Innlent
Hyggjast fjölga íbúum í Sandgerði Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar setti í dag af stað átak til að fjölga íbúum í bænum. Íbúar í Sandgerðisbæ eru nú rúmlega 1.400 og er markmiðið með átakinu að þeim fjölgi í að minnsta kosti tvö þúsund fyrir lok næsta kjörtímabils. Innlent 13.10.2005 19:13
Freysteinn fær hvatningarverðlaun Dr. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á Norræna eldfjallasetrinu við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, fékk í morgun hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Freysteinn er vel þekktur á alþjóðlegum vettvangi fyrir rannsóknir sínar á jarðskorpuhreyfingum og eldfjallavöktun. Innlent 13.10.2005 19:13
Þeir tekjuminnstu græða ekkert Skerðingarhlutfall námslána lækkar en frítekjumark er lagt niður samkvæmt nýjum úthlutunarreglum sem stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt. Grunnframfærsla námsmanna hækkar jafnframt úr 79.500 krónum í 82.500 krónur. Innlent 13.10.2005 19:13
Áframhaldandi mannréttindaviðræður Íslendingar munu eiga opnar viðræður um mannréttindi við Kínverja, byggðar á gagnvirkum skilningi, segir Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sem átti fund með Kínaforseta í dag. Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, fréttamaður Stöðvar 2 og Bylgjunnar, er í Kína. Innlent 13.10.2005 19:13
Fullur á traktor í Víkurskarði Maður var dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra til greiðslu 130 þúsund króna sektar fyrir að aka dráttarvél ölvaður um miðjan desember þannig að hún endaði utan vegar í Víkurskarði. Þá var hann sviptur ökuleyfi í tvö ár. Innlent 13.10.2005 19:13
Buðu bara fjölskyldu áfallahjálp Matargestum í Hlíðarhjalla í Kópavogi á sunnudaginn var ekki boðin áfallahjálp ef undanskilin er fjölskylda hins látna. Alls voru sautján matargestir þar þegar einn gestanna snöggreiddist að sögn vitna og myrti Vu Van Phong með eggvopni sem að sögn lögreglu var líklega tekið úr eldhúsi í íbúðinni. Innlent 13.10.2005 19:13
Vanvirðing og heiðursvörn ástæðan Vanvirðing og heiðursvörn virðast hafa verið ástæða átakanna í Hlíðarhjalla á sunnudagskvöld sem leiddu til dauða tæplega þrítugs karlmanns frá Víetnam. Innlent 13.10.2005 19:13
Hundaræktendur takast á "Fráfarandi formaður tilkynnti mér á fulltrúafundi að hún ætlaði ekki að gefa kost á sér aftur, en taldi ekki þörf á því að tilkynna það neinum nema stjórninni," segir Guðmundur Helgi Guðmundsson, annar frambjóðandi til formanns Hundaræktarfélags Íslands um vinnubrögð Þórhildar Bjartmarz, fráfarandi formanns félagsins. Innlent 13.10.2005 19:13
7-10 þúsund atkvæði í húsi Á bilinu sjö til tíu þúsund atkvæði í formannskjöri Samfylkingarinnar eru komin í hús en tæplega tuttugu þúsund félagsmenn í Samfylkingunni eru á kjörskrá. Frestur til að skila inn atkvæðum rennur út á fimmtudag. Innlent 13.10.2005 19:13
Hæstu styrkir nema hálfri milljón Menningarsjóður hefur úthlutað 17,5 milljónum króna í styrki til 69 verkefna. Færri fengu en sóttu um því alls sóttu 109 einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir og félög um styrki að andvirði 123 milljóna króna. Innlent 13.10.2005 19:13
Berjast um varaformannsstólinn Lúðvík Bergvinsson þingmaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram til embættis varaformanns Samfylkingarinnar. Ljóst er því að kosið verður um varaformann á landsfundi Samfylkingarinnar á laugardag en auk Lúðvíks hefur Ágúst Ólafur Ágústsson þingmaður Samfylkingarinnar boðið sig fram til embættisins. Innlent 13.10.2005 19:13
Ástand jafnréttismála samt slæmt Þótt Ísland sé í þriðja sæti yfir þau lönd sem best hefur gengið að tryggja jafnrétti kynjanna er ástandið þó ekkert til að hrópa húrra fyrir, að mati framkvæmdastjóra Jafnréttisstofu. Innlent 13.10.2005 19:13
Þátttaka fatlaðra á vinnumarkaði Þjónusta við fjölskyldur fatlaðra barna um landið og þátttaka fatlaðra á almennum vinnumarkaði verður meðal þess sem tekið verður til umræðu á málþingi útskriftarnema á þroskaþjálfabraut Kennaraháskóla Íslands á morgun. Yfirskrift málþingsins er „Fögur orð og framkvæmd“. Innlent 13.10.2005 19:13
Landbúnaðarstofnun á Suðurlandi? Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra segir að vilji sé til þess innan þingsins að ný Landbúnaðarstofnun verði staðsett utan höfuðborgarsvæðisins. Reykir í Ölfusi og Selfoss koma helst til greina. Innlent 13.10.2005 19:13
