Pólstjörnumálið

Fréttamynd

Smyglskútumálið til rannsóknar í Danmörku

Lögreglumenn á vegum lögreglunnar á höfuð­borgar­svæðinu eru nú staddir í Danmörku og vinna þar að rannsókn á eiturlyfjasmyglinu sem upp kom á Fáskrúðsfirði 21. september síðastliðinn. Lögreglumenn hafa þegar farið til Færeyja og Noregs við rannsókn málsins en það teygir anga sína einnig til Hollands og Þýskalands

Innlent
Fréttamynd

Fyrsta skýrslutakan á morgun

Á morgun fer fram fyrsta skýrslutaka lögreglu yfir Bjarna Hrafnkelssyni, sem setið hefur í eingangrun síðan 20. september þegar hann var handtekinn vegna gruns um að standa að stærsta fíkniefnasmygli Íslandssögunnar.

Innlent
Fréttamynd

Í gæsluvarðhaldi til 18. október vegna smyglskútumáls

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur að kröfu lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu úrskurðað karl á þrítugsaldri í áframhaldandi gæsluvarðhald til 18. október vegna rannsóknar á aðild hans að fíkniefnamálinu á Fáskrúðsfirði.

Innlent
Fréttamynd

Krefjast framlengingar á gæsluvarðhaldi

Lögreglan hefur krafist framlengingar á gæsluvarðhaldi yfir manni, sem handtekinn var á bryggjunni á Fáskrúðsfirði þegar skúta með fíkniefnum kom þangað í síðustu viku. Hann var úrskurðaður í skemmri gæslu en aðrir, sem tengdust málinu.

Innlent
Fréttamynd

Verði áfram í gæsluvarðhaldi

Gæsluvarðhalds­úrskurður yfir pilti um tvítugt, sem handtekinn var á bílaleigubíl á Fáskrúðsfirði á fimmtudaginn í síðustu viku, rennur út í dag en lögreglan hyggst óska eftir því að hann verði áfram í haldi. Það staðfesti Friðrik Smári Björgvinsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins, við Fréttablaðið í gær.

Innlent
Fréttamynd

Kortleggja ferðir skútunnar

Bjarni Hrafnkelsson sem situr í gæsluvarðhaldi vegna skútusmyglsins er talinn hafa fjármagnað og pakkað inn fíkniefnunum erlendis. Lögreglumenn sem nú eru staddir í Færeyjum í tenglsum við málið munu síðar halda til Danmerkur og þaðan þræða þá leið sem skútan fór áður en hún hélt til Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Skýrslutökur yfir einum sakborninga ekki hafnar

Lögreglan er ekki farin að yfirheyra Guðbjarna Traustason, annan þeirra sem handteknir voru um borð í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn. Hann neitaði með öllu að tjá sig að lögmanni sínum fjarstöddum.

Innlent
Fréttamynd

Bjarni og Einar Jökull áfram í haldi

Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms þess efnis að Bjarni Hrafnkelsson og Einar Jökull Einarsson skyldu vera í gæsluvarðhaldi til 18. október. Þeir eru grunaðir um að skipuleggja smygl á 60 kílóum af amfetamíni.

Innlent
Fréttamynd

Sýndi norsku lögreglunni Lucky Day

Logi Freyr Einarsson, sem handtekinn var í Noregi í tengslum við smyglskútumálið á Fáskrúðsfirði segist ekki hafa komið nálægt smygluna. Hann sýndi norksum lögreglumönnum skútuna Lucky Day sem liggur við festar í Stafangri.

Innlent
Fréttamynd

Reyndu að flýja Fáskrúðsfjörð

Samkvæmt heimildum Vísis reyndu þeir Guðbjarni Traustason og Alvar Óskarsson, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna Fáskrúðsfjarðarmálsins, að flýja Fáskrúðsfjörð þegar þeir urðu varir við að þeim var veitt eftirför.

