þola fákeppni og afleiðingarnar eru flestum kunnar. Hér á landi er tæpast unnt að tala um eðlilega samkeppni á mörgum grunnsviðum samfélagsins; við nefnum hér rekstur matvöruverslana, bankaþjónustu, tryggingar og eldsneytisverð. Skoðun 29.11.2024 10:10
Ekki rétt að nefndin hafi boðað aukafund til að hækka vexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur aldrei komið saman á sérstökum aukafundi til þess að hækka stýrivexti. Forseti ASÍ hélt hinu gagnstæða fram í dag. Innlent 28.11.2024 17:05
Fóturinn tekinn af vegna tannpínu Eftir því sem stjórnmálaflokkarnir sýna meira á spilin í aðdraganda Alþingiskosninga er erfitt að verjast þeirri hugsun að þjóðin hafi leitað til læknis með svæsna tannpínu og áformað sé að takast á við það með því að höggva af henni fótinn. Skoðun 27.11.2024 12:32
Barátta í áratugi fyrir auknu starfsnámi Árin mín í stéttarfélagsstörfum voru um margt merkileg en þar voru til staðar angar af stuttu starfsnámi sem í minni tíð var síðan eflt og sífellt bætt ofan á. Þegar síðan 5 stéttarfélög sameinuðust 1998 -1999 þá kom í minn hlut að leiða starfsmenntun innan hins nýja stéttarfélags, Eflingar. Búnar voru til ótal nýjar stuttar starfsmenntabrautir sem unnið var að í samvinnu við vinnuveitendur og svo sveitafélögin. Síðar komu svo starfsgreinaráðin sem ætlað var að þróa eftir þörfum námsleiðir á framhaldsskólastigi. Þar hófst nýr kafli og merkilegur því sótt var til Norðurlanda um reynslu og gekk það vel. Skoðun 27.11.2024 11:10
Húsnæðiskreppan krefst lausna ekki umræðu Það er óhætt að segja að það ríki neyðarástand á húsnæðismarkaði. Vaxandi fjöldi heimila er að sligast undan vaxtakostnaði og þúsundir leigjenda eru á biðlistum eftir íbúð hjá óhagnaðardrifnum leigufélögum til að flýja íþyngjandi leiguverð. Skoðun 27.11.2024 08:01
Hjúkrunarfræðingar samþykktu samning Nýr kjarasamningur Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga við ríkið hefur verið samþykktur í atkvæðagreiðslu. Innlent 25.11.2024 14:22
Kennarasambandið sýni kennurum „alvarlega lítilsvirðingu“ Formaður samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga segir Kennarasambandið gera lítið úr verkfallsrétti félagsmanna með nýjasta útspili sínu. Kennarasambandið tilkynnti í gær að það væri reiðubúið að aflýsa verkföllum í fjórum leikskólum. Innlent 23.11.2024 12:19
Menntun og tækifæri: Hvað veljum við fyrir Ísland? Í næstu viku fáum við tækifæri til að móta framtíðina. Þetta er stund til að íhuga hvað skiptir raunverulegu máli fyrir samfélag okkar, bæði í dag og til lengri tíma. Skoðun 22.11.2024 13:32
Samfélag á krossgötum Framan af í kosningabaráttunni snerist umræðan einkum um efnahagsmálin og því ákváðum við hjá ASÍ og BSRB að efna til kosningafundar með forystufólki stjórnmálaflokkanna í vikunni til að ræða áherslur þeirra varðandi húsnæðismál, verð á matvöru, félagslegum innviðum á borð við heilbrigðis- og menntakerfi og jöfnuð. Skoðun 21.11.2024 16:02
Hvar eru frambjóðendurnir? Að undanförnu hefur verið fjallað um þá alvarlegu stöðu sem blasir við háskólamenntuðum á landinu. Í dag hafa stéttarfélög þúsunda háskólamenntaðra starfsmanna og hið opinbera enn ekki náð samningum sín á milli. Skoðun 19.11.2024 10:17
Bein útsending: Samfélag á krossgötum ASÍ og BSRB taka á móti formönnum flokka í framboði til alþingiskosninga á opnum fundi á Hilton Nordica milli klukkan 17 og 19 í dag. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan. Innlent 18.11.2024 16:31
„Einkennilegt að vera með örhóp í verkfalli“ Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla og frambjóðandi á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, segir einkennilegt að kennarar velji að vera með „örhóp“ í verkfalli nema að markmiðið sé að draga deiluna á langinn. Innlent 16.11.2024 22:54
Hjúkrunarfræðingar hafa skrifað undir samning Félag hjúkrunarfræðinga skrifaði undir kjarasamning við íslenska ríkið í húsakynnum Ríkissáttasemjara upp úr klukkan 14 í dag. Innlent 14.11.2024 14:34
Bjarni segir vinnumarkaðslöggjöfina vera í „ákveðnum ógöngum“ Umbætur á vinnumarkaðsmódelinu myndu leiða af sér stöðugleika í ríkisfjármálunum, að sögn framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra telur of langt gengið þegar stéttarfélög geta tekið einstaka vinnustaði „í gíslingu“ og vill sjá breytingar á valdheimildum ríkissáttasemjara á meðan formaður Samfylkingarinnar er opin fyrir skrefum í þá átt í sátt við verkalýðshreyfinguna. Innherji 10.11.2024 17:14
Þarf að auka valdheimildir ríkissáttasemjara til að grípa inn í vinnudeilur Til að styrkja þjóðhagslega ábyrgð við gerð kjarasamninga væri réttast að breyta lögum þannig að ríkissáttasemjari geti komið fram með miðlunartillögu án samþykkis frá forystufólki launaþegahreyfingar, að mati hagfræðiprófessors og forstöðumanns Hagfræðistofnunar. Þeir leggja sömuleiðis til, líkt og gert er á hinum Norðurlöndunum, að miða launasetningu við afkomu útflutningsgreina til að koma í veg fyrir kjarasamninga sem ýta undir verðbólgu. Innherji 10.11.2024 13:03
Máttu ekki hvetja hlunnfarið starfsfólk til að hætta Matvæla- og veitingafélag Íslands, Matvís, hefur verið dæmt skaðabótaskylt vegna eftirlitsheimsóknar á veitingastaðinn Flame í Reykjavík. Fulltrúar stéttarfélagsins bökuðu eigendum staðarins tjón með því að fá starfsfólk staðarins til að hætta í vinnunni. Þó er talið sannað að starfsfólkinu hafi ekki verið greidd laun í samræmi við lög. Innlent 31.10.2024 12:24
Halla sinnir störfum formanns VR Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR, mun sinna störfum formanns VR, á meðan Ragnar Þór Ingólfsson formaður verður í leyfi frá störfum næstu vikurnar. Innlent 30.10.2024 06:20