Innlent
Almenningur ekki einn um sérkjör Hópurinn sem Almenningur ehf. gerði samning við vegna kaupa á Símanum er ekki sá eini sem mun bjóða íslenskum almenningi sérkjör. Fleiri ætla að bjóða almenningi að minnsta kosti sömu kjör þótt Agnes Bragadóttir og Orri Vigfússon hafi ekki gert samkomulag við þá. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Hæstiréttur dæmir Maitslandbræður Hæstiréttur mildaði dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir tvíburabræðrunum Rúnari Ben og Davíð Ben Maitsland. Þeir höfðu áður verið dæmdir í fimm ára og fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir smygl á 27 kílóum af kannabisefnum frá Þýskalandi hingað til lands í ellefu ferðum. Innlent 13.10.2005 19:14
Þrír mánuðir í fangelsi fyrir árás Dráttur rannsóknar lögreglu á líkamsárás og breytingar til hins betra hjá árásarmanni urðu til þess að 15 mánuðir af 18 mánaða fangelsisdómi voru skilorðsbundnir í dómi Hæstaréttar í gær. Í héraði var maðurinn dæmdur í 15 mánaða fangelsi, þar af 12 skilorðsbundna. Innlent 13.10.2005 19:14
Lönduðu tólf hákörlum Átta og hálft tonn af þorragóðgæti næsta árs kom í troll togarans Sundabergs við Grænland. Skipverjar lönduðu tólf hákörlum í gær. Innlent 13.10.2005 19:14
Lögreglumaður þurfti hjálp Lögreglumaður á Eskifirði stöðvaði í fyrrakvöld mann við reglubundið eftirlit. Þegar maðurinn steig út úr bílnum stafaði frá honum megn áfengislykt og upphófust átök þegar hann streittist á móti handtöku. Innlent 13.10.2005 19:14
Ökuníðingar hvergi óhultir Reykvískir ökuníðingar verða hvergi óhultir í sumar. Lögreglan í Reykjavík ætlar að beita sér sérstaklega gegn hraðakstri í íbúðahverfum og koma hraðamyndavélum fyrir í ómerktum lögreglubílum. Innlent 13.10.2005 19:14
Karlkennarar launahærri innan KHÍ Karlkennarar við Kennaraháskóla Íslands eru að jafnaði með fjórum prósentum hærri laun en kvenkennarar í sambærilegum stöðum, á samsvarandi aldri, með sambærilegt rannsóknarálag og menntun. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu um samanburð á launum starfsfólks við Kennaraháskóla Íslands sem unnin var af Félagsvísindastofnun. Innlent 13.10.2005 19:14
Strandaði um stund við Faxasker Betur fór en á horfðist þegar ísfisktogarinn Smáey VE 144 strandaði við Faxasker norðan við Heimaey á fjórða tímanum í nótt. Lögreglan í Vestmannaeyjum fékk tilkynningu um strandið frá Vaktstöð siglinga og Neyðarlínunni og að Smáey hefði losnað af strandstað og væri á leið til hafnar. Björgunarbáturinn var Þór kallaður út í öryggisskyni en hann þurfti þó ekki að aðstoða. Innlent 13.10.2005 19:13
Aukin hætta á launaskriði Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hefur lækkað úr 3,1 prósenti í 2,3 prósent á einu ári. Vegvísir Landsbankans bendir á að reynslan síðasta áratuginn sýni að ekki séu dæmi um að saman geti farið atvinnuleysi undir tveimur prósentum og verðbólga undir fjórum prósentum. Nú þegar atvinnuleysið sé komið niður að tveggja prósenta mörkunum aukist hættan á því að launaskrið aukist verulega. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Fermetraverð fari yfir 200 þúsund Greining Íslandsbanka spáir 15 prósenta hækkun á íbúðarverði til viðbótar þar til það staðni síðla á næsta ári. Meðalfermetraverð yrði þá komið yfir 200 þúsund krónur. Þó er tekið fram að lítið megi út af bregða til að ekki komi til lækkunar. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Matur hefur lækkað um þriðjung Vöruverð hefur lækkað umtalsvert hjá Krónunni, Bónus og í Fjarðarkaupum síðan um áramótin en mun minna hjá öðrum verslunum samkvæmt þriðju verðkönnun Alþýðusambands Íslands sem birt var í gær. Er þetta þriðja könnun samtakanna á þessu ári og vekur athygli að vöruverð hefur hvergi hækkað síðan síðasta könnun var gerð um miðjan mars. Innlent 13.10.2005 19:13
