Innlent

Fréttamynd

Löglega staðið að uppsögn

Leikfélag Akureyrar var í gær sýknað af kröfum Aðalsteins Bergdal, leikara, sem gert hafði kröfur um skaðabætur vegna uppsagnar sinnar en honum var sagt upp störfum eftir að hafa neitað samvisku sinnar vegna að taka þátt í uppsetningu leikrits.

Innlent
Fréttamynd

Skattsvikamál fyrir héraðsdómi

Ríkislögreglustjóri hefur krafist refsingar til handa fyrrum eigendum og forsvarsmönnum Allrahanda - Ísferða vegna brota á lögum um virðisaukaskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda.

Innlent
Fréttamynd

Vatnsæð til Hafnarfjarðar sprakk

Önnur af aðalvatnsæðum sem liggja til Hafnarfjarðar sprakk nálægt Smáralindinni í Kópavoginum um áttaleytið í gærkvöld. Sigurður Guðmundsson, vélfræðingur hjá Orkuveitu Reykjavíkur, segir Hafnfirðinga þó ekki þurfa að óttast vatnsleysi þar sem um varaæð úr Vífilstaðarbrunni er að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Mikilvægt að verja fólk og dýr

Beðið er fjárveitingar frá stjórnvöldum til að hægt sé að hefja skimun fyrir fuglaflensu í alifuglum og vatnafuglum hér. Landbúnaðarráðherra segir að mikilvægt sé að leggja áherslu á varnir fyrir fólk og dýr. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Banna birtingu auglýsinganna

Auglýsingar Umferðarstofu, sem birst hafa í sjónvarpi og blöðum og sýna lítil börn í hættulegum aðstæðum, brjóta í bága við samkeppnislög og hefur birting þeirra verið bönnuð samkvæmt ákvörðun Samkeppnisráðs í dag.

Innlent
Fréttamynd

Öll starfsemin undir eitt þak

Nú er unnið hörðum höndum að því að rífa hús KB banka í Borgartúni 17. Í framhaldinu verða núverandi höfuðstöðvar í Borgartúni 19 stækkaðar þannig að öll starfsemin verði undir einu þaki. Einnig er fyrirhugað að ýmsum deildum sem hafa aðstöðu víða um borgina verði komið fyrir í nýju húsakynnunum.

Innlent
Fréttamynd

Hagræðingin að engu orðin

Hagræðingin sem heimilin í landinu náðu fram með uppgreiðslu yfirdráttarlána vegna endurfjármögnunar fasteignalána virðist að engu orðin. Skuldir vegna yfirdráttarlána eru nú jafnmiklar og fyrir skipulagsbreytinguna á íbúðalánamarkaðnum. Merki um mikla neyslu, segir forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Næstbesta afkoma frá upphafi

Flugleiðir, eða FL Group, skiluðu 25 milljóna króna hagnaði fyrstu þrjá mánuði ársins sem er um 880 milljónum króna betri afkoma en á sama tímabili í fyrra. Þetta er næstbesta afkoma af starfsemi félagsins á þessum árstíma frá upphafi.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fuglaflensuveiran er hér

Fuglaflensuveiran er án vafa til staðar í villtum fuglum hér á landi, segir sóttvarnarlæknir. Hann segir þó nær útilokað að hér skapist hætta á að faraldur verði til eða breiðist út. Tiltekin skilyrði þurfi til að slíkt geti gerst. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Yfirdráttarlán hækka enn

Einkaneysla hefur aukist mikið að undanförnu og yfirdráttarlánin hækkað. Forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans segir þetta endurspegla bjartsýni fólks á að endurgreiða lánin. Óvíst sé að um varanlega aukningu sé að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Reynir að lokka börn í bíl sinn

Karlmaður í Reykjanesbæ hefur sést utan við grunnskóla í bænum þar sem hann hefur reynt að lokka börn í bílinn til sín með sælgæti. Lögreglan í Keflavík beinir því til foreldra að þau brýni fyrir börnum sínum að þau fari ekki upp í bifreið hjá ókunnugu fólki.

Innlent
Fréttamynd

Fundu flöskuskeyti á fjöllum

Flöskuskeyti, líklega sextíu ára gamalt, fannst á fjalli á Vestfjörðum í vikunni. Skeytið fannst í Erni við Skutulsfjörð og voru það tveir skíðamenn sem komu auga á það.

Innlent
Fréttamynd

Síminn: Bjóðendur opinberaðir

Bjóðendur í Símann verða opinberaðir í dag. Alls bárust fjórtán tilboð í fyrirtækið en að baki þeim standa þrjátíu og sjö fjárfestar, innlendir og erlendir. Tilboðunum var skilað inn fyrir réttri viku og hafa framkvæmdanefnd um einkavæðingu og ráðgjafar frá Morgan-Stanley farið yfir þau.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segja Alfreð hóta

Ummæli Alfreðs Þorsteinssonar í Fréttablaðinu í gær um mögulegan meirihluta Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks í Orkuveitu Reykjavíkur hafa vakið hörð viðbrögð hjá Vinstri-grænum. Stjórn Vinstri-grænna í Reykjavík kom saman til fundar í gær og harmaði afstöðu Alfreðs til málsins.

Innlent
Fréttamynd

Alið á ótta og óöryggi

Í fréttatilkynningu vegna birtingar ársskýrslu Amnesty International segir: "Ríkisstjórnir hafa ekki staðið við loforð sín um að virða mannréttindi og hættuleg stefnubreyting hefur orðið í þróun mannréttinda."

