
Kynferðisbrot innan kaþólsku kirkjunnar

„Mér fannst skömmin vera svo mikil“
Maður sem var fjórtán ára vistaður á Unglingaheimili ríkisins 1979 segir að forstöðumaður heimilisins hafi beitt sig kynferðislegu ofbeldi í tvígang. Hann og aðrir segja að skelfilegt ofbeldi hafa átt sér stað af hálfu nokkurra starfsmanna meðan þeir dvöldu þar.

Ástralskur biskup ákærður fyrir nauðgun og kynferðisbrot gegn börnum
Ástralskur biskup hefur verið ákærður fyrir nauðgun og fleiri kynferðisbrot, meðal annars gegn börnum. Christopher Saunders, 74 ára, var handtekinn í Broome á miðvikudag, eftir að sætt rannsókn af hálfu lögregluyfirvalda og Páfagarðs.

Spænska kirkjan: 440 þúsund börn beitt kynferðislegu ofbeldi
Meira en 400.000 börn hafa verið beitt kynferðislegu ofbeldi af kirkjunnar mönnum á Spáni á síðustu áratugum. Þetta er mesti fjöldi fórnarlamba í nokkru landi í hinum kaþólska heimi.

Páfinn segir mikilvægt að hlusta á þolendur kynferðisofbeldis
Frans páfi sat í gær fund með þrettán einstaklingum sem öll eiga það sameiginlegt að vera þolendur kynferðisofbeldis klerka innan kaþólsku kirkjunnar. Í kjölfarið sagði hann það það mikilvægt að hlýða á raddir fórnarlambanna.

Þrír prestar sakaðir um að nauðga konu reglulega í rúmlega þrjátíu ár
Kona á sextugsaldri á spænsku eyjunni Mallorca hefur sakað þrjá presta um að hafa nauðgað sér reglulega í meira en 30 ár. Faðir hennar beitti hana kynferðislegu ofbeldi frá barnæsku.

Hundruð fórnarlamba kaþólskra presta á Spáni
Rannsókn kaþólsku kirkjunnar á Spáni á misnotkun presta og annarra þjóna kirkjunnar á börnum hefur afhjúpað 728 meinta gerendur og 927 fórnarlömb frá fimmta áratug síðustu aldar. Meira en helmingur meintra gerenda voru prestar en flest brotin áttu sér stað á sjöunda, áttunda og níunda áratugnum.

Kardinálinn George Pell er látinn
Hinn umdeildi ástralski kardináli, George Pell, lést í Rómarborg á Ítalíu í gærkvöldi, 81 árs að aldri. Hann var á sínum tíma sakfelldur fyrir kynferðisbrot gegn börnum en síðar sýknaður.

Um 14 prósent vígðra innan kaþólsku kirkjunnar á Nýja-Sjálandi verið sökuð um ofbeldi
Kaþólska kirkjan á Nýja-Sjálandi hefur greint frá því að 14 prósent vígðra innan kirkjunnar hafi verið sökuð um brot gegn börnum og fullorðnum frá árinu 1950.

Sakaður um aðgerðaleysi vegna kynferðisbrota presta
Benedikt páfi er sakaður um að hafa sýnt af sér aðgerðaleysi í tengslum við misnotkun á fjögurra barna í biskupsdæmi hans í München op Freising frá 1977 til 1982.

Á þriðja hundrað þúsund börn misnotuð af kaþólskum prestum
Um það bil 216 þúsund börn hafa verið misnotuð af kaþólskum prestum í Frakklandi frá árinu 1950. Óttast er að fjöldi barna gæti náð 330 þúsund þegar misnotkun af hálfu annarra meðlima kirkjunnar er tekin inn í myndina. Þetta er niðurstaða nýrrar rannsóknarskýrslu sem birt var í dag.

