Erlent

Fréttamynd

Þrjár bílsprengjur í Bagdad

Það var blóðugur sunnudagur í Írak í gær. Að minnsta kosti fimmtíu manns féllu í þremur bílsprengjutilræðum í Bagdad, höfuðborg landsins. Þá særðust um eitt hundrað manns. Frá þessu greindi innanríkisráðuneyti landsins.

Erlent
Fréttamynd

Deilur um hvar eigi að jarða Milosevic

Deilur hafa blossað upp milli ættingja Milosevic, um hvar eigi að jarða hann. Ekkja Milosevic, Mirjana Markovic, og sonur þeirra Marko vilja að hann verði jarðaður í Moskvu þar sem þau búa, að sögn Beta, fréttastofunnar serbnesku, en bæði eru þau eftirlýst fyrir valdníðslu í valdatíð Milosevic. Þau yrðu því handtekin myndu þau mæta til útfara Milosevic yrði hún í Serbíu.

Erlent
Fréttamynd

Dánarorsok Milosevic líklega hjartaáfall

Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, lést úr hjartaáfalli samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum krufningar. Krufningin var gerð af hollenskum réttarlæknum að tveimur serbneskum réttarlæknum viðstöddum. Saksóknarar segja að eiturefnafræðileg rannsókn verði samt sem áður gerð þótt dánarorsökin liggi fyrir. Bosníu Serbar hafa lýst yfir efasemdum um dauða Milosevic og telja að eitrað hafi verið fyrir honum.

Erlent
Fréttamynd

GM innkallar 900.000 pallbíla

Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors Corp. tilkynnti í dag að fyrirtækið ætli að innkalla 900.000 pallbíla af gerðinni Chevrolet Silverado, Chevrolet Avalance, Cadillac Escalade EXT og GMS Sierra vegna galla í festingum sem styður við lok á palli bílanna. Bílarnir eru allir settir á markað á árunum 1999 til 2000.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hlutabréf lækkuðu í Evrópu

Hlutabréf lækkuðu nokkuð á helstu mörkuðum í Evrópu í dag og hefur gengi bréfa á helstu mörkuðum álfunnar ekki verið lægra í þrjár vikur. Ástæðan er lækkuninni er sú að búist er við minni vexti fyrirtækja en væntingar spáðu fyrir um auk þess sem evrópski seðlabankinn hækkaði stýrivexti í annað sinn á þremur mánuðunum í byrjun þessa mánaðar.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Bankaræningi í 19 ára fangelsi

David Alexander Toska, höfuðpaurinn að baki bankaráninu í Stavangri í Noregi fyrir tveimur árum, var í hádeginu í dag dæmdur í 19 ára fangelsi fyrir þátt sinn í því. 12 aðrir voru einnig dæmdir í málinu í dag og voru þeir dæmdir í allt að 17 ára fangelsi.

Erlent
Fréttamynd

Atvinnuleysi 4,8 prósent í Bandaríkjunum

Atvinnuleysi mældist 4,8 prósent í Bandaríkjunum í síðasta mánuði og er það 1,1 prósentustiga aukning frá janúarmánuði. Þrátt fyrir þetta urðu 243.000 ný störf urðu til í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Aukning atvinnuleysisins kemur fjármálasérfræðingum á óvart þar sem þeir spáðu óbreyttu atvinnuleysi á milli mánaða.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Óskað eftir gjaldþroti Yukos

Nokkrir bankar, sem lánuðu rússneska olíufyrirtækinu Yukos fé, hafa farið fram að að fyrirtækið verði lýst gjaldþrota. Olíufyrirtækið hefur rambað á barmi gjaldþrots allt frá því það var dæmt til að greiða 32 milljarða Bandaríkjadala skattaskuld við ríkið. Bankarnir sem farið hafa fram á að Yukos verði lýst gjaldþrota lánuðu fyrirtækinu 480 milljónir dollara áður en Yukos lenti í fjárhagskröggum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Tók 20 manns í gíslingu

Ofsóknarbrjálaður Frakki á fertugsaldri tók meira en 20 manns í gíslingu í skóla utan við Le Mans í gær. Maðurinn, sem kenndi áður við skólann, hélt fólkinu í um fjórar klukkustundir, en sleppti því svo og engan sakaði.