Leggja stærstu hitaveitu í heimi Fulltúar fyrirtækjanna Enex hf., Orkuveitu Reykjavíkur og Íslandsbanka hf. skrifuðu í morgun undir samkomulag um að leggja stærstu jarðvarmahitaveitu í heimi í nýtt hverfi sem á að rísa í borginni Xianyang í Kína. Gert er ráð fyrir að hitaveitan nái í fyrstu til 100 til 150 þúsund íbúa en síðan þegar hverfið hefur verið stækkað verða íbúarnir um 400 þúsund. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Húsavík sé eðlilegur fyrsti kostur Iðnaðarráðherra segir eðlilegt að horft sé fyrst til Húsavíkur við staðarval álvers á Norðurlandi vegna mikillar orku sem finnst í Þingeyjarsýslu. Hún segir ástæðu til að ræða hvort svigrúm sé bæði til byggingar nýs álvers á Suðurnesjum og stækkunar í Straumsvík. Vinstri - grænir vilja að stóriðjuviðræður verði stöðvaðar fram yfir næstu þingkosningar. Innlent 13.10.2005 19:13
Fögnuðu próflokum uppi í sveit Víða mátti sjá rútur fullar af unglingum á leið upp í sveit til að fagna því að samræmdum prófum lauk í dag. Skólayfirvöld, foreldrar og lögregla gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að tíundu bekkingar sameinist í drykkju að prófum loknum. Innlent 13.10.2005 19:13
Ísland beini kröftum að Taívan Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir skrúðmælgi þá sem Kínverjar hella yfir forseta Íslands um mannréttindamál óskaplega hræsnisfullt tal. Hann vill að Íslendingar beini kröftum sínum og athygli í auknum mæli að Taívan. Innlent 13.10.2005 19:13
Hyggjast fjölga íbúum í Sandgerði Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar setti í dag af stað átak til að fjölga íbúum í bænum. Íbúar í Sandgerðisbæ eru nú rúmlega 1.400 og er markmiðið með átakinu að þeim fjölgi í að minnsta kosti tvö þúsund fyrir lok næsta kjörtímabils. Innlent 13.10.2005 19:13
Freysteinn fær hvatningarverðlaun Dr. Freysteinn Sigmundsson, jarðeðlisfræðingur á Norræna eldfjallasetrinu við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, fékk í morgun hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Freysteinn er vel þekktur á alþjóðlegum vettvangi fyrir rannsóknir sínar á jarðskorpuhreyfingum og eldfjallavöktun. Innlent 13.10.2005 19:13
Þeir tekjuminnstu græða ekkert Skerðingarhlutfall námslána lækkar en frítekjumark er lagt niður samkvæmt nýjum úthlutunarreglum sem stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt. Grunnframfærsla námsmanna hækkar jafnframt úr 79.500 krónum í 82.500 krónur. Innlent 13.10.2005 19:13
Málverkum stolið af kaffihúsi Tveimur málverkum sem stolið var af kaffihúsinu Langa Manga á Ísafirði um helgina var skilað í dag. Fyrra málverkinu var stolið á föstudagskvöldið og því seinna á laugardagskvöldið en bæði kvöldin var uppákoma á kaffihúsinu og húsfyllir. Að sögn ráðamanna Langa Manga verður ekki gripið til frekari aðgerða vegna þjófnaðarins þar sem sá sem í hlut á sá að sér og sendi myndirnar til baka í pósti frá Reykjavík. Innlent 13.10.2005 19:13
Sandgerði tælir til sín íbúa Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar ýtti úr vör markaðsátaki í gær með það að markmiði að fjölga íbúum bæjarins. Nú búa fjórtánhundruð manns í Sandgerði og setur bæjarstjórnin sér það markmið að fjölga íbúum um fjögurhundruð á næstu misserum og að íbúarnir verði orðnir tvöþúsund innan fimm ára. Innlent 13.10.2005 19:13
Reknir og vikið af vinnustaðnum Þeir eru að vinna eftir einhverri mannauðsstefnu þar sem allir eiga að falla svo vel inn í liðið að þeir sem ekki falla alveg inn í þetta eru bara látnir fara," segir Gylfi Ingvason, trúnaðarmaður starfsmanna ALCAN í álverinu við Straumsvík. Innlent 13.10.2005 19:13
