Skoðanakannanir

Rúmlega þriðjungur landsmanna gæðir sér á skötu
Rúmlega þriðjungur landsmanna ætlar að gæða sér á skötu í dag, á Þorláksmessu, ef marka má niðurstöður könnunar MMR.

Sjálfstæðisflokkurinn réttir úr kútnum í nýrri könnun MMR
Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist 20,0% í nýrri könnun MMR. Er fylgið tæplega tveimur prósentustigum hærra en við mælingu MMR í nóvember.

Enn stelur Kertasníkir senunni þótt hann sé ekki kominn til byggða
Fimmta árið í röð reyndist Kertasníkir hlutskarpastur jólasveinanna þegar kemur að vinsældum en 29% landsmanna átján ára og eldri tilnefndu Kertasníki sem sinn uppáhalds jólavein.

Á miklu flugi í skoðanakönnunum
Miðflokkurinn mælist nánast jafn stór og Sjálfstæðisflokkurinn í nýrri skoðanakönnun. Formaður Miðflokksins segir þetta merki um að kjósendur vilji ekki að hann sveiflist með tíðarandanum hverju sinni. Prófessor segir erfitt að segja til um framhaldið.

Miðflokkurinn kominn upp í tæp 17 prósent
Fylgi Sjálfstæðisflokksins kominn niður í 18 prósent.

Meirihluti segir mikilvægt að Íslendingar fái nýja stjórnarskrá
Rúmlega helmingur svarenda könnunar MMR telur mikilvægt að Íslendingar fái nýja stjórnarskrá á yfirstandandi kjörtímabili.

Helmingur landsmanna með litlar áhyggjur af þriðja orkupakkanum
Eins við mátti búast reyndist stuðningsfólk Viðreisnar (83%) og Samfylkingar (82%) líklegra en stuðningsfólk annarra flokka til að segjast hafa litlar áhyggjur af áhrifum þriðja orkupakkans.

Könnun MMR: Miðflokkurinn mælist næststærstur
Sjálfstæðisflokkurinn mælist sem fyrr stærstur með 19,8 prósent fylgi, samanborið við 18,3 prósent fylgi í síðustu mælingu.

Sjálfstæðisflokkurinn stærstur en samt aldrei mælst minni
Sjálfstæðisflokkurinn mælist með mest fylgi stjórnmálaflokka á Alþingi eða 18,3%.

40 prósent landsmanna nota mjólkurvörur frá Bolungarvík reglulega
Annað árið í röð trónir Fjarðarkaup toppi lista MMR yfir þau fyrirtæki sem Íslendingar mæla helst með. Athygli vekur að mjólkurvinnslan Arna í Bolungarvík, sem var mæld í fyrsta skipti í ár, skýst beint í fimmta sæti listans.

Vilja minnka markaðshluta Ríkisútvarps
Rúm 59 prósent þeirra sem taka afstöðu í nýrri könnun vilja draga úr umsvifum eða að RÚV hverfi af auglýsingamarkaði. Kjósendur Samfylkingarinnar og Vinstri grænna vilja helst óbreytt ástand.