Innlent
Fréttamynd

Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald

Hæstiréttur Íslands staðfesti í morgun gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Bjarna Hrafnkelssyni og Einari Jökli Einarssyni. Þeir voru báðir handteknir í tengslum við Fáskrúðsfjarðarmálið í síðustu viku og úrskurðaðir í gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjavíkur til 18. október. Alls voru fimm úrskurðaðir í gæsluvarðhald en aðeins Bjarni og Einar Jökull áfrýjuðu úrskurðinum til Hæstaréttar.

Innlent
Fréttamynd

Þungt að vita af bróður mínum í varðhaldi

Logi Freyr Einarsson, sem handtekinn var í Noregi í síðustu viku í tengslum við Fáskrúðsfjarðarmálið, segir í samtali við Vísi að erfitt sé að vita af bróður sínum á Íslandi í gæsluvarðhaldi

Innlent
Fréttamynd

Meintur höfuðpaur neitar alfarið sök

Bjarni Hrafnkelsson er talinn eiga verulegan þátt í skipulagningu og fjármögnun Pólstjörnusmyglsins. Hann neitar sök. Rannsóknin beinist að því að upplýsa hvar, hvenær og hvernig fíkniefnunum var komið fyrir í skútunni, og hverjir gerðu það.

Innlent
Fréttamynd

Smyglskútan sigldi langa leið

Smyglskútan sem kom til Fáskrúðsfjarðar á fimmtudag var tekin á leigu í Bergen og þaðan siglt til ýmissa landa áður en henni var siglt hingað til lands. Íslendingnum, sem var í haldi norsku lögreglunnar, hefur verið sleppt.

Innlent
Fréttamynd

Skotið á skútusmyglara í fyrra

Skotárás fyrir tveimur árum á tvo af mönnunum, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi, gefur innsýn í veruleika íslenska fíkniefnaheimsins en sjónarvottar lýsa árásinni sem framhjá-aksturs-skothríð.

Innlent
Fréttamynd

Yfirheyrslur yfir amfetamínsmyglurum halda áfram

Rannsókninni á smyglskútumálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði á fimmtudag miðar vel en yfirheyrslur yfir sakborningunum halda áfram, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá lögreglunni. Í Noregi var einn aðili handtekinn vegna málsins en sá er laus úr haldi. Í Færeyjum voru tveir handtekni.

Innlent
Fréttamynd

Skútan rannsökuð á Keflavíkurflugvelli

Fíkniefnaskútan úr Pólstjörnumálinu er til rannsóknar í flugskýli á Keflavíkur­flugvelli, en ekkert nýtt hefur enn komið fram. Skýrslutökur eru stutt á veg komnar og ekki hefur verið rætt um framsal þeirra sem handteknir voru erlendis.

Innlent
Fréttamynd

Amfetamínið myndi duga í löglega neyslu hér í hálfa öld

Í smyglskútunni sem notuð var til að flytja fíkniefnin til Íslands voru 46 kíló af nærri hreinu amfetamíni að talið er. Amfetamín er skráð lyf en dregið hefur stórlega úr notkun þess og skyldra lyfja meðal annars vegna hættu á fíkn. Þol myndast hratt gegn amfetamíni og því kallar neysla þess á stærri skammta með tímanum. Langt leiddir amfetamínfíklar sprauta efninu jafnvel í æð.

Innlent
Fréttamynd

Rannsóknin teygir anga sína til Tékklands

Fáskrúðsfjarðarmálið teygir anga sína alla leið til Tékklands þar sem einn hinna grunuðu var eftirlýstur. Þá rannsakar lögreglan nú meðal annars hvort skútan hafi verið notið til fíkniefnaflutnings fyrir tveimur árum þegar hún kom til Fáskrúðsfjarðarhafnar.

