Íþróttir

Fréttamynd

Ísland - Ítalía á breiðbandinu

Til að koma til móts við fjölmarga knattspyrnuáhugamenn á Íslandi verður Rai Uno, ítalska ríkissjónvarpsstöðin, send út í opinni dagskrá í kvöld á meðan leikur Ítalíu og Íslands fer fram. Leikurinn hefst klukkan 18.45 að íslenskum tíma og mun stöðin verða opin þar til að leik loknum.

Sport
Fréttamynd

Englendingar með sama byrjunarlið

Englendingar tefla fram sama byrjunarliði gegn Aserbaídsjan á St. James Park í kvöld og vann Norður-Íra, 4-0, í undankeppni heimsmeistaramótsins á Old Trafford á laugardag. David Beckham og Steven Gerrard hafa báðir náð sér af lítilsháttar meiðslum og verða með. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn klukkan hálf sjö.

Sport
Fréttamynd

Venus vann Serena

Venus Williams hafði betur gegn systur sinni, Serena, í fjórðungsúrslitum opna Nasdaq-100-mótsins í gær.

Sport
Fréttamynd

Ingólfur og Kristín úr leik

Ingólfur Ingólfsson og Kristín Hjálmarsdóttir eru úr leik í tvenndarleik á Evrópumótinu í borðtennis sem fram fer í Árósum. Þau töpuðu fyrir Ítölum í fyrstu umferð í þremur lotum, 11-5, 11-5 og 11-6.

Sport
Fréttamynd

Skíðamót Íslands á Króknum

Skíðamót Íslands verður haldið á Sauðárkróki um næstu helgi. Vegna snjóleysis var ákveðið að færa mótið úr Bláfjöllum en það hafði áður verið fært úr Oddskarði þar sem snjóalög voru á þeim tíma best í Bláfjöllum. Hlýindi og rigningar síðustu daga hafa hins vegar eytt öllum snjó á Bláfjallasvæðinu, en þetta er í þriðja sinn á fimm árum sem færa verður Skíðamót Íslands vegna snjóleysis.

Sport
Fréttamynd

Funk sigraði á Players-mótinu

Fred Funk frá Bandaríkjunum tryggði sér í gærkvöldi sigur á Players-mótinu í golfi á Sawgrass-vellinum í Flórída. Funk lék á níu höggum undir pari og er elsti kylfingur sem sigrað hefur á Sawgrass-vellinum. Bandaríkjamennirnir Tom Leman og Scott Verplank ásamt Luke Donald frá Englandi komu næstir á átta höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

Renault með besta liðið

Giancarlo Fisichella, ökumaður Renault-liðsins í Formúlu 1 kappakstrinum, segir litlu máli skipta að Ferrari muni frumreyna bíl sinn í næstu keppni sem fram fer í Bahrain um næstu helgi.

Sport
Fréttamynd

Sigrún kastaði yfir 50 metra

Sigrún Fjeldsted, spjótkastari úr FH, kastaði 50,19 metra á móti í Clemson í Suður-Karólínu á föstudag, en þetta er besti árangur hennar. Hún hafði áður kastað 49,70 metra.

Sport
Fréttamynd

David Tua aftur í hringinn

Fyrrum áskorandi í þungavigt, David Tua, mun snúa aftur í hringinn er hann mætir bandaríkjamanninum Talmadge Griffis í 10 lotu bardaga þann 31.mars í Auckland í Nýja Sjálandi, en Tua hefur ekki barist í rúm tvö ár.

Sport
Fréttamynd

Leik aftur frestað vegna veðurs

Veðurguðirnir hafa sett allt úr skorðum á Players-mótinu í golfi á Sawgrass-vellinum í Flórída, en þriðja daginn í röð varð að fresta keppni vegna veðurs. Stormur og þrumuveður hafa sett strik í reikninginn en mótið heldur áfram síðdegis í dag og hefst bein útsending á Sýn klukkan sjö.

Sport
Fréttamynd

Öruggur sigur Sörenstam

Annika Sörenstam frá Svíþjóð sigraði á stórmeistaramóti kvenna sem lauk í Kaliforníu í gærkvöldi. Hún lauk keppni á 15 höggum undir pari. Í öðru sæti varð Rosei Jones frá Bandaríkjunum á sjö höggum undir pari.

Sport
Fréttamynd

F2005 frumreyndur á undan áætlun

Michael Schumacher, ökumaður hjá Ferrari í Formúlu 1 kappakstrinum, er fullur tilhlökkunar að keppa á nýjum Ferraribíl sem ber heitið F2005. Schumacher hefur aðeins hlotið tvö stig í fyrstu tveimur keppnum tímabilsins en hann endaði í sjöunda sæti í síðustu keppni sem fram fór í Malasíu.

Sport
Fréttamynd

Schumacher spenntur

Heimsmeistarinn í Formúlu 1, Michael Schumacher, segist ekki geta beðið eftir að reyna nýja bílinn frá Ferrari í Bahrain um næstu helgi.

Sport
Fréttamynd

Úrslitin í HM-leikjunum

Svíar lögðu Búlgara, 3-0, á útivelli í 8. riðli, riðli okkar Íslendinga, í undankeppni HM í gær. Svíar eru á toppnum með 12 stig, Króatar verma annað sætið í riðlinum með 10 stig, Búlgaría í þriðja sæti með 7 stig , Ungverjaland í fjórða sæti með 6 stig og Ísland og Malta reka lestina með 1 stig.