Innlent
Fréttamynd

Grænfriðungar gæða sér á hrefnu

"Ég er að selja 30 til 40 kíló af hval á viku," segir Úlfar Eysteinsson kokkur og meðeigandi á veitingastaðnum Þrír frakkar. Hann hefur boðið upp á hvalkjöt frá árinu 1989. "Ég hef tekið eftir því að fólk kemur hingað beint úr hvalaskoðun til að gæða sér á hvalkjöti.

Innlent
Fréttamynd

Nöfn bjóðenda í Símann birt

Einkavæðingarnefnd hefur birt nöfn þeirra fyrirtækja og einstaklinga sem buðu í Símann en fjórtán óbindandi tilboð bárust í hlut ríkisins í fyrirtækinu. Tveir erlendir fjárfestar voru útilokaðir frá því að gera bindandi tilboð.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

VG vill ekki álver í Helguvík

Vinstri-grænir í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ætla ekki að fallast á að fyrirtækið selji raforku til fyrirhugaðs álvers í Helguvík í landi Reykjanesbæjar. Fulltrúi sjálfstæðismanna segir málið dæmi um vandræðagang R-listans.

Innlent
Fréttamynd

Tugir segja sig úr Samfylkingunni

Allt að þrjátíu félagsmenn hafa sagt sig úr Samfylkingunni að loknum landsfundi flokksins um síðustu helgi. Ingvar Sverrisson, framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, segir töluna ekki nákvæma og ómögulegt sé að ráða í ástæður fólks fyrir úrsögn.

Innlent
Fréttamynd

Gengi krónu heldur áfram að hækka

Gengi krónunnar hækkaði í gær um 0,7 prósent og hefur haldið áfram að styrkjast í morgun. Hefur gengið hækkað um nær 4 prósent á rúmri viku. Á þessum tíma hefur dollarinn farið úr tæplega 67 krónum niður í ríflega 64 krónur, evran úr ríflega 84 krónum niður í ríflega 81 krónu og pundið úr 123 krónum niður í 118.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Davíð ásamt nefnd til Japans

Davíð Oddsson utanríkisráðherra mun fara fyrir viðskiptasendinefnd til Japans í september næstkomandi. Á vef Útflutningsráðs segir að ferðin sé sniðin bæði að þeim fyrirtækjum sem séu þegar í viðskiptum á svæðinu og þeim sem vilji hefja samstarf eða markaðssókn inn á þennan markað.

Innlent
Fréttamynd

Annir vegna hraðaksturs

Lögreglan í Hafnarfirði hafði í nógu að snúast vegna hraðaksturs í gærkvöldi og nótt, en ellefu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók var á 139 kílómetra hraða en hinir óku litlu hægar. Annars var nóttin róleg hjá lögreglu víðast hvar um landið, reyndar svo róleg að lögreglan í Reykjavík hafði varla fengið símtal í alla nótt.

Innlent
Fréttamynd

Hugsanlega engin niðursveifla

Niðursveiflan sem spáð hafði verið í efnahagslífinu kemur alls ekki eða seinkar að minnsta kosti um nokkur ár. Þetta telur fjármálaráðherra að gæti gerst í ljósi mikils áhuga á frekari stóriðjuframkvæmdum.

Innlent
Fréttamynd

Borgin fær engan frest

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála felldi úr gildi frest sem samkeppnisráð hafði veitt Reykjavíkurborg til að skipta upp starfsemi Upplýsingamiðstöðvar ferðamála og bjóða hluta af starfseminni út. Að öðru leyti staðfesti áfrýjunarnefndin úrskurð samkeppnisráðs.

Innlent
Fréttamynd

Afstaða VG skiptir engu máli

Ég geri ráð fyrir því að sjálfstæðismenn muni vilja vera með í meirihluta í stjórninni um mál af þessu tagi því það þætti nýmælisvert ef þeir leggðust gegn stóriðju og ekki síst þar sem um er að ræða mikið hagsmunamál fyrir Reykjanesbæ, segir Alfreð Þorsteinsson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur.

Innlent
Fréttamynd

Nýrrar Grímseyjarferju að vænta

Ný Grímseyjarferja er væntanleg. Ríkiskaup hafa óskað eftir ferju sem leysa á Sæfara, núverandi ferju, af hólmi. Tilboð eiga að berast fyrir 20. júní. Meðal skilyrða sem settu eru er að ný ferja verði ekki eldri en fimmtán ára, hún geti flutt bíla, gáma og vinnuvélar og að veitingasalur verði um borð. Þá eru gerðar strangar kröfur um öryggisatriði.

Innlent
Fréttamynd

Tekur ekki þátt í R-listaviðræðum

Dagur B. Eggertsson fulltrúi óháðra í borgarstjórn Reykjavíkur á ekki aðild að viðræðum R-listaflokkanna um áframhaldandi samstarf þeirra í borgarstjórn. Hann telur eðlilegt að flokkarnir ljúki viðræðum sín á milli um framhaldið og segist ekki hafa áhyggjur af því að ekki verði hugað að stuðningi óflokksbundinna við listann. 

Innlent
Fréttamynd

Stýrir gámaflutningastarfsemi ytra

Daninn Mikael Hassing, fyrrverandi forstjóri skipafélagsins Mærsk á Bretlandi, hefur verið ráðinn forstjóri Samskipa, við hlið Ásbjörns Gíslasonar. Hassing stýrir gámaflutningastarfsemi Samskipa erlendis.

Viðskipti innlent