Innlent
Fréttamynd

Grunur um að smyglararnir hafi notað sömu leið áður

Skúta á vegum bræðranna sem eru í gæsluvarðhaldi í Pólstjörnumálinu kom til Fáskrúðsfjarðar haustið 2005. Áður en lögregla fór með fíkniefnahund um borð hafði áhöfnin yfirgefið þorpið, með dýnur og annan búnað úr skútunni.

Innlent
Fréttamynd

Þrír menn skipulögðu smyglið

Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins telur lögreglan þátt þriggja manna, Bjarna Hrafnkelssonar og bræðranna Einars Jökuls og Loga Freys Einarssona, vera viðamestan í smyglmálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði. Hinum handteknu í Danmörku sleppt í gær.

Innlent
Fréttamynd

Lucky Day í Fáskrúðsfjarðarhöfn

Vísir hefur undir höndunum myndir sem sýna skútuna Lucky Day þegar hún lá í Fáskrúðsfjarðarhöfn. Lucky Day er skútan sem Einar Jökull Einarsson, sem nú er í gæsluvarðhaldi vegna smyglskútumálsins, sigldi hingað til lands ásamt öðrum manni fyrir tveimur árum. Þegar hann kom að landi fékk hann að hringja úr heimahúsi í bænum og hvarf svo. Allt lauslegt var tekið úr skútunni og henni ekki sinnt í eitt og hálft ár. Bróðir Einars Jökuls, Logi Freyr Einarsson sem nú er í haldi lögreglu í Noregi, borgaði hafnargjöldin af Lucky Day.

Innlent
Fréttamynd

Húsleit gerð í grennd við Laugardal

Hópur sérsveitarmanna og óeinkennisklæddra lögreglumanna réðst í kvöld inn í hús í grennd við Laugardal. Ekki er vitað hvort aðgerðin tengist Stóra smyglskútumálinu á Fáskrúðsfirði en lögreglan verst allra frétta af málinu. Einn til tveir menn voru handteknir í aðgerðinni. Samkvæmt heimildum Vísis var lögreglan búin að fylgjast með húsinu í allan dag og lét svo til skarar skríða um kvöldmatarleitið.

Innlent
Fréttamynd

Skútan hafði ekki viðdvöl í Danmörku

Færeyska lögreglan segir að smyglskútan hafa beðið í nokkra daga í Færeyjum áður en hún hélt af stað til Íslands. Skútan kom frá Noregi en hafði ekki viðdvöl í Danmörku, eins og haldið hefur verið fram.

Innlent
Fréttamynd

Sigling smyglaranna hrein heimska

Einn reyndasti skútuskipstjóri landsins segir för smyglaranna yfir hafið hreina heimsku á þessum árstíma. Hann segir eftirlit með bátaumferð betra hér á landi en alls staðar þar sem hann þekkir til í Evrópu

Innlent
Fréttamynd

Höfuðpaurarnir taldir vera tveir

Bjarni Hrafnkelsson, 35 ára gamall Hafnfirðingur, og Einar Jökull Einarsson, 27 ára gamall Garðbæingur, eru samkvæmt heimildum Vísis taldir vera höfuðpaurar í Stóra smyglskútumálinu sem kom upp á Fáskrúðsfirði í gær. Þeir voru báðir handteknir á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun og úrskurðaðir í fjögurra vikna gæsluvarðhald í framhaldinu.

Innlent
Fréttamynd

Íslensku pari sleppt í Kaupmannahöfn

Íslendingunum tveimur sem handteknir voru í Kaupmannahöfn í tengslum við smyglskútumálið á Fáskrúðsfirði hefur verið sleppt úr haldi. Fréttamaður Stöðvar 2 í Danmörku, Sighvatur Jónsson, segir að mál þeirra sé höndlað sem staðbundið fíkniefnamál í Kaupmannahöfn og tengist ekki smyglmálinu. Heimildir Vísis herma að um sé að ræða karl og konu á þrítugsaldri.

Innlent