
Reykjavík síðdegis

Glæpahópar láti ljósmynda sig og flýi land með vasa fulla af seðlum
Yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi segir vasaþjófnað vaxandi vandamál sem ekki hafi þekkst hér fyrir örfáum árum. Ferðamálastofa varaði á dögunum við þjófum á vinsælum ferðamannastöðum þar sem fólk hafi tapað háum fjárhæðum.

„Algjörlega mælt gegn því að borða hrátt kjöt“
Næringarfræðingur mælir eindregið gegn því að fólk borði hrátt kjöt vegna örvera sem meltingarflóra mannsins á erfitt með að meðhöndla.

Til skoðunar að taka upp andlitsgreiningarkerfi á landamærunum
Dómsmálaráðherra segist ekki geta tekið undir það að landamærin séu hriplek. Til skoðunar er að setja upp andlitsgreiningarbúnað í Leifsstöð eins og byrjað var að gera fyrir tuttugu árum síðan.

Varar við óafturkræfum skaða við notkun nikótínpúða
Stefán Pálmason tannlæknir og sérfræðingur í lyflækningum munns varar notendur nikótínpúða sem hefur fjölgað gríðarlega á Íslandi undanfarin ár við óafturkræfum skaða fyrir tannholdið. Nikótínpúðar valdi því að tannholdið hörfi ásamt því að hafa álíka slæm áhrif á hjarta- og æðakerfið og reykingar.

Segir Eyjamálið ekki enn komið á sitt borð
Þórdís Kolbrún Gylfadóttir Reykfjörð, fjármála- og efnahagsráðherra, segir kröfu ríkisins í hluta Vestmannaeyjar, ekki á sínu borði enn sem komið er. Hún segir um að ræða ferli sem öll önnur svæði á landinu hafi farið í gegnum og hvetur Eyjamenn til að gæta réttar síns. Forseti bæjarstjórnar segir ráðherrann bera ábyrgð.

Ólíklegt að menn fáist til að fjárfesta í uppbyggingu í Hvassahrauni
Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segist telja ólíklegt að menn fáist til að fjárfesta í uppbyggingu í Hvassahrauni þar sem mikil óvissa ríkir um öryggi á svæðinu.

Segir ekki tengsl milli bónusa Skattsins og hverju starfsmenn skila í kassann
Ríkisskattstjóri segist skilja áhyggjur þeirra sem telja að viðbótarlaun til starfsmanna Skattsins kunni að grafa undan hlutleysi þeirra og gera það að verkum að þeir sæki mál harðar en ella. Hann bendir á að á sama tíma og 260 milljónir króna hafi verið greiddar í slík laun hafi heildarlaunakostnaður skattsins verið um 25 milljarðar.

Virknin færir sig nær höfuðborgarsvæðinu: „Þetta er þessi nýi veruleiki“
Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir stóran skjálfta sem skók suðvesturhornið rétt fyrir hádegi í dag benda til þess að skjálftavirknin sé að færa sig hægt og rólega yfir í Trölladyngju sem staðsett er mitt á milli höfuðborgarsvæðisins og Grindavíkur. Skjálftin er ekki vísbending um að neitt stórt sé að fara að gerast á svæðinu á næstu mánuðum.

Prýðilegt sprengiveður á gamlárskvöld
Siggi Stormur segir það munu veðra vel til sprenginga á gamlárskvöld. Hann mætti í Reykjavík síðdegis þar sem hann fór yfir veðurspá næstu daga.

Söluminnsta fasteignaár í tæpan áratug
Árið í ár var það söluminnsta á fasteignamarkaðinum frá árinu 2014. Þetta segir Páll Pálsson fasteignasali í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag.

Þau eru tilnefnd sem maður ársins 2023
Vísir og Reykjavík síðdegis standa fyrir vali á manni ársins 2023 og geta lesendur nú tekið þátt í að velja þá manneskju sem þeim þykir eiga nafnbótina skilið.

Maðurinn með níu líf
Guðmundur Hinrik Hjaltason húsasmíðameistari er sagður vera með níu líf. Í vikunni fór hann inn í logandi bíl, til að losa hann úr handbremsu. Aðgerðin bjargaði líklega húsi Guðmundar frá eldsvoða.

Segir líklegt að fisksalaferillinn sé að líða undir lok
Kristján Berg Ásgeirsson, kenndur við Fiskikónginn, segir nokkur ár síðan hann fékk nóg af starfinu. Þetta sé líklega síðasta árið sem hann selji skötu fyrir Þorláksmessu áður en hann snúi sér að öðru.

Eddu Björk hafi verið gert að tala norsku við börnin sín
Helga Vala Helgadóttir lögmaður og fyrrverandi þingkona Samfylkingarinnar segir ekki nóg hlustað á börnin í forsjármáli Eddu Bjarkar Arnardóttur sem framseld var til Noregs í dag. Hún gagnrýnir einnig framferði norskra yfirvalda í málum sem varða börn. Þetta og fleira ræddi hún í viðtali í Reykjavík síðdegis í dag

Eigum að geta gert myndir eins og Hollywood
Baltasar Kormákur Samper segir ekkert því til fyrirstöðu að Ísland geti framleitt myndir af sömu stærðargráðu og Hollywood.

Melatónínnotkun íslenskra barna aukist um mörg hundruð prósent
Síðastliðinn áratug hefur melatónínnotkun barna aukist um mörg hundruð prósent að sögn svefnsérfræðings. Hún segir mikilvægt að uppræta orsakir svefnleysis barna í stað þess að plástra einkenni þess með lyfinu.