Erlent
Fréttamynd

Læknar segja meðferð fanga í Guantanamo ámælisverða

Rúmlega 250 læknar hafa skrifað undir bréf þar sem meðferð á föngum Bandaríkjahers í Guantanamo-fangelsinu á Kúbu er gagnrýnd. Sér í lagi gera læknarnir athugasemd við það að næring sé neydd ofan í þá fanga sem séu í mótmælasvelti.

Erlent
Fréttamynd

5000 milljarða aukalega vegna stríðsreksturs

Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra, hafa beðið Bandaríkjaþing um aukafjárveitingu upp á rösklega 5000 milljarða króna vegna aðgerða Bandaríkjahers í Írak og Afganistan. Hluti af fénu á þó að fara í neyðaraðstoð vegna fellibylsins Katrínar.

Erlent
Fréttamynd

Keops er víst í eigu Íslendinga

Danska fasteignafyrirtækið Keops hefur keypt umferðarmiðstöðina í Helsingjaborg í Svíþjóð fyrir hátt í 4 milljarða íslenskra króna. Greint er frá þessu á viðskiptasíðu Jótlandspóstsins og segir þar í undirfyrirsögn, með nokkru stolti, að það séu ekki bara íslendingar, sem fjárfesti í útlöndum. Jótlandspóstinum hefur hinsvegar yfirsést að íslenska fyrirtækið Baugur á hvorki meira né minna en þriðjung í Keops.

Erlent
Fréttamynd

Arabískt fyrirtæki tekur ekki við rekstir hafna í Bandaríkjunum

Arabískt fyrirtæki hefur látið undan þrýstingi frá Bandaríkjaþingi og ákveðið að hætta við að taka yfir stjórn sex hafna í Bandaríkjunum. Fyrirtækið, sem er með höfuðstöðvar í Dúbaí í Sameinuðu arabísku furstadæmunum, hefur keypt breskt fyrirtæki sem hefur séð um rekstur á höfnum í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna.

Erlent
Fréttamynd

Jarðsprengja fellir 26

26 manns féllu þegar jarðsprengja sprakk í suðvesturhluta Pakistans í morgun. Fólkið var á leið í brúðkaup, þegar bifreiðin sem það ferðaðist í keyrði á sprengjuna.

Erlent
Fréttamynd

Fangar fluttir úr Abu Ghraib

Þúsundir fanga verða fluttir úr hinu alræmda Abu Ghraib fangelsi í nýtt fangelsi á næstu þremur mánuðum. Bandaríski herinn tilkynnti þetta í gær og jafnframt að stjórnvöld í Írak tækju við stjórn fangelsisins á næstunni. Það verður síðan undir þeim komið hvort fangelsinsu verður áfram haldið opnu.

Erlent
Fréttamynd

Björgólfur Thor á lista yfir þá ríkustu

Björgólfur Thor Björgólfsson er númer 350 á lista yfir ríkustu menn veraldar sem Forbes viðskiptatímaritið birtir. Eignir Björgólfs eru metnar á 2,2 milljarða bandaríkjadollara eða sem nemur tæpum 140 miljörðum króna. Hann færst upp um heil 138 sæti síðan á síðasta ári.

Erlent
Fréttamynd

Umsátur við menntaskóla í Frakklandi

Fyrrverandi kennari tók í dag 20 nemendur, kennara og annan mann í gíslingu í menntaskóla í vesturhluta Frakklands. Maðurinn sem er 33 ára er sagður vera vopnaður. Lögreglan hefur umkringt skólann og er nú reynt að semja við manninn um að hleypa gíslunum út úr byggingunni en hann hefur ekki farið fram á neitt ennþá.

Erlent
Fréttamynd

Niðurskurður hjá British Airways

Breska flugfélagið British Airways ætlar á skera niður útgjöld um 450 milljónir punda, 54 milljarða íslenskra króna, á næstu tveimur árum. M.a. er búist við uppsögnum hjá flugfélaginu. Ástæðan fyrir niðurskurðinum er aukin samkeppni frá lággjaldaflugfélögum og spá um hærri eldsneytiskostnað á næstu árum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Óttast að 30 manns hafi látist

Óttast er að þrjátíu manns hafi farist þegar rúta með um 40 farþega innanborðs fór út af veginum og lenti út í á í Tyrklandi snemma í morgun. Tekist hefur að finna þrettán líkanna en um 30 eru enn fastir í flakinu sem er á kafi í vatni. Björgunarmenn eru enn að störfum en rútan var á leið frá Istanbul, höfuðborg landsins, til borgarinnar Van nærri írönsku landamærunum.

