Ástin og lífið

Frægir fjölguðu sér árið 2022
Það er ávallt mikið gleðiefni þegar börn koma í heiminn. Lífið hefur greint reglulega frá því þegar þekktir einstaklingar eignast börn. Hér að neðan má sjá yfirferð yfir nokkur kríli sem komu í heiminn á árinu 2022 og Vísir greindi frá.

Margrét og Ísak trúlofuð
Margrét Bjarnadóttir, bæjarfulltrúi í Garðabæ, og Ísak Örn Kristinsson, viðskiptafræðingur og körfuboltadómari, trúlofuðu sig nýlega. Þau greina frá þessu í sameiginlegri færslu á Instagram.

Fóru leynt með óléttuna í átta mánuði
Hulda Vigdísardóttir, fegurðardrottning, og kærasti hennar, Birgir Örn Sigurjónsson, eiga von á sínu fyrsta barni. Þau hafa vitað af óléttunni síðan í maí en ekki greint frá henni fyrr en nú.

Frægir fundu ástina árið 2022
Á hverju ári greinir Vísir reglulega frá nýjum pörum og þá sérstaklega kemur að þekktum Íslendingum.

Kim Wilde og eiginmaðurinn skilja eftir 25 ára hjónaband
Breska söngkonan Kim Wilde og eiginmaður hennar, leikarinn Hal Fowler, hafa ákveðið að skilja eftir 25 ára hjónaband.

Brúðkaup ársins 2022
Á hverju ári greinum við á Vísi frá brúðkaupum og hér fyrir neðan má sjá yfirferð yfir þekkta Íslendinga sem gengu í hnappelduna á árinu 2021.

Löðrungur, lögsókn og lúxus
Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að vera stjarna, líkt og við sáum á árinu sem er að líða.

Anna Fríða og Sverrir gáfu syninum nafn: „Krúsímúsi var ekki samþykkt“
Anna Fríða Gísladóttir, forstöðumaður markaðsmála hjá Play, og kærasti hennar, Sverrir Falur Björnsson hafa gefið nýfæddum syni sínum nafn. Drengurinn heitir Jóhann Kristinn.

Gerir Demi Moore og Bruce Willis að ömmu og afa
Leikkonan Rumer Willis á von á sínu fyrsta barni með tónlistarmanninum Derek Richard Thomas. Rumer er elsta dóttir leikkonunnar Demi Moore og leikarans Bruce Willis og verður þetta þeirra fyrsta barnabarn.

Jólagöngutúrinn tók óvænta stefnu þegar María Thelma fékk bónorð
Leikkonan María Thelma Smáradóttir og hnefaleikakappinn Steinar Thors eru trúlofuð. Parið var á jólarölti í Hafnarfirði sem tók ansi óvænta stefnu þegar Steinar skellti sér á skeljarnar.

„Lítill Scheving kominn í heiminn“
Athafnahjónin Magnús Scheving og Hrefna Björk Sverrisdóttir hafa eignast son. Hrefna greinir frá gleðitíðindunum á Instagram.

Giftu sig óvænt hjá sýslumanni: „Brúðkaupsnóttin fór i að hjálpa gubbandi tveggja ára barni“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og eiginmaður hennar Gunnar Sigvaldason fagna nú fimmtán ára brúðkaupsafmæli. Halda þau upp á kristallsbrúðkaupsafmæli sitt 19. desember en þó ekki saman.

„Manni leið eins og barnið væri að koma og við sátum föst í snjónum“
Ungt par fékk að finna fyrir góðmennsku nágrannanna á laugardag þegar allt stefndi í að annað barn þeirra myndi fæðast í bíl þeirra, sem sat fastur á Álftanesi. Þau segja nágrannana hafa bjargað sér á ögurstundu.

Hallbera og Lukas fögnuðu ástinni í írskum kastala
Hallbera Guðný Gísladóttir, knattspyrnukempa og starfsmaður hjá stoðtækjaframleiðandanum Össuri, mætti með ástinni sinni til að fagna ást vina þeirra í brúðkaupi í írskum kastala um helgina.

Vinirnir Þórdís og Sigurjón eiga von á öðru barni
Vinirnir og tónlistarmennirnir Þórdís Imsland og Sigurjón Örn Böðvarsson eiga von á öðru barni. Það sem er óvenjulegt við þeirra barneignir er að þau hafa aldrei verið í nokkurs konar ástarsambandi, heldur hafa þau aðeins verið góðir vinir og bæði dreymdi þau um að eignast barn.

Festist á stefnumóti í sjö klukkustundir
„Ég byrjaði tólf ára í útvarpi,“ segir Siggi Gunnars, tónlistarstjóri Rásar 2 og spinningkennari. Siggi var gestur í Veislunni hjá Gústa B á FM957.

