
Umferðaröryggi

Myndband sýnir þegar lá við bílveltu í slabbi á Suðurlandsvegi
Ökumaður sem tók upp myndband af því þegar annar bíll snerist fyrir framan hann segir að aðeins örlitlu hefði munað að bíllinn ylti.

Hátt á annan tug alvarlegra umferðarslysa það sem af er ári
Á annan tug alvarlegra umferðarslysa hafa orðið frá upphafi árs 2020. Aðeins nítján dagar eru liðnir af árinu. Alvarleg umferðarslys hafa komið upp og mörg þeirra hafa verið fjölmenn. Eitt banaslys hefur orðið það sem af er ári.

Ekki í belti og sennilega ekki hæfur til að aka strætisvagninum
Rannsóknarnefnd samgönguslysa telur sennilegt að ökumaður hópbifreiðar sem lést eftir að misst stjórn á bifreiðinni þann 5. júni 2018 á Ólafsfjarðarvegi hafi ekki verið hæfur til að aka bifreiðinni sökum heilsubrest og lyfjanotkunar.

Þarf að greiða karlmanni sem lamaðist níutíu milljónir í skaðabætur
Vátryggingarfélag Íslands var í dag dæmt til að greiða karlmanni rúmlega 91 milljón króna í bætur auk dráttarvaxta. Maðurinn hlaut mænuskaða í umferðarslysi í mars árið 2012.

Skoða festingar gámabílsins eftir alvarlegt slys á Vesturlandsvegi
Ökumaður bíls sem slasaðist illa í árekstrinum telur sig hafa sloppið vel úr slysinu.

Breikkun sjö kílómetra kafla milli Selfoss og Hveragerðis boðin út
Vegagerðin hyggst fyrir lok mánaðarins bjóða út stærsta útboðsverk sitt á árinu, breikkun sjö kílómetra kafla Suðurlandsvegar um Ölfus, 2+1 veg með aðskildum akstursstefnum.

Göng á Dynjandisheiði og þverun Vatnsfjarðar hluti umhverfismats
Stutt jarðgöng efst á Dynjandisheiði og þverun Vatnsfjarðar á móts við Flókalund eru meðal valkosta sem Vegagerðin hefur kynnt vegna endurnýjunar Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði.

Svona gæti nýr vegur um Dynjandisheiði litið út
Vegagerðin hefur lagt fram frummatsskýrslu um mat á umhverfisáhrifum Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði. Vegagerð við fossinn Dynjanda og um friðlandið í Vatnsfirði eru taldir viðkvæmustu þættir verksins.

Meðalhraði á hringveginum lækkar
Samkvæmt frétt á vef FÍB (Félags íslenskra bifreiðaeigenda) lækkaði meðalhraði á Hringveginum um 0,7 km/klst á milli áranna 2017 og 2018.

Ný umferðarlög hafa tekið gildi
Ný umferðarlög sem Alþingi samþykkti á síðasta ári tóku gildi í gær.

Vilja leyfa ferðamönnum að keyra um á nagladekkjum níu mánuði á ári
Samtök ferðaþjónustunnar vilja rýmka heimild til að nota nagladekk á bílaleigubílum af öryggissjónarmiðum. Snýr tillagan að því að reglugerð verði breytt og negldir hjólbarðar verði leyfðir á bílaleigubílum frá 1. september til 31. maí eða þrjá og hálfan mánuð umfram aðra bíla.

Byrja að sekta ökumenn fyrir að leggja öfugt
Um áramótin mun lögregla geta lagt stöðubrotsgjald á þá sem leggja öfugt miðað við aktursstefnu. Yfirlögregluþjónn segir það allt of algengt.

Banaslys á Suðurlandsvegi: Ók yfir hámarkshraða og alltof hratt miðað við aðstæður
Ökumaður sem lést í bílslysi á Suðurlandsvegi í apríl 2018 ók yfir hámarkshraða og alltof hratt miðað við aðstæður.

Sækir um framkvæmdaleyfi fyrir vegagerð um Teigsskóg
Vegagerðin sótti í dag um framkvæmdaleyfi til Reykhólahrepps til lagningar Vestfjarðavegar um Teigsskóg. Svo langt hefur þessi umdeilda vegagerð aldrei áður náð í undirbúningsferli.

Leggja til nýja veglínu um Djúpuvík og Veiðileysuháls
Vegagerðin hefur kynnt matsáætlun vegna nýs vegar um Veiðileysuháls í Árneshreppi. Í samgönguáætlun er búið að marka 750 milljónir króna til verksins, með 300 milljóna króna byrjunarframlagi á árinu 2024.

