Lífið

Aron og Rita nefna soninn

Svava Marín Óskarsdóttir skrifar
Aron og Rita eignuðust dreng 25. nóvember síðastliðinn.
Aron og Rita eignuðust dreng 25. nóvember síðastliðinn.

Aron Pálmarsson handboltakappi og fyrirliði íslenska karlalandsliðsins og kærastan hans Rita Stevens eignuðust dreng 25. nóvember síðastliðinn. Syninum var gefið nafnið Lúkas Logi á dögunum.

Drengurinn er þeirra fyrsta barn saman. Fyrir á Aron eina stúlku úr fyrra sambandi á meðan Rita á tvö börn fyrir.

Aron er nýlega kominn heim eftir fjórtán ár í atvinnumennsku. Hann gekk til liðs við upp­eld­is­fé­lag sitt FH í fyrra sum­ar og festi í kjöl­farið kaup á raðhúsi í Hafnarfirði, nánar tiltekið við Stekkjarberg.


Tengdar fréttir

Aron og Rita eiga von á barni

Aron Pálmarsson, handboltakappi og fyrirliði íslenska karlalandsliðsins, Rita Stevens, kærasta hans, eiga von á sínu fyrsta barni saman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×