Yfirtökutilboð í finnskt símafélag Novator Finland, dótturfélag Novator International, sem er fjárfestingafélag undir forystu Björgólfs Thors Björgólfssonar, hefur gert tilboð í öll hlutabréf í finnska símafyrirtækinu Saunalahti. Tilboðið hljóðar upp á 1,9 evrur á hlut sem þýðir að heildarverðmæti fyrirtækins er um 21,5 milljarðar króna. Novator Finland á þegar tæp 23 prósent í félaginu. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Formannsslagur og framtíðarsýn Stefán Jón Hafstein, formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar, telur að framtíðarsýn og hugmyndafræði jafnaðarmanna hafi ekki notið sín sem skyldi í baráttunni um formannsstólinn í Samfykingunni undanfarna mánuði. Hann kveðst ganga lengra í ályktunum en framtíðarhópur flokksins og skilgreinir sig sem róttækan endurskoðunarsinna. Innlent 13.10.2005 19:13
Ráðherra gangi erinda Norðlendinga Ýmislegt virðist vera að gerast í álmálum þessa dagana. Alcoa hefur lýst yfir áhuga á að reisa álver á Norðurlandi og verið er að stofna félög bæði með og á móti stóriðju í Eyjafirði. Sjálfstæðismenn á Suðurnesjum eru ósáttir við iðnaðarráðherra en þeir telja ráðherrann eingöngu ganga erinda Norðlendinga. Innlent 13.10.2005 19:13
Kvöld í Hveró - Stefán og Eyfi Stefán og Eyfi efna á föstudag til tónleika í Selfosskirkju, í samvinnu við menningarhátíðina <strong>Vor í Árborg</strong>. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni tónleikararaðarinnar <strong>Kvöld í Hveró</strong> og menningarhátíðarinnar Vor í Árborg sem fram fer helgina 20.- 22. maí. Lífið 13.10.2005 19:13
Flugi til San Francisco seinkað Tveggja tíma seinkun verður á fyrsta flugi Flugleiða til San Francisco sem fara átti í loftið klukkan 16.40. Ástæðan er sú að breytingar á innréttingum vélarinnar sem gerðar voru á Írlandi tóku lengir tíma en áætlað var. Haft er ofan af fyrir farþegum með lúðrasveitarleik, kórsöng Flugfreyjukórsins og fleirum. Meðal farþega eru forsætisráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík, en þau munu taka þátt í sérstakri hátíðardagskrá í San Francisco. Innlent 13.10.2005 19:13
Kolmunnaafli yfir 100 þúsund tonn Kolmunnaafli íslenskra skipa á vertíðinni fór yfir hundrað þúsund tonnin í fyrradag þegar Hólmaborg SU landaði tæpum tvö þúsund tonnum á Eskifirði. Innlent 13.10.2005 19:13
Deilt um fjögur 19. aldar hús Meirihluti borgarstjórnar samþykkti á fundi sínum í gær að vísa tillögu Ólafs M. Magnússonar, borgarfulltrúa F-lista, um að dregnar verði tilbaka heimildir til að rífa niður fjögur 19. aldar hús við Laugaveg til skipulagsráðs Reykjavíkurborgar. Allir fulltrúar R-listans samþykktu þetta gegn mótatkvæði Ólafs, sem telur að með þessu sé í raun verið að vísa málinu frá eins og gert hafi verið í mars síðastliðnum. Innlent 13.10.2005 19:13
ÍE prófar nýtt asmalyf Íslensk erfðagreining greindi frá því í dag að hafnar séu lyfjaprófanir af öðrum fasa á nýju tilraunalyfi fyrirtækisins við asma og að fyrsti sjúklingurinn hafi þegar hafið lyfjatöku. Lyfið hefur áhrif á starfsemi ensíms sem erfðarannsóknir Íslenskrar erfðagreiningar hafa sýnt fram á að tengist líffræðilegum orsökum asma. Lyfið var upphaflega þróað við öðrum sjúkdómi af öðru lyfjafyrirtæki. Innlent 13.10.2005 19:13
Þyngdin látin ráða niðurstöðu "Málið er að því leyti óvenjulegt hvaða eiginleikar umsækjandans um ættleiðingaleyfi, eru látnir ráða niðurstöðu dómsmálaráðuneytisins. Það er fyrst og fremst þyngdin," sagði Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður um mál konunnar sem fékk ekki að ættleiða barn vegna ofþyngdar hennar, samkvæmt úrskurði dómsmálaráðuneytisins. Innlent 13.10.2005 19:13
Tindastóll - Stjarnan 100-91 | Stólarnir í úrslit annað árið í röð en meistararnir úr leik Körfubolti