Fólk þurfi að passa sig í „ruddaloftinu“
„Manni bregður kannski eftir alla þessa blíðu sem er búin að vera hjá okkur,“ segir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur í samtali við Reykjavík síðdegis.

„Viðbjóðslegu“ Barnakoti á Litla-Hrauni senn skipt út
Eiginkona fanga á Litla-Hrauni segir aðstæðurnar í heimsóknarrýmum í fangelsinu ógeðslegar. Formaður Afstöðu, félags fanga á Íslandi, segir fjögur ný rými sem ætluð verða fjölskylduheimsóknum senn líta dagsins ljós.

Ofnotkun á nefspreyi geti endað í vítahring
Nefúði getur verið ávanabindandi og notkun hans getur orðið að ákveðnum vítahring. Lyfja gaf nýlega út bækling þar sem þeir, sem nota úðann of mikið, er varaðir við og hjálpað að hætta. Lyfjafræðingur segir að ofnotkun geti orðið að krónísku vandamáli.

Passaði að minnast ekki á gjaldþrot bankanna í ræðunni
Fimmtán ár eru liðin frá því að Geir H Haarde þáverandi forstætisráðherra Íslands bað Guð að blessa Ísland vegna hruns íslensku bankanna. Þá um kvöldið, 6. október 2008, samþykkti Alþingi fordæmalaus lög, neyðarlögin, sem veittu Fjármálaeftirlitinu víðtækar heimildir til að taka yfir starfsemi bankanna og veita innstæðum forgang yfir aðrar kröfur.

Nálgist að geta sagt með vissu hvað varð um Geirfinn
Sigursteinn Másson, sem hefur legið yfir gögnum Guðmundar- og Geirfinnsmálið undanfarið, segist telja sig nálgast það að geta sagt með vissu hvað varð um Geirfinn.

Gríðarlegur uppgangur vinni gegn verðbólguhjöðnun
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að gríðarlegur uppgangur í íslenska hagkerfinu vinni að nokkru leyti gegn verðbólguhjöðnun. Hagvöxtur sé góður á evrópskan mælikvarða en baráttan við verðbólguna verði áfram sársaukafull.

Óli tölva segir enga hættu stafa af iPhone 12
Ólafur Kristjánsson, eða Óli tölva eins og hann er gjarnan kallaður, segir enga ættu stafa af farsímanum iPhone 12, en frönsk stjórnvöld felldu snjallsímann nýlega á geislunarprófi.

Vonaðist til að verða ekki spurð hvernig faðir sinn hefði dáið
Arna Pálsdóttir, sem situr í stjórn Píetasamtakanna, ræddi um sjálfsvíg föður síns í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag. Hann féll frá árið 2001 þegar Arna var einungis sextán ára gömul. Tilefni viðtalsins er átakið gulur september, en markmið þess er að vekja athygli á geðheilbrigði og sjálfsvígsforvörnum.

Á alls ekki von á að fleiri muni hætta viðskiptum við bankann
Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, segist ekki eiga von á að fleiri færi sig um set eftir að þrenn félagasamtök hafa tekið ákvörðun um að slíta viðskiptum við Íslandsbanka. Bankinn vinni nú að því að öðlast traust viðskiptavina á ný.

Samkeppniseftirlitið kannar hvort bankarnir leggi stein í götu Indó
Samkeppniseftirlitið kannar hvort hertar reglur viðskiptabankanna um gjaldeyrisviðskipti feli í sér samkeppnishömlur gagnvart sparisjóðnum Indó sem er nýr aðili á markaði. Samkvæmt reglunum þurfa einstaklingar sem vilja skipta gjaldeyri að vera í viðskiptum við bankanna og hafa svarað áreiðanleikakönnun.

Segist alls ekki hafa skipt um skoðun á bólusetningum
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segist alls ekki hafa skipt um skoðun á bólusetningum. Hann segir stjórnvöld hafa brugðist hárrétt við í heimsfaraldri Covid-19 miðað við forsendur á sínum tíma. Andstæðingar bóluefna eigi rétt á því að hafa rangt fyrir sér.

Ótækt að þyrlurnar séu nánast komnar ofan í kaffibolla íbúa
Framkvæmdastjóri Norðurflugs segir að sér lítist ekki illa á að flytja starfsemi fyrirtækisins á Hólmsheiði. Skiljanlegt sé að íbúar séu þreyttir á hávaðamengun af völdum þyrluumferðar en fyrirtækið lúti núverandi flugferlum og ráði ekki flugleiðum inn á og út af Reykjavíkurflugvelli.

Ættardeilur algengar: Oftast einhver sem telur sig bestan að stjórna klaninu
Ættardeilur snúast nær alltaf um peninga og arf að sögn Theodórs Francis Birgissonar klínísks félagsráðgjafa. Oft telur einn sig vera foringja í systkinahópi og eigi þar af leiðandi að ráða meiru um skiptingu en aðrir.

Meintur öryggisbrestur í Íslendingabók reyndist ekki á rökum reistur
Íslendingabók var lokað í rúman sólarhring eftir að ábending barst til Íslenskrar erfðagreiningar um meintan öryggisbrest. Vefurinn hefur nú verið opnaður aftur eftir að ljóst var að öllu væri óhætt.