Brynja Scheving og Þorsteinn gengu í það heilaga í Las Vegas
Brynja Scheving, skólastjóri í Balletskóla Eddu Scheving, og Þorsteinn Halldórsson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í knattspyrnu, eru hjón. Þau gengu í það heilaga í sól og blíðu í Las Vegas í Bandaríkjunum í gær.

Björg og Tryggvi eignuðust son
Fjölmiðlakonan Björg Magnúsdóttir og auglýsingahönnuðurinn Tryggvi Þór Hilmarsson eignuðust son þann 7. desember síðastliðinn. Frá þessu greinir Björg á Instagram.

Sonur Flóna og Hrafnkötlu kominn með nafn
Tónlistarmaðurinn Flóni og kærasta hans Hrafnkatla hafa gefið nýfæddum syni sínum nafn. Drengurinn heitir Benjamín.

Stjörnulífið: Jólaundirbúningur, kvikmyndaverðlaun og rómantík í desember
Jólaundirbúningur setti sinn svip á vikuna sem leið. Þá fylltist Harpa af prúðbúnum gestum Evrópsku kvikmyndaverðlaunanna sem að þessu sinni voru afhent á Íslandi.

Fannar og Vala orðin hjón: Fékk sér húðflúr í staðinn fyrir hefðbundinn giftingarhring
Sjónvarpsmaðurinn Fannar Sveinsson og hjúkrunarfræðingurinn Valgerður Kristjánsdóttir, eða Vala eins og hún er kölluð, giftu sig síðastliðinn föstudag hjá sýslumanni. Eva Ruza og Hjálmar Örn gáfu þau aftur saman um kvöldið heima hjá Bergþóri Pálssyni og Alberti Eiríkssyni auk þess sem Björn Jörundur og Daníel Ágúst tóku lagið. Fannar ákvað að láta húðflúra á sig giftingarhringinn.

Hefur þú efast um faðerni þitt eða barns þíns?
Frásagnir og vangaveltur um rangfeðranir á Íslandi koma reglulega upp í samfélagsumræðunni þó svo að algengi rangfeðrunar hafi lækkað töluvert með árunum.

Hvarf til að horfa á HM og konan skilaði honum
Adriano, fyrrverandi leikmaður brasilíska landsliðsins, Parma, Inter og fleiri liða, er skilinn eftir afar stutt hjónaband.

„Það verður gaman að búa til okkar hefðir saman“
Hún byrjaði að skreyta í október, vekur börnin sín upp með jólalögum og veit fátt dásamlegra en jólahátíðina. Söngkonan og jólakúlan Selma Björns talar um hefðirnar, ástina og allt jólaskrautið, sem hún líkir við gamla góða vini.

Margrét Rán og Bryndís Hrönn eiga von á sínu fyrsta barni
Tónlistarkonan Margrét Rán á von á sínu fyrsta barni með unnustu sinni Bryndísi Hrönn. Parið tilkynnti þessar gleðilegu fréttir með sameiginlegri færslu á Instagram.

Besta jólagjöfin var bónorð á aðfangadag
Jólin eru sannarlega tími tónlistarkonunnar Guðrúnar Árnýjar. Hún kynntist manninum sínum í desember mánuði fyrir 22 árum síðan og trúlofaðist honum á aðfangadag. Þá eru jólin alltaf annasamur en skemmtilegur tími hjá henni í tónlistinni. Guðrún Árný er viðmælandi í Jólamola dagsins.

Kristín Sif og Stebbi Jak trúlofuð: „Þúsund sinnum já“
Kristín Sif Björgvinsdóttir, útvarpskona á K100, og Stefán Jakobsson, söngvari í Dimmu, eru trúlofuð en parið greindi frá þessum tímamótum á samfélagsmiðlum í gær. Þau hafa verið saman frá því í sumar og trúlofuðu sig um helgina.

Líðan skjólstæðinganna batnað með sanngirni á þriðju vaktinni
Mikil umræða hefur skapast í samfélaginu um hina svokölluðu þriðju vakt eftir að skoðanagrein á Vísi fór á mikið flug. Fréttastofa fór á stúfana og spurði hver það væri á heimilinu sem helst stæði þriðju vaktina.

Þóra og Arnar eignuðust stúlku
Fjölmiðlakonan Þóra Tómasdóttir og sambýlismaður hennar, listamaðurinn Arnar Ásgeirsson, eignuðust í vikunni stúlku. Um er að ræða þeirra fyrsta barn saman en fyrir á Þóra eina dóttur.

Ari Eldjárn einhleypur
Uppistandarinn Ari Eldjárn er orðinn einhleypur. Ari og kona hans Linda Guðrún Karlsdóttir hafa ákveðið að halda í sitthvora áttina eftir tuttugu ára samband.