Fjárfestar vilja almenning með Fjárfestahópar sem bjóða í Símann hafa að undanförnu unnið að því að bjóða almenningi bréf í fyrirtækinu til kaups strax að loknu útboð. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er talið nær öruggt að tilboð leitt af Exista sem áður hét Meiður muni tilbúið að setja allt að 30 prósenta hlut í Símanum á almennan markað strax að loknu útboði. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Faðerni fæst ekki sannað Hæstiréttur hafnaði kröfu manns um að gerð verði lífsýnirannsókn á látnum manni til að fá úr því skorið hvort sá sé lífræðilegur faðir mannsins. Innlent 13.10.2005 19:13
Manndrápið snerist um heiður Manndrápið í Kópavogi á sunnudagskvöld snerist um heiður, samkvæmt frásögn manns sem reyndi að koma hinum látna til bjargar. Hann segir að fórnarlambið hafi ekki ávarpað hinn meinta morðingja með tilhlýðilegri virðingu og hann því reiðst. Innlent 13.10.2005 19:13
Guðjón ráðinn til Notts County Guðjón Þórðarson var í morgun ráðinn knattspyrnustjóri enska 3. deildar liðsins Notts County. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Notthingham í morgun. Sport 13.10.2005 19:13
Falla frá málsókn á hendur deCODE Fallið hefur verið frá málsókn gegn deCODE genetics og stjórnendum þess sem bandarískt lögfræðifyrirtæki ætlaði að höfða. Taldi lögfræðistofan að stjórnendur deCODE hefðu þrýst gengi félagsins upp með því að birta villandi tilkynningar og með því að leyna vandamálum í innri stjórnun félagsins Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Kærir gæsluvarðhaldsúrskurð ekki Sigmundur Hannesson, skipaður verjandi Phu Tien Nguyen sem er grunaður um að hafa orðið Vu Van Phong að bana í Hlíðarhjalla í Kópavogi á sunnudagskvöldið, segir ekki standa til að kæra gæsluvarðhaldsúrskurð sem kveðinn var upp yfir honum, engar forsendur séu til þess. Innlent 13.10.2005 19:13
Ástæðan brot á siðvenjum Þrír menn yfirbuguðu manninn sem drap annan í Hlíðarhjalla í Kópavogi á sunnudagskvöld. Fréttamaður Stöðvar 2 ræddi við einn þeirra í dag sem segir ástæðuna fyrir manndrápinu hafa verið brot á siðvenjum Víetnama. Innlent 13.10.2005 19:13
Árekstur við Hringbraut Ökumaður og farþegi á bifhjóli slösuðust þegar bifhjólið og bifreið rákust saman á Hringbraut klukkan hálf átta í gærkvöldi. Þeir eru þó ekki alvarlega slasaðir. Innlent 13.10.2005 19:13
Fresturinn rennur út í dag Frestur til að skila inn tilboðum í Símann rennur út í dag. Um fimmtíu áhugasamir fjárfestar hafa fengið útboðsgögnin í hendur en samkvæmt þeim reglum sem settar hafa verið þarf hvert tilboð að vera frá hópi sem settur er saman úr a.m.k. þremur hópum eða fjárfestum. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Einn játar meðan annar neitar öllu Seinni hluti eins umfangsmesta fíkniefnamáls sem hér hefur komið upp var tekinn fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Fimm sæta ákæru í þessum hluta, þar af eru fjórir í gæsluvarðhaldi. Ákært er fyrir tæp átta kíló af amfetamíni og nokkur þúsund skammta af LSD. Innlent 13.10.2005 19:13
Sinubruni í Breiðholti Slökkviliðið í Reykjavík var kallað út rétt eftir klukkan eitt í dag vegna sinubruna við Erluhóla í Reykjavík. Vel gekk að slökkva eldinn sem var ekki mikill að þessu sinni. Innlent 13.10.2005 19:13
Gunnar býður sig fram á landsfundi Gunnar Svavarsson, forseti bæjarstjórnar í Hafnarfirði, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar. "Ég hef ákveðið að taka þessari áskorun og miðla þeirri reynslu sem til staðar er og ég bý yfir, meðal annars vegna starfa minna innan jafnaðarmannahreyfingarinnar síðastliðna áratugi," segir Gunnar. Innlent 13.10.2005 19:13
Tilfinningalegt svigrúm við Múrinn Forsetahjónin heimsóttu Kínamúrinn í morgun. Forsetinn þurfti sitt tilfinningalega svigrúm til að upplifa múrinn, eitt af sjö undrum veraldarinnar. Forsetafrúin virtist hins vegar haldin heimþrá. Eva Bergþóra er í Kína. Innlent 13.10.2005 19:13
Tónleikum Franz Ferdinand frestað Tónleikum skosku hljómsveitarinnar Franz Ferdinand, sem fyrirhugaðir voru á Íslandi 27. maí næstkomandi, hefur verið frestað til 2. september. Í tilkynningu frá tónleikarahöldurum segir að liðsmenn Franz Ferdinand séu nú önnum kafnir við upptökur á nýrri plötu og svo virðist sem eitthvað ætli að taka lengri tíma en til stóð að klára þær upptökur. Lífið 13.10.2005 19:13
Harður árekstur jeppa og fólksbíls Mjög harður árekstur varð í gærkvöldi á mótum Biskupstungnabrautar og Suðurlandsvegar þegar jeppi og fólksbíll skullu saman. Enginn slasaðist alvarlega en bílarnir skemmdust báðir mikið og voru þeir fluttir af vettvangi með kranabíl. Innlent 13.10.2005 19:13
Umbætur á Mannréttindadómstól Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði í ávarpi á leiðtogafundi Evrópuráðsins í Varsjá í gær að brýn þörf væri á umbótum á störfum Mannréttindadómstóls Evrópu í ljósi gífurlegrar fjölgunar mála sem til hans berast. Hann sagði að Ísland væri fylgjandi því að komið yrði á fót vettvangi þar sem farið yrði yfir þessi mál.</font /> Innlent 13.10.2005 19:13