Erlent
Fréttamynd

Sögulegur viðskiptahalli í Bandaríkjunum

Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum jókst um 5,3 prósent í janúar og nam 68,5 milljörðum dala í mánuðinum, samkvæmt upplýsingum frá viðskiptaráðuneyti landsins. Þetta er methalli í mánuðinum í sögu Bandaríkjanna en ástæða hans er aukinn innflutningur á eldsneyti, ökutækjum og vínum auk mikils innflutnings á klæðnaði og farsímum frá Kína.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Krefjast að teiknurum verði refsað

Mótmælum vegna skopmyndadeilunnar er hvergi nærri lokið. Í gær gengu fjölmargir múslimar fylktu liði í indverska hluta Kasmír og kröfðust þess að teiknurum skopmyndanna yrði refsað. Lögregla, sem fylgdist vakandi með þurfti ekki að grípa til aðgerða, en sumum var heitt í hamsi og eins og svo oft áður varð danski fáninn eldinum að bráð.

Erlent
Fréttamynd

Hráolíuverð lækkaði

Hráolíuverð lækkaði á helstu mörkuðum í dag í kjölfar þess að samtök olíuframleiðsluríkja (OPEC) samþykktu á fundi sínum í Vínarborg í gær að halda olíuframleiðslu óbreyttri.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Stýrivextir óbreyttir í Bretlandi

Bankastjórn Englandsbanka ákvað á fundi sínum í dag að hækka ekki stýrivexti í Bretlandi. Þeir eru nú 4,5 prósent og hafa haldist óbreyttir síðastliðna sjö mánuði. Stöðugleiki í bresku efnahagslífi og jákvæð breyting á fasteignamarkaði eru talin ástæða þess að bankastjórnin ákvað að halda vöxtunum óbreyttum.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hagnaður PPR dróst saman

Hagnaður franska eignarhaldsfélagsins PPR, sem m.a. á ítalska tískufyrirtækið Gucci auk fleiri þekktra vörumerkja, dróst saman um tæpan helming á síðasta ári miðað við árið á undan. Hagnaður fyrirtækisins á árinu nam 535 milljónum evra, jafnvirði rúmlega 44 milljarða íslenskra króna. Árið 2004 nam hagnaðurinn hins vegar 1.09 milljörðum evra, tæplega 90 milljörðum íslenskra króna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sektuð fyrir að farða sig undir stýri

Það getur verið betra að gefa sér tíma til að hafa sig til áður en maður fer út á morgnana. Þetta fékk bresk kona heldur betur að reyna á dögunum, þegar lögreglumenn sektuðu hana um röskar tuttugu þúsund krónur fyrir að farða sig á meðan hún var að keyra.

Erlent
Fréttamynd

Mótmælin halda áfram

Mótmælum vegna skopmyndadeilunnar er hvergi nærri lokið. Í gær fylktu fjölmargir múslimar liði í indverska hluta Kashmir og kröfðust þess að teiknurum skopmyndanna yrði refsað.

Erlent
Fréttamynd

Viðræður hafnar

Viðræður eru þegar hafnar um hugsanlegar aðgerðir gegn Írönum vegna kjarnorkuþróunar þeirra. Fulltrúar fimm landa sem eiga fast sæti í öryggisráði Sameinuðu Þjóðanna hittust í gærkvöldi til að fjalla um mögulegar leiðir til að stöðva Írana.

Erlent
Fréttamynd

Ný fuglaflensutilvik í Svíþjóð

Fleiri tilvik af fulglaflensu hafa greinst í Svíþjóð. Fjórar endur sem fundust dauðar á strandlengjunni suður af Stokkhólmi og í Karlskrona í síðustu viku voru allar sýktar. Enn er þó ekki ljóst hvort um H5N1 stofninn er að ræða.

Erlent
Fréttamynd

Þrír færeyskir drengir dóu í bruna

Færeyingar eru harmi slegnir eftir að þrír piltar á aldrinum sex til tíu ára létust í eldsvoða í gærkvöldi. Eldsupptök eru ennþá ókunn en danskir sérfræðingar vinna að rannsókn málsins.

Erlent