Níu þúsund einkamál höfðuð á meðan fyrningarfrestinum var aflétt
Um 9.000 einkamál hafa verið höfðuð vegna kynferðisofbeldis eftir að löggjafinn í New York ákvað að opna tveggja ára glugga þar sem þolendur gætu sótt rétt sinn jafnvel þótt fyrningarfrestur mála þeirra væri liðinn.

Kardináli ákærður fyrir kynferðisbrot gegn táningi
Theodore McCarrick, fyrrverandi kardináli í Bandaríkjunum, hefur verið ákærður fyrir að brjóta kynferðislega á táningsdreng árið 1974. Hann er sakaður um að hafa meðal annars káfað á sextán ára dreng og brotið gegn honum á annan hátt í nokkur ár.

Krefst þess að Páfagarður biðjist afsökunar á ofbeldi í heimavistarskólum
Forsætisráðherra Kanada segir það mikil vonbrigði að kaþólska kirkjan hafi ekki beðist formlega afsökunar á ofbeldi gegn börnum af frumbyggjaættum, sem fór fram í skólum í Kanada um áraraðir. Hann kallar eftir því að kirkjan taki ábyrgð á ofbeldinu eftir áralanga þöggun.

Býðst til að segja af sér vegna barnaníðsmála innan kirkjunnar í Þýskalandi
Erkibiskupinn af Munchen hefur boðist til þess að segja af sér vegna fjölda kynferðisbrotamála sem komið hefur upp innan kaþólsku kirkjunnar í Þýskalandi. Páfinn er sagður vera að íhuga boðið.

Banna prestum að misnota fullorðna
Kynferðisbrot presta gegn fullorðnum verða nú sérstaklega bönnuð með breytingum sem Frans páfi hefur fyrirskipað á lögum kaþólsku kirkjunnar. Þá verður einnig hægt að refsa leikmönnum sem starfa fyrir kirkjuna fyrir kynferðisbrot.

Umdeildur kardínáli: Trump er villimaður kristinna manna
Donald Trump er villimaður en hann er „okkar villimaður,“ segir kardinálinn George Pell í bókinni Prison Journal, sem fjallar meðal annars um þá 404 daga sem honum var haldið í einangrun eftir að hann var fundinn sekur um kynferðisofbeldi gegn börnum.

Páfi heitir því að uppræta misnotkun innan kirkjunnar
Frans páfi hét því að uppræta kynferðislega misnotkun innan veggja kaþólsku kirkjunnar í kjölfar umfangsmikillar skýrslu um kynferðisbrot bandarísks fyrrverandi kardinála sem var birt í gær.

Páfar vissu af ásökunum á hendur kardinála í áratugi
Bandarískur fyrrverandi kardináli hlaut framgang innan kaþólsku kirkjunnar þrátt fyrir að páfum, kardinálum og æðstu mönnum kirkjunnar vestanhafs hefði verið kunnugt um ásakanir um kynferðislega misnotkun á hendur honum.

Pell kardináli sýknaður af ákæru um barnaníð
Dómstóllinn sneri þar með við dómi, en kardinálinn hafði áður verið dæmdur í sex ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur drengjum í Melbourne á tíunda áratugnum.

Biskupar samþykkja greiðslur til þolenda kynferðisofbeldis
Franskir biskupar samþykktu í gær áform um að biskupar landsins skyldu bjóða þolendum kynferðisofbeldis í æsku af hálfu kirkjunnar manna peningagjöf úr sjóði sem settur verður upp.

Bandarísk samtök aðstoðuðu presta sem voru sakaðir um kynferðisbrot
Samtök í Bandaríkjunum hafa um árabil aðstoðað presta sem misst hafa starfsréttindi sín við að veita þeim húsnæði, fjármagn, samgöngur, lögfræðihjálp og annan stuðning.

Líkti kynferðisofbeldi gegn börnum við mannfórnir
Páfinn segir barnaníðinga innan kirkjunnar vera "verkfæri djöfulsins.“