Sport
Fréttamynd

Westwood og Durant efstir

Lee Westwood frá Englandi og Bandaríkjamaðurinn Joe Durant eru efstir á Players-mótinu í golfi en fresta varð öðrum hring í gær vegna myrkurs. Þá var heldur ekkert leikið á föstudag vegna veðurs. Bein útsending frá mótinu hefst á Sýn klukkan hálf níu í kvöld.

Sport
Fréttamynd

Byrjunarliðið gegn Króötum

Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson landsliðsþjálfarar tilkynntu byrjunarlið Íslands í morgun sem mætir Króatíu í undankeppni HM í dag klukkan 17. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn.

Sport
Fréttamynd

Öðrum hring frestað

Í gær varð að fresta öðrum hring vegna veðurs á Players-meistaramótinu í golfi á Flórída. Steve Jones var í fyrsta sæti á átta höggum undir pari að loknum fyrsta hring. Sýnt verður beint frá mótinu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan sjö.

Sport
Fréttamynd

Guðmundur og félagar í úrslit

Guðmundur E. Stepensen, Íslandsmeistari í borðtennis, og félagar í Malmö í Svíþjóð komust í gær í úrslit um sænska meistaratitilinn í borðtennis þegar þeir lögðu Halmadstad í oddarimmu í undanúrslitum. Guðmundur lék einn leik og vann, 3-2.

Sport
Fréttamynd

Jones leiðir á Flórída

Bandaríkjamaðurinn Steve Jones lék allra manna best á Players Championship mótinu í golfi sem hófst á Sawgrass-vellinum í Ponte Vedra á Florída í gær. Jones lék á 8 höggum undir pari en Lee Westwood, Fred Funk og Zach Johnson léku á 7 undir. Sergio Garcia er á 6 undir og Vijay Singh á 5 undir pari.

Sport
Fréttamynd

Players-meistaramótið hefst í dag

Players-meistaramótið í golfi hefst í dag á Sawgrass-vellinum í Flórída. Adam Scott vann óvæntan sigur á mótinu á síðasta ári en mótið er eitt af risamótum ársins. Allir bestu kylfingar heims mæta til leiks og sá er vinnur fær hálfan miljarð króna í sinn vasa. Beinar útsendingar verða frá Players-mótinu á Sýn laugardag og sunnudag.

Sport
Fréttamynd

Örn setti met í 100 m flugsundi

Örn Arnarsson, sundmaður úr Sundfélagi Hafnarfjarðar, setti í gærkvöld nýtt Íslandsmet í 100 metra flugsundi í 25 metra laug. Hann kom í mark á 53,55 sekúndum og bætti eigið met um tæpa sekúndu sem hann setti í janúar á síðasta ári.

Sport
Fréttamynd

Hopkins boxar gegn Taylor í júlí

Bernard Hopkins mun boxa gegn Jermain Taylor þann 16. júlí næstkomandi. Hopkins er handhafi WBC, IBF, WBA og WBO beltanna í millivigt og verða þau öll undir í bardaganum.

Sport
Fréttamynd

Átta sundmenn úr Ægi til Andorra

Stjórn SSÍ hefur nú samþykkt tillögu Landsliðsnefndar yfir þá sundmenn sem keppa fyrir hönd Íslands í sundi á Smáþjóðaleikunum sem fram fara í Andorra í upphafi sumars. Flestir sundmenn komu úr Sundfélaginu Ægi eða alls átta manns en athygli vekur að Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir kemst ekki í landsliðið að þessu sinni.

Sport
Fréttamynd

Sundfólkið gerir það gott

Fjórir Íslensku keppendanna á Opna Danska meistaramótinu í sundi hafa unnið til verðlaunasætis í unglingaflokkinum. Þeir hafa reyndar ekki fengið verðlaun þar sem þeir eru ekki Danskir ríkisborgarar.

Sport
Fréttamynd

Corrales þolir ekki högg

Jose Luis Castillo er kokhraustur fyrir bardaga sinn gegn fjaðurvigtarmeistaranum Diego Corrales. Castillo segist vera spenntur fyrir bardaganum en segir Corrales ekki geta tekið við höggum.

Sport
Fréttamynd

Hroki í Ferrari-liðinu

Ralf Schumacher, bróðir Michael Schumacher hjá Ferrari, hefur sagt að honum þyki það hroki í Ferrari liðinu að koma til keppni í Formúluni í ár á bílnum frá í fyrra.

Sport
Fréttamynd

Johnson lætur Breta heyra það

Goðsögnin Michael Johnson frá Bandaríkjunum, sem gerði garðinn frægan á hlaupabrautunum fyrir nokkrum árum og varð meðal annars Ólympíumeistari í bæði 200 og 400 metra hlaupi á leikunum í Atlanta árið 1996, segist vita ástæðuna fyrir því að Breska frjálsíþróttafólkið hefur valdið vonbrigðum undanfarin ár.

Sport
Fréttamynd

Danska meistaramótið í sundi

Sundsamband Íslands sendi 24 manna unglingalandsliðshóp á danska meistaramótið í sundi sem fram fer í Óðinsvéum í Danmörku þessa dagana.

Sport