2,7 milljóna króna sekt fyrir brot undir stýri
Rúmlega þrítugur karlmaður hefur verið dæmdur til að greiða 2.689.000 krónur í sekt innan fjögurra vikna ella sitja í fangelsi í 68 daga. Maðurinn hefur ítrekað gerst brotlegur á lögum fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot.

Ný umferðarlög taka gildi um áramót: Bannað að fleygja rusli úr bílnum, fara yfir á rauðu og skipta um akrein í hringtorgi
Það er ýmislegt í nýjum umferðarlögum sem ökumenn munu þurfa að hafa í huga á nýju ári og svo til frambúðar en Samgöngustofa hefur tekið saman helstu breytingar á vef sínum.

Vill hægja á umferð fyrir umhverfið
Þingmaður telur það í andstöðu við loftslagsmarkmið yfirvalda að ætla að hækka hámarkshraða á vegum úr 90 í 110 kílómetra hámarkshraða.

Hægjum á okkur fyrir framtíðina
Eitt af sorglegri nýyrðum ársins 2019 er "grár dagur“. Þetta er hugtak sem væri betra að þurfa ekki, en það lýsir dögum þar sem veðuraðstæður og bílaumferð spila saman þannig að loftmengun fer yfir heilsuverndarmörk.

Vetrardekkin skipta máli
Við hér á Íslandi búum við þær aðstæður að í sex mánuði af 12 má búast við snjó og vetrarfærð á vegum úti. Það er því afar mikilvægt að vera á góðum dekkjum.

Reykjanesbraut kláruð á árabilinu 2025 til 2029
Beðið verður með tvöföldun Reykjanesbrautar, milli Straumsvíkur og Hvassahrauns, til ársins 2025, samkvæmt samgönguáætlun sem birt var um helgina.

Sagðist aldrei hafa keyrt í hálku áður
Alls voru 63 ökumenn kærðir fyrir að aka of hratt í umdæmi lögreglunnar á Suðurlandi í liðinni viku.

Tuttugu börn voru alveg laus í bílum
Könnun sem Landsbjörg og Samgöngustofa gerður fyrr á árinu um öryggi barna í bílum leiddi í ljós að alls voru tuttugu börn alveg laus í bílum og þar af leiðandi í mikilli hættu.

Peningarnir klárir í Dynjandisheiði og þriggja ára matsferli á lokastigi
Vegagerð við fossinn Dynjanda og um friðlandið í Vatnsfirði eru taldir viðkvæmustu þættir umhverfismats vegna Vestfjarðavegar um Dynjandisheiði.

Segja rangt að allir landeigendur séu á móti Reynisfjallsgöngum
"Það er alls ekki rétt að allir hlutaðeigandi landeigendur séu á móti verkinu,“ segir Einar Freyr Elínarson, oddviti Mýrdalshrepps.

Reynisfjallsgöng sett inn á aðalskipulag í óþökk landeigenda
Við landeigendur vorum mjög ósáttir þegar þetta var sett inn í aðalskipulag og það var gert í óþökk allra landeigenda hér, segir Guðni Einarsson, bóndi í Reynishverfi í Mýrdal.

Samgönguáætlun boðar að næstu jarðgöng verði í gegnum Reynisfjall
Tólfhundruð metra löng jarðgöng í gegnum Reynisfjall eru komin á dagskrá næstu fimm ára samgönguáætlunar, árin 2020-2024, sem birt var á Alþingi í dag.

Lögreglan varar við ísingu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar íbúa við því að víðast hver sé stórhættuleg ísing á vegum. Sérstaklega í íbúðagötum og á göngu- og hjólreiðastígum.

Færð á vegum og veður komin á sama Íslandskort
Í fyrsta sinn á Íslandi geta innlendir og erlendir ferðalangar séð allar upplýsingar sem tengjast færð og veðri á einu íslandskorti á vef Safetravel. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála tók kortið formlega í notkun í upplýsingamiðstöð ferðamanna í Reykjavík í gær.

Enn einu sinni undir áhrifum við akstur en nú á vespu
Kona á fertugsaldri hefur verið dæmd í þrjátíu daga fangelsi og svipt ökuréttindum ævilangt eftir að hafa verið stöðvuð endurtekið án réttinda eða undir